Íslenska stríðshetjan Tony Jónsson

Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sér ótrú­lega sögu stríðs­hetj­unnar Þor­steins Elton Jóns­sonar.

Fáir Íslend­ingar hafa upp­lifað jafn mik­inn hasar og Þor­steinn Elton Jónsson flug­maður. Í Bret­landi var hann kall­aður Tony Jonsson þegar hann barð­ist með flug­hernum í seinni heim­styrj­öld­inni en hér á Íslandi var hann kall­aður Steini flug. Á seinni árum tók hann þátt í neyð­ar­að­stoð í Afríku á miklum ólgu­tímum við ákaf­lega krefj­andi aðstæður. Ævintýri hans voru efni­viður í tvær ævi­sögur en hér er brot af því helsta.

Með togara í stríðið

Þor­steinn Elton Jónsson var fæddur þann 19. októ­ber árið 1921 í Reykja­vík. Hann var elsta barn af fjórum, hjón­anna Snæ­björns Jóns­sonar og Annie Florence Westcott Jónsson. Snæbjörn rak bóka­búð­ina Snæbjörn Jónsson & Co. – The English Bookshop í Hafn­ar­stræti. Hann var auk þess rit­höf­undur, bóka­út­gef­andi, þýð­andi og mjög fyr­ir­ferð­ar­mik­ill í menn­ing­ar­lífi lands­ins og þjóð­mála­um­ræð­unni. Eins og nafn búð­ar­innar gaf til kynna þá hafði Snæbjörn sér­stakt dálæti af enskum bók­menntum og hafði mikil tengsl við Bretland.

Annie, sem starf­aði sem hús­móðir, var einmitt ensk. Þor­steinn deildi ekki bók­mennta­á­huga föður síns og var ekk­ert sér­stak­lega hneigður að bók­námi. Þetta kom best fram á ung­lings­aldri þegar hann hélt norður til Akur­eyrar í mennta­skól­ann þar. Hann hafði frekar áhuga á mynd­list, úti­vist og sér­stak­lega flugi. Sem barn hafði hann dreymt um að verða flug­maður og kom­ast í Kon­ung­lega breska flug­her­inn, RAF. Á mennta­skóla­ár­unum, áður en stríðið skall á, virt­ist leið hans hins vegar liggja í arkítektúr.

En stríðið breytti öllu og vorið 1940 ákvað hann að hætta námi og ger­ast orr­ustuflug­maður. Hann tal­aði við bresku ræð­is­menn­ina, bæði á Akureyri og Reykja­vík, en fékk þau svör að hann væri ekki gjald­gengur í flug­her­inn vegna þess að hann væri Íslend­ingur og þar af leið­andi ekki aðili að stríð­inu. Þor­steinn lét þó ekki deigan síga og fékk far með tog­ar­anum Óla Garða til Bret­lands (flak hans situr nú í fjöru Foss­vogs­ins). Þor­steinn kom til Englands, 18 ára, papp­írs­laus, með eitt sterl­ingspund í vas­anum og þótt und­ar­legt megi virð­ast frekar slakur í tungu­mál­inu. En faðir hans og móð­ur­fjöl­skylda beittu sér fyrir því að hann fengi til­skilin leyfi og í kjöl­farið hélt hann með lest norður til Padgate í her­skóla breska flug­hers­ins.

Dansað í háloftunum

Í Padgate, í norð­vest­ur­hluta Englands, tók við hálfs árs almenn her­þjálfun. Fjöl­margir aðrir erlendir piltar voru í þjálf­un­ar­búð­unum en hann var eini Íslend­ing­ur­inn. Um haustið 1940 fékk hann svo loks að læra til flugs. Hann lauk prófi sem orr­ustuflug­maður vorið 1941 og hóf þá sam­stundis her­þjón­ustu.

Hann var sendur norður til Skotlands í 17. her­deild­ina, sem stað­sett var í bænum Elgin. Þor­steini fannst vistin í Skotlandi frekar tíð­inda­lítil og leið­in­leg. Fáar þýskar flug­vélar voru á sveimi í námunda við Skotland og hann sá nokkuð eftir því að hafa misst af hinum goð­sagna­kennda sigri flug­hers­ins í orr­ust­unni um Bretland hálfu ári áður. En eftir á að hyggja kom það sér vel að hafa það rólegt fyrstu mán­uð­ina.

Í Skotlandi flaug hann að mestu ein­menn­ings­vélum af gerð­inni Hawker og þetta var góð æfing fyrir það sem var í vændum. Í lok árs 1941 var hann færður yfir í 111. her­deild­ina sem stað­sett var í North Weald í námunda við Lundúni og þar tók alvara lífs­ins við. Markmið deild­ar­innar var að varpa sprengjum á her­stöðvar, járn­braut­ar­lestir, birgða­stöðvar og önnur skot­mörk í Frakk­landi og Nið­ur­löndum og hann flaug þá Spitfire-vél, einni þekkt­ustu orr­ustuflug­vél sög­unnar. Hann sá bæði um að varpa sprengjum og veita stærri sprengju­vélum vernd. Þor­steinn lenti í fyrsta skipti í beinni orr­ustu við þýskar vélar í októ­ber­mán­uði árið 1941. Hann var í grennd við frönsku borg­ina Lille þegar nokkrar Messerschmidt vélar mættu á svæðið.

Ég var sann­ast að segja dauð­hræddur, en svo mun vera um flesta flug­menn í fyrstu loftorr­ust­unni. Ég man nú eig­in­lega lítið eftir, hvernig allt fór, allt gerð­ist með svo skjótum hætti. Ég varð við­skila við félaga mína og varð að bjarga mér upp á eigin spýtur og það tókst og ég komst heim.

Um þetta leyti fengu Íslend­ingar að vita af Þor­steini í blöð­unum eftir að frétta­til­kynn­ing um hann var lesin í breska rík­is­út­varp­inu. Þor­steinn var eini Íslend­ing­ur­inn í breska flug­hernum en einn annar Íslend­ingur, Jón Krist­ó­fer Sig­urðs­son, þjón­aði í land­hernum um svipað leyti.

Grandaði 8 vélum

Ári seinna var her­deildin flutt til Norður-Afríku þar sem banda­menn unnu að því að hrekja Þjóð­verja úr álf­unni. Þar skaut Þor­steinn niður sínar fyrstu vélar. Þær voru af gerð­inni Junker og hann sá aðra þeirra hrapa og brot­lenda í fjalls­hlíð. Hann skaut niður alls 5 vélar svo sannað væri (annað vitni þurfti til), en sjálfur var hann nokkuð viss um að þær væru a.m.k. 8 tals­ins. Hann lenti marg­sinnis í kröppum dansi í ferðum sínum.

Í eitt skipti bil­aði annar hreyfill­inn yfir Atl­ants­haf­inu, í annað skipti náði hann ekki að losa sprengju fyrr en á heim­leið­inni yfir Erma­sundið og þá mun­aði minnstu að hún hæfði breskt skip. Þá flaug hann í flasið á um 50 þýskum orr­ustu­vélum eftir að hafa sprengt lestar­teina í Frakk­landi. Hann missti tvisvar vél sína. Í annað skipti eftir að stýr­is­bún­að­ur­inn brást og hann þurfti að „beila út“ eins og sagt var. Í hitt skiptið fékk hann skot úr loft­varn­ar­byssu í hjól­bún­að­inn og þurfti hann þá að lenda vél­inni á mag­anum eða „uppá pönnu­köku“.

Aðgerð­irnar gengu þó heilt yfir litið vel en Þor­steinn sagði reyndar sjálfur að mót­staða þýsku vél­anna hafi verið nokkuð lítil þar sem allir bestu flug­kapp­arnir hafi verið á aust­ur­víg­stöðv­unum að kljást við Sov­ét­menn. Engu að síður þótti fram­ganga hans til fyr­ir­myndar. Hann vann sig upp úr stöðu lið­þjálfa í laut­in­ant og var sæmdur orðu af Georgi VI kon­ungi í upp­hafi árs 1943. Það sama ár var hann sendur í 65. her­deild­ina þar sem hann flaug amer­ískri Mustang sprengju­flug­vél yfir Frakk­land og Þýska­land uns stríð­inu lauk.

Ísland og Kongó

Þor­steinn ferð­að­ist víða fyrir breska flug­her­inn, t.a.m. til Indlands og austur-Asíu. Þá tók hann atvinnu­manns­flug­próf í Englandi árið 1946 og flutti ári seinna heim til Íslands. Á þessum tíma var inn­an­lands­flug að ryðja sér til rúms á Íslandi. Þor­steinn flaug Douglas vélum fyrir Flug­fé­lag Íslands, bæði inn­an­lands og til Græn­lands (sem voru miklar hættu­ferðir). Þegar hann flutti hingað var hann nýgiftur enskri konu að nafni Marianne en þau skildu árið 1952. Það sama ár gift­ist hann flug­freyj­unni Margréti Þor­björgu Thors og áttu þau saman fjögur börn. Margrét var dóttir Ólafs Thors og var Þor­steinn því tengda­sonur for­sæt­is­ráð­herr­ans um nokk­urt skeið. Þor­steinn sinnti einnig ýmsum öðrum málum tengdum flugi á þessum árum.

Hann var for­maður Félags íslenskra atvinnu­flug­manna og fyrsti for­maður Flug­björg­un­ar­sveit­ar­innar. En þrátt fyrir að Þor­steinn hafi komið sér vel fyrir á Íslandi þá tog­uðu ævin­týrin ennþá í hann. Sumarið 1956 fluttu hjónin til borg­ar­innar Leó­pold­ville (seinna Kins­hasha) í afrísku nýlend­unni Belgísku Kongó. Þor­steinn flaug þá fyrir belgíska flug­fé­lagið Sabena og var um tíma einka­flug­maður Patrice Lumumba, fyrsta for­sæt­is­ráð­herra lands­ins. Afr­íku­ríkin voru að fá sjálf­stæði hvert á fætur öðru og þetta voru miklir ólgu­tímar í álf­unni. Hjónin flúðu landið í flýti árið 1960 vegna yfir­vof­andi stjórn­ar­bylt­ingar og ári seinna var Lumumba tek­inn af lífi. Árið 1967 urðu mikil umskipti í lífi Þor­steins. Annars vegar skildu þau Margrét og hins vegar var honum vikið úr starfi hjá Flug­fé­lagi Íslands. Þotuöld var þá að ganga í garð á Íslandi en Þor­steinn var mun hrifn­ari af því að fljúga litlum rellum. Hann þurfti því að finna ný ævin­týri og aftur tog­aði Afríka í hann.

Neyðaraðstoð í Bíafra

Sumarið 1967 braust út borg­ara­styrj­öld í Nígeríu á vest­ur­strönd Afríku þegar íbúar í aust­ur­hluta lands­ins gerðu upp­reisn gegn stjórn­inni og stofn­uðu eigið ríki, Bíafra. Stjórn­ar­her­inn setti Bíafra í her­kví með því tak­marki að svelta íbú­ana í hel. Þá ákváðu nokkur kirkju­sam­bönd á Vest­ur­löndum að koma á fót neyð­ar­að­stoð fyrir Bíafra-menn. Samtökin settu upp búðir í nálægum löndum og flugu með vistir fram­hjá stjórn­ar­hernum og inn á svæðið. Hér á Íslandi var félag­inu Flug­hjálp hf komið á fót af nor­rænu kirkju­sam­tök­unum Nordchurchaid og flug­fé­lag­inu Loft­leiðum. Þor­steinn ákvað að taka þátt í þessu og hélt út árið 1968 til portú­gölsku nýlend­unnar Sao Tome, lít­illar eyju í Gíneuflóa skammt frá Nígeríu.

Fleiri Íslend­ingar tóku þátt í Bíafra-flug­inu og svo fjöldi flug­manna og hjálp­ar­starfs­manna frá Ameríku og Vestur-Evrópu. Það var flogið með ýmis mat­væli (t.d. íslenska skreið), lyf, salt, olíu, sölu­varn­ing o.fl. til Bíafra og mjög veik börn flutt til baka til aðhlynn­ingar í nágranna­ríkj­unum. Flugið var ákaf­lega hættu­legt því að stjórn­ar­her­inn skaut á hjálp­ar­vél­arnar og nokkrar fór­ust af þeim sökum. Því var nán­ast alltaf flogið ljós­laust um miðjar nætur en Bíafra menn kveiktu á ljósum flug­braut­anna rétt fyrir lend­ingu. Íslenska sveitin ferjaði vistir til Uli, sem var ákaf­lega lít­ill og van­bú­inn flug­völlur (ef flug­völl skyldi kalla).

Þetta var bæði krefj­andi og lýj­andi verk­efni þar em flogið var nán­ast hverja ein­ustu nótt. Alls flaug Þor­steinn 413 sinnum til Bíafra frá 1968 til 1970. Á vell­inum í Uli var skotið á vélar hjálp­ar­sveit­anna og nokkrar eyðilögð­ust þar. Í sein­asta flug­inu þann 9. jan­úar árið 1970 lentu Íslend­ing­arnir í árás stjórn­ar­hers­ins. Sveitin átti að sækja um 50 inn­lyksa hjálp­ar­starfs­menn en þegar komið var til Uli voru ein­ungis hjálp­ar­vana Bía­fra­búar á svæð­inu, menn, konur og börn. Skothríð hófst og Íslend­ing­arnir þurftu að fylla vél­ina af fólki í flýti og rjúka af stað. 10 manns urðu fyrir byssu­kúlum í hama­gangnum og tveir af fjórum hreyflum vél­ar­innar eyðilöggð­ust. Þor­steinn lýsir þessu svo: „En nú byrj­aði skot­hríðin aftur fyrir alvöru, og virt­ist kúl­unum nú aðal­lega beint að stjórn­klef­anum, enda komu þær nokkrar inn til okkar, en oft mun­aði mjóu. T.d. var ég að leggja hönd­ina á bens­ín­gjöf­ina þegar partur af einu hand­fang­inu hvarf og ég fékk smá­flís í hönd­ina. Önnur kúla kom í rúð­una rétt við höfuð Einars [Guð­laugs­sonar flug­manns], og svona mætti áfram telja.“

Þor­steinn reynd­ist yngri flug­mönn­unum vel í þessum ferðum og má telja öruggt að reynsla hans úr stríð­inu hafi komið að góðum notum. Talið er að neyð­ar­að­stoðin hafi bjargað um einni milljón manns­lífa en um þrjár millj­ónir lét­ust í hung­ursneið­inni miklu.

Lúxemborg og starfslok

Eftir Bíafra hélt Þor­steinn til Lúx­em­borgar, þá tæp­lega fimm­tugur. Hann var þá nýgiftur þriðju kon­unni sinni, Katrínu Þórð­ar­dóttur, sem var hjálp­ar­starfs­maður í Bíafra. Í Lúx­em­borg fékk hann stöðu flug­stjóra hjá hinu nýstofn­aða fragt­flug­fé­lagi Cargolux sem Loft­leiða­menn voru aðilar að. Þar starf­aði hann til árs­ins 1987 og flaug m.a. Boeing-747 þotum og var jafn­framt for­maður félags atvinnu­flug­manna Lúx­em­borgar mest­allan tím­ann. Ævin­týr­unum var hins vegar að mestu lokið, eða a.m.k. lífs­hásk­anum. Eftir dvöl­ina í Lúx­em­borg fluttu hjónin heim til Íslands og hafði Þor­steinn þá skilað inn sam­an­lagt 36.000 flug­tímum á 47 árum. Þor­steinn átti mög áhuga­mál svo sem úti­vist, golf, trillu­út­gerð, mynd­list, fisk-og skot­veiði. Þá átti hann alls sjö börn. Hann var mik­ill karl í krap­inu og töffari en var var­kár í því að tala um stríðs­árin. Hann tók því af mik­illi hóg­værð og við­ur­kenndi að hann hefði oft verið mjög hræddur.

Hann fjall­aði hins vegar ítar­lega um stríðið í tveimur ævi­sögum sínum

Dansað í háloft­unum

(1992) og

Við­burð­ar­rík flug­mannsævi

(1993) sem báðar voru þýddar yfir á enska tungu. Katrín lést árið 1994 og hann í lok árs 2001, átt­ræður að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár