Ford hættir við nærri 200 milljarða uppbyggingu í Mexíkó

Donald J. Trump gagn­rýndi stjórn­endur Ford og svo virð­ist sem hlustað hafi verið á hann. Upp­bygg­ing fyr­ir­tæk­is­ins verður í Michigan en ekki í Mexíkó.

Banda­ríski bíla- og véla­fram­leið­and­inn Ford hyggst ekki byggja upp starf­semi fyrir 1,6 millj­arða Banda­ríkja­dala í Mexíkó, eins og hann hafði áður til­kynnt um, heldur verður þess í stað byggð upp enn frek­ari starf­semi í Michigan í Banda­ríkj­unum.

Mark Fields, fram­kvæmda­stjóri hjá Ford, til­kynnti um þetta í dag, en mikil upp­bygg­ing fyr­ir­tæk­is­ins í San Luis Potosi í Mexíkó hefur verið slegin af. Þess í stað verður verk­smiðja fyr­ir­tæk­is­ins í Wayne í Michigan notuð til þess að fram­leiða næstu kyn­slóð af Ford Focus bílum fyr­ir­tæk­is­ins en með því tekst að vernda um 3.500 störf í Michigan, sem ann­ars hefðu flust til Mexíkó, að því er segir í umfjöllun Bloomberg.

Donald J. Trump, sem brátt tekur form­lega við sem for­seti Banda­ríkj­anna, gagn­rýndi Ford harð­lega í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir að flytja störf úr landi og þá einkum til Mexíkó. Hann sagði þetta grafa undan hag­kerfi Banda­ríkj­anna.

Bill Ford, for­stjóri Ford, sagð­ist í dag hafa rætt upp­bygg­ing­ar­á­form fyr­ir­tæk­is­ins við Mike Pence, vara­for­seta­efni, en sam­kvæmt áformum Ford þá ætlar fyr­ir­tækið að fjár­festa fyrir um 700 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 80 millj­arða króna, til að setja upp fram­leiðslu sem skapa mun um 700 störf til við­bótar í Michigan.

Frekari upp­bygg­ing fyr­ir­tæk­is­ins í Mexíkó hefur þó ekki verið úti­lokuð í fram­tíð­inni, en Ford seg­ist von­ast til þess að undir stjórn Trumps muni efna­hagur Banda­ríkj­anna blómstra, og þar með ýta undir frek­ari vöxt Ford.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár