Skýrsla um umfang skattaskjólseigna enn í bið

Skýrsla um umfang skatta­skjóls­eigna Íslend­inga var til­búin í byrjun októ­ber. Hún átti að koma fyrir Alþingi þegar það kom saman en af því hefur ekki enn orðið.

Skýrsla um umfang skatta­skjóls­eigna hefur verið til­búin í fjár­mála- og efn­hags­ráðu­neyt­inu frá því í byrjun októ­ber, en hefur ekki enn komið fyrir Alþingi eða verið gerð opin­ber með öðrum hætti.

Sér­stakur starfs­hópur sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra skip­aði, og átti að leggja mat á umfang fjár­magnstil­færslna og eigna­um­sýslu á aflands­svæð­um, lauk störfum og skil­aði af sér skýrslu í byrjun októ­ber. Skýrslan var kynnt í ráðu­neyt­inu þá, en var ekki kynnt fyrir Alþingi fyrir kosn­ing­ar.

Sam­kvæmt svari frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í byrjun nóv­em­ber um nið­ur­stöður starfs­hóps­ins var stefnt að fram­lagn­ingu og opin­berri kynn­ingu skýrsl­unnar þegar nýtt þing kæmi sam­an.

Nýtt þing kom svo saman í byrjun des­em­ber en skýrslan hefur enn ekki verið lögð þar fram. Ekki hafa feng­ist svör við því í ráðu­neyt­inu hvenær ráð­herra hyggst leggja hana fram en allar líkur eru á því að það muni falla í skaut nýs fjár­mála­ráð­herra að leggja hana fyrir Alþingi.

Sig­urður Ing­ólfs­son hag­fræð­ingur var for­maður starfs­hóps­ins, sem starf­aði frá því í vor. Hóp­ur­inn átti að meta umfang á aflands­svæðum og leggja mat á umfang eigna í skatta­skjól­um. Þá átti hóp­ur­inn að meta mögu­legt tekju­tap hins opin­bera af umsvifum af þessu tag­i.

Meðal ann­ars fékk hóp­ur­inn banda­ríska hag­fræð­ing­inn dr. James S. Henry til lands­ins til að funda með hópn­um. Hóp­ur­inn var skip­aður í vor, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra greindi frá því í byrjun sum­ars að hann bindi vonir við að hóp­ur­inn lyki störfum fyrir lok sum­ars og að hann myndi í fram­hald­inu kynna nið­ur­stöð­urnar í þing­in­u.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár