Árangur Kína í stríðinu gegn mengun

Eftir að stjórn­völd í Kína lýstu yfir stríði gegn mengun vorið 2014 hafa þau sett sér ýmis lofts­lags­mark­mið, full­gilt Par­ís­ar­sátt­mál­ann og aukið fjár­fest­ingar til end­ur­nýj­an­legrar orku­vinnslu. Kola­brennsla þeirra er þó gríð­ar­legt vanda­mál á heims­vísu.

Á vetr­ar­mán­uðum viðrar oft sér­stak­lega vel til loft­meng­unar í Pekíng og upp­lifðu borg­ar­búar að loft­mengun mæld­ist 24 sinnum hærri en það sem telst skað­legt fyrir heilsu af Alþjóð­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) á nýárs­dag. Ástandið í Pekíng, og víðs vegar í Kína, er áminn­ing um þann meng­un­ar­vanda sem blasir enn við þrátt fyrir miklar fram­farir í aðgerðum gegn loft­mengun á und­an­förnum árum. Loft­mengun í Kína orsakast að miklu leyti af útblæstri frá kolaknúnum stál­verk­smiðjum og raf­orku­stöðvum í norð­ur­hluta lands­ins og sú losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem fylgir hefur mikil áhrif á lofts­lags­mál á heims­vísu.

Fylgifiskar örar þróunar

Ör hag­vöxtur og þróun í Kína frá lok átt­unda ára­tug­ar­ins hefur lyft yfir 800 milljón manns úr fátækt og hefur í kjöl­farið gert landið að því landi í heim­inum sem stendur fyrir mestri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eða rúm­lega einn fjórða af heild­ar­losun.

[adspot]

Með­al­l­osun á íbúa í Kína er þó lægri en með­al­talið fyrir ríki Evr­ópu­sam­bands­ins, Japan og Banda­ríkin enda er landið það fjöl­menn­asta í heimi. Raf­orku­fram­leiðsla stóð fyrir um 78,5% af losun í Kína árið 2012 og kola­notkun stóð fyrir um 66% af orku­neyslu í land­inu árið 2014.

Á und­an­förnum árum hefur Kína miðað að því að auka „gæði hag­vaxtar“ úr þeim fram­leiðslu­mið­aða hag­vexti sem ein­kenndi þróun lands­ins frá níunda ára­tugi síð­ustu aldar til fyrsta ára­tugar 21. ald­ar­innar. Þessi breyt­ing hefur haft í för með sér að hag­vöxtur hefur minnkað á síð­ustu árum og er mark­mið 13. fimm ára áætl­un­ar­innar (2016-2020) 6,5% árlegur vöxtur. Þjón­ustu­geir­inn hefur á und­an­förnum árum aukið vægi sitt – hann stendur nú fyrir um 57% af hag­kerfi lands­ins – og er mark­miðið að gera neyslu inn­an­lands, frekar en útflutn­ing og fjár­fest­ingar, að meg­in­stoð hag­kerf­is­ins.

Þessi þróun hefur stuðlað að því að fram­leiðslu­geta lands­ins á stáli og kolum, horn­steinar hag­vaxtar fyrri ára, er talin vera of há sem veldur bæði lof­st­lagstengdri áhættu en einnig deilum við ESB og Banda­ríkin vegna meintra brota á sam­keppn­is­lögum í alþjóða­við­skiptum við útflutn­ing á nið­ur­greiddu stáli. Kínversk stjórn­völd hafa sett mark­mið um að minnka fram­leiðslu­getu á kolum um 9% og stáli um 13% á næstu fimm árum. Þá kynntu stjórn­völd nú á dög­unum að þau ætla sér að draga úr fram­leiðslu­getu á kolum um 300 milljón tonn á ári fram til árs­ins 2020 en á sama tíma auka fram­leiðslu úr 3,75 millj­örðum tonna í 3,9 millj­arða tonna. Ætlunin með því er að færa fram­leiðslu til skil­virk­ari verk­smiðna.

Stríð gegn mengun

Fjár­fest­ingar í innviðum og hröðun á borg­ar­væð­ingu er mik­il­vægur hlekkur í átt að þróun hag­kerf­is­ins í átt að inn­an­lands­neyslu. Sú mikla loft­mengun sem er stað­reynd í mörgum af stærstu borgum lands­ins hefur stuðlað að auk­inni óánægju meðal almenn­ings á versn­andi meng­unar­á­standi. Þessi þrýst­ingur knúði stjórn­völd til að lýsa yfir „stríði gegn mengun“ vorið 2014 og hefur ákveðin árangur náðst; bæði í mörgum af stærstu borgum lands­ins þar sem hertar reglu­gerðir um umhverf­is­vernd og bætt eft­ir­fylgni þeirra, ásamt betri og nákvæm­ari mæl­ingum hafa leitt til minn­kunnar á loft­mengun, en líka á alþjóða­vett­vangi þar sem stjórn­völd hafa stigið stór skref á und­an­förnum árum.

Xi Jinping, for­seti Kína, og Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, komust að sam­komu­lagi í nóv­em­ber 2014 þar sem Kína skuld­batt sig til að ná hámarki los­unar gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í síð­asta lagið árið 2030 og til að auka vægi end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa í orku­neyslu lands­ins til 20%. Í sept­em­ber 2015 til­kynnti Xi Jinping að landið myndi koma á svoköll­uðu „cap-and-trade“-kerfi fyrir losun kolefna árið 2017. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum und­ir­rit­uðu svo Xi og Obama Par­ís­ar­sátt­mál­ann en Kína gegndi lyk­il­hlut­verki í að leiða sátt­mála­við­ræð­urnar að far­sælum enda.

Þá hefur Kína stór­aukið nýjar fjár­fest­ingar til end­ur­nýj­an­legra orku­auð­linda og varði meira en 100 millj­örðum Banda­ríkja­dala til þeirra árið 2015. Landið hefur mestu fram­leiðslu­getu í heim­inum innan vind- og sól­ar­orku. Samhliða mark­miði um að auka vægi end­ur­nýj­an­legra orku­auð­linda miðar Kína einnig að því að lækka koltví­sýr­ings­stig í orku­fram­leiðslu um 60-65% fyrir árið 2030.

Væntingar millistéttarinnar

Í landi þar sem lífs­kjör hafa auk­ist hratt hafa vænt­ingar hinnar nýju, og gríð­ar­lega stóru, milli­stéttar auk­ist að sama skapi. Stjórn­völd í Kína hafa á síð­ustu ára­tugum reitt sig á að geta skilað háum hag­vexti og skil­virkri upp­ræt­ingu á fátækt sem meg­in­að­ferð til að koma til móts við almenn­ing. Eftir því sem um helm­ingur borg­ar­búa í Kína er undir 35 ára aldri, og hefur ekki upp­lifað fátækt og hall­æri átt­unda og sjö­unda ára­tug­ar­ins, eru vænt­ingar þeirra til stjórn­valda um að draga úr mengun háar og eru þau lík­legri til að láta heyra í óánægju sinni á sam­fé­lags­miðlum eða í gegnum mót­mæl­is­að­gerðir. Aðgerðir Kína til að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og nútíma­væða hag­kerfið eru því ekki ein­ungis gerðar til að styrkja efna­hag lands­ins eða taka leið­toga­hlut­verk á alþjóða­vett­vangi heldur eru þær bráð­nauð­syn­legar fyrir sam­fé­lags­sátt­mála stjórn­valda og nýrrar milli­stéttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftlagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár