Katrín óskar eftir fundi - Hvers vegna var skýrslan ekki birt fyrir kosningar?

Katrín Jak­obs­dóttir for­maður Vinstri grænna hefur óskað eftir fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd um skýrsl­una um aflandseignir Íslend­inga.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur óskað eftir fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum. Þetta upp­lýsir hún á Facebook síðu sinni. „Var að óska eftir fundi í efna­hags- og við­skipta­nefnd í kom­andi viku til að fá kynn­ingu og umræðu um skýrslu starfs­hóps um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum. Spurn­ingar hafa vaknað af hverju skýrslan var ekki birt fyrr en sam­kvæmt fréttum var henni skilað í októ­ber,“ segir Katrín.

Hún segir fullt til­efni til að skoða hvort breyt­inga sé þörf á lög­gjöf sem varðar þessi mál. „Alþingi afgreiddi ýmsar breyt­ingar til bóta í haust sem ætlað var að bæta lög­gjöf hvað varðar skatt­svik og notkun skatta­skjóla. Skoða þarf hvort nægi­lega vel er búið að fram­kvæmd skatta­eft­ir­lits og skatt­rann­sókna. Og skoða þarf hvaða áhrif afnám hafta mun hafa á þessa hluti í fram­tíð­inni og hvort fjár­munir úr skatta­skjólum hafa verið að skila sér inn í landið að und­an­förnu í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­bank­ans,“ segir Katrín, en í skýrsl­unni er því velt upp hvort eitt­hvað af þessum fjár­munum hafi skilað sér inn í landið í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands.

Eins og greint var frá í frétta­skýr­ingu á vef Kjarn­ans í gær, þá varð stökk­breyt­ing á flæði fjár til aflands- og lág­skatta­svæða á fyrsta ára­tug þess­arar ald­ar, og fjöldi aflands­fé­laga í eigu Íslend­inga fer­tug­fald­að­ist frá árinu 1999 og fram að hruni. Eignir í stýr­ingu íslensku bank­anna í Lúx­em­borg 46-­föld­uð­ust á sama tíma­bili. Upp­safnað umfang eigna Íslend­inga á aflands­svæðum frá árinu 1990 til 2015 nemur ein­hvers staðar á bil­inu 350 til 810 millj­örðum króna, og tekju­tap hins opin­bera á árunum 2006 til 2014 nemur lík­lega um 56 millj­örðum króna. Á hverju ári gæti tapið vegna van­tal­inna skatta verið á bil­inu 4,6 til 15,5 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár