Bjarni Ben: Hafna því alfarið að hafa haldið skýrslunni leyndri

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir ekk­ert hæft í því að skýrslu um aflandseign Íslend­inga hafi verið haldið leyndri.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir það af og frá að skýrslu um aflandseign Íslend­inga hafi verið haldið leyndri eða frá almenn­ingi, fram yfir kosn­ingar 29. októ­ber. Skýrslan var til­búin nokkrum vikum fyrir kosn­ingar en var ekki birt fyrr en í gær.

„Ég tel hafa verið gríð­ar­lega mik­il­vægt að taka hana sam­an,“ seg­ir Bjarni í við­tali við Morg­un­blaðið og mbl.is um skýrsl­una. Hann segir að skýrslan hafi verið unnin að hans frum­kvæði. Fjár­hæð­irnar sem nefndar hafa verið séu mjög háar og mik­il­vægt sé að kom­ast til botns í mál­inu, efla skatta­eft­ir­lit og aðgerðir sem hægt er að grípa til til að koma í veg fyrir sam­fé­lags­legt tap. „Tap sam­fé­lags­ins er veru­legt og þess vegna er það mik­il­vægt að við höf­um verið að breyta lög­um, skrifa und­ir upp­lýs­inga­skipta­sam­inga og efla skatta­eft­ir­lit til þess að bregð­ast við,“ segir í Bjarni í sam­tali við mbl.is. 

Í dag kall­aði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, eftir því að fundur færi fram í efna­hags- og við­skipta­nefnd þar sem rætt yrði um efni skýrsl­unnar og einnig hvers vegna skýrslan hefði ekki verið birt fyrir kosn­ingar.

Í lok árs­ins 2015 var upp­safnað umfang eigna og umsvifa Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­arðar króna, sam­kvæmt nið­ur­stöðum starfs­hóps um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum og tekju­tap hins opin­bera. Skýrsla nefnd­ar­innar var gerð opin­ber í dag, en Kjarn­inn greindi frá því fyrr í vik­unni að skýrslan væri búin að vera til­búin frá því í byrjun októ­ber.

Starfs­hóp­ur­inn segir að mögu­legt tekju­tap hins opin­bera vegna van­tal­inna eigna á aflands­svæðum geti verið allt frá 2,8 millj­örðum til 6,5 millj­arða á hverju ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár