Hlutabréf halda áfram að falla í verði

Mark­aðsvirði Icelandair hefur lækkað um 85 millj­arða á hálfu ári.

Þrátt fyrir að hag­vöxtur sé umtals­verður á Íslandi, á bil­inu 4 til 5 pró­sent sam­kvæmt spám fyrir þetta ár, og að flestir hag­vísar séu jákvæðir, þá hefur gengi hluta­bréfa í kaup­höll Íslands lækkað nokkuð á und­an­förnum mán­uðum. Engin breyt­ing hefur orðið á því í byrjun þessa árs. 

Í dag lækk­aði vísi­talan um 1,53 pró­sent. Mest var lækk­unin á bréfum Eim­skipa­fé­lags­ins en þau lækk­uðu um 2,13 pró­sent í við­skiptum upp á 86 millj­ónir. Gengi bréfa félags­ins hefur fallið hratt að und­an­förnu. Í byrjun des­em­ber var það 338 en er nú komið undir 300, eða 298 í lok dags.

Gengi bréfa í Marel lækk­aði einnig tölu­vert í við­skiptum dags­ins, eða um 2,1 pró­sent. Horft fyrir síð­ustu mán­uði hefur gengið bréfa félags­ins ekki lækkað mikið.

Mark­aðsvirði Icelandair hefur hins vegar fallið veru­lega á síð­ustu mán­uðum. Um mitt ár í fyrra var virði félags­ins tæp­lega 190 millj­arðar en nú er það 105 millj­arðar.

Í fyrra styrkt­ist gengi krón­unnar um 18,4 pró­sent að með­al­tali, gagn­var helstu við­skipta­myntum. Í byrjun árs­ins hefur gengið veikst lít­il­lega en það styrkt­ist þó nokkuð í dag. Því er spáð að á þessu ári verði gjald­eyr­is­inn­streymi vegna vaxtar í ferða­þjón­ustu enn meira en í fyrra. Búast má við því að það geti leitt til styrk­ingar krón­unnar, en margt getur þó spilað inn í geng­is­þró­un­ina. Inngrip Seðla­banka Íslands eru þar á meðal, en þau leiddu til þess í fyrra að gengi krón­unnar styrkt­ist ekki nærri eins mikið og það hefði gert ef ekki hefði komi til þeirra.

Þá hefur verk­fall sjó­manna einnig mikil áhrif, þar sem þá dregur úr útflutn­ingi á sjáv­ar­af­urðum með til­heyr­andi minnk­andi gjald­eyr­is­tekjum fyrir þjóð­ar­búið.

Heim­ildir fyrir líf­eyr­is­sjóð­ana til að fjár­festa erlendis hafa verið rýmkaðar veru­lega að und­an­förnu en þær nema nú um 100 millj­örðum króna fyrir árið. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eiga á bil­inu 40 til 60 pró­sent af öllum skráðum hluta­bréfum á Íslandi, þegar allt er talið. Heild­ar­virði skráðra hluta­bréfa líf­eyr­is­sjóð­ana á Íslandi í lok árs­ins var rúm­lega 540 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár