Tónlistarstjörnur sem kvöddu á árinu

Tón­list­ar­heim­ur­inn mun gráta árið 2016 lengi.

Sumir hafa list árinu 2016 sem “annus horri­bilis” (hræði­legu ári) í tón­list­ar­heim­inum vegna þeirra dauðs­falla sem hafa átt sér stað. Hér er ekki aðeins um vin­sæla tón­list­ar­menn að ræða heldur stór­merki­lega lista­menn sem hafa mótað sam­tíma sinn og jafn­vel haft áhrif langt út fyrir heim tón­list­ar­innar. Sem betur fer eru fáir þeirra í yngri kant­inum en flestir þeirra voru virkir í sköpun alveg fram undir það sein­asta. Hér eru stærstu nöfnin sem kvöddu okkur á árinu.

Þrjár risa­stjörnur lét­ust á árinu.

David Bowie

Þann 8. jan­úar kom Blackstar, 26. stúd­íó­plata David Bowie, út á 69. afmæl­is­degi hans. Platan þótti meist­ara­verk og ein af hans allra bestu á löngum og far­sælum ferli. Einungis tveimur dögum seinna var það til­kynnt að Bowie væri allur. Banamein hans var krabba­mein í lifur og það kom eins og þruma úr heið­skýru lofti fyrir aðdá­endur hans sem vissu ekk­ert af veik­ind­unum. Bowie hafði þó vitað þetta síðan um mitt ár 2014 en ákveðið að halda þessu frá almenn­ingi og meira að segja nánum vinum og sam­starfs­mönnum sínum. Margir sem unnu að Blackstar með honum vissu heldur ekki af veik­ind­unum. Bowie hafði misst allt hárið í lyfja­með­ferð en hann bar sig­það vel að fólk átt­aði sig ekki á alvar­leika máls­ins. Blackstar var ein­ungis önnur platan sem hann gaf út eftir að hann fékk hjarta­á­fall árið 2004.

Eftir áfallið hélt hann sig að miklu leyti til hlés og spil­aði sjaldan á tón­leikum. Hann lifði mun rólegra lífi og ein­beitti sér frekar að fjöl­skyld­unni. Engu að síður var hann ennþá lista­maður sem skipti máli og fólk tók eftir nýju efni frá honum. Bowie fer í sögu­bæk­urnar sem eitt af stóru nöfn­unum í tón­list­ar­sög­unni. Hann fylgdi tíð­ar­and­anum eins og kamelljón en var engu að síður öðru­vísi en allir aðrir. Hann bjó til per­sónur á borð við Ziggy Stardust og The Thin White Duke sem eru jafn lif­andi í okkar hugum og margar af þekkt­ustu per­sónum bók­mennt­anna. Tón­listin er ekki eina greinin sem missti því að Bowie mark­aði spor í öðrum greinum list­anna, s.s. mynd­list, kvik­myndum, leik­húsi, tísku o.fl.

Prince

Prince Rogers Nelson, betur þekktur sem Prince og stundum O(+>, fannst lát­inn í lyftu á heim­ili sínu þann 21. apríl, 57 ára gam­all. Heimili hans, Paisley Park, var einnig upp­töku­verið þar sem margar af hans þekkt­ustu plötum voru teknar upp og tón­leika­staður, stað­sett í bænum Chanhassen í útjaðri Minn­ea­polis borgar í Minnesota fylki. Seinna var það opin­berað að ofneysla fentanýls, sem er mor­fín­skylt lyf, hefði dregið hann til dauða. Prince hafði verið háður sterkum verkja­lyfjum lengi, jafn­vel um ára­tuga skeið, en fíknin versn­aði til muna eftir aðgerð á mjöðm árið 2008. Undir það síð­asta var hann far­inn að ganga við staf og tók allt að 80 pillur af verkja­lyfjum á dag. Hann vissi þó sjálfur að ástandið stefndi í óefni og hafði sam­band við lækni til að hjálpa sér að kom­ast yfir fíkn­ina. En það var of seint því dag­inn sem hann átti að fara í rann­sókn lést hann. Dauði Prince kom fólki í opna skjöldu en kveikti jafn­framt á umræð­unni um lækna­dóp. Talið er að meira en 150.000 Banda­ríkja­menn hafi dáið vegna ofneyslu lög­legra mor­fín­skyldra lyfja frá alda­mótum og því um eig­in­legan far­aldur að ræða. Eftir dauða Prince hafa þing­menn keppst við að lýsa því yfir að lög­gjöf­ina þurfi að laga til að takast á við þennan vanda, t.d. með með­ferð­ar­úr­ræðum og betri lyfjum.

Dauðs­fallið kom aðdá­endum Prince nokkuð í opna skjöldu. Fæstir vissu að um alvar­legt vanda­mál væri að ræða enda not­aði hann lyfin ekki sem afþr­ey­ingu heldur við kvölum. Prince var afkasta­mik­ill tón­list­ar­maður allt undir það síð­asta, bæði í útgáfu og í tón­leika­haldi. Vin­sældir hans voru þó ekki þær sömu og þær voru á níunda og tíunda ára­tugnum þegar hann var ein af stærstu popp­stjörnum heims. Prince verður minnst sem eins hæfi­leik­a­rík­asta og fjöl­hæf­asta tón­list­ar­manns sög­unnar. Hann gat spilað óað­finnan­elga á nán­ast hvaða hljóð­færi sem var, hann hafði ótrú­lega breitt radd­svið, hann atti saman flestum teg­undum tón­listar, og hann skil­aði því best af sér á svið­inu.

Leonard Cohen

Andlát hins 82 ára Leonard Cohen kom fólki ekki í opna skjöldu en það var engu að síður harmdauði. Cohen lést þann 7. nóv­em­ber á heim­ili sínu í Los Angeles. Hann hafði þjáðst af krabba­meini en talið er að hann hafði lát­ist eftir fall í svefni. Þrátt fyrir það að vera kom­inn á níræð­is­aldur og þjáður af veik­indum var hann enn virkur í tón­list. Einungis rúmum tveimur vikum áður kom út hans 14. Stúd­íó­plata, You Want It Darker, sem seld­ist vel og fékk mikið lof gagn­rýnenda. Cohen hefur vænt­an­lega vitað að hún yrði hans síð­asta og það skín í gegn í text­unum. Hann virð­ist þó hafa verið nokkuð sáttur við ævi­starf sitt og til­bú­inn að deyja því að þeir eru lausir við ang­ist og ótta. Hann hafði heldur ekki tapað húmornum og lífs­gleð­inni. Í við­tali við tíma­ritið The New Yorker skömmu áður sagði hann:

Ég er til­bú­inn að deyja. Ég vona að það verði ekki of óþægi­legt. Þetta er komið hjá mér.

Eftir að kunn­gjört var að Cohen væri allur setti tón­list­ar­heim­ur­inn upp sorg­ar­band. Justin Trudeau for­sæt­is­ráð­herra Kanada, heima­lands Cohen, vott­aði honum virð­ingu sína og full­yrti að heim­ur­inn myndi sakna hans. Cohen verður fyrst og fremst minnst sem laga­höf­undar og texta­smiðs enda kom hann úr heimi bók­mennta og ljóð­listar. Honum hefur margoft verið líkt við Nóbelskáldið Bob Dylan í því sam­hengi. Cohen sagð­ist sjálfur aldrei hafa elt tísku­straumanna í tón­list­inni heldur hefði umheim­ur­inn ann­ars lagið fallið að hans stefnu. Þá á hann við sín helstu vin­sæld­ar­skeið á árunum í kringum 1970 og svo aftur um miðjan níunda ára­tug­inn.

Fleiri merki­legir tón­list­ar­menn kvöddu.

George Michael

Mann­rétt­inda­fröm­uð­ur­inn og popp­söngv­ar­inn George Michael lést á jóla­dag árs­ins 2016, 53 ára að aldri. Hjarta­galli var bana­mein hans og kom and­lát hans mörgum, þá sér­stak­lega aðdá­endum hans, á óvart. Fjöldi fólks lagði leið sína að heim­ili Michael á jóla­dag til þess að votta söngv­ar­anum virð­ingu sína.

George Michael var einn af stofn­endum popp­hljóm­sveit­ar­innar Wham! á níunda ára­tug síð­ustu aldar sem gerði mörg lög vin­sæl. Eftir að sóloverk­efni Michael fóru að taka meiri og meiri tíma hætti Wham! og hann snéri sér alfarið að eigin verk­efnum.

Michael var sam­kyn­hneigður og lagði mikið til mann­rétt­inda­bar­áttu sam­kyn­heigðra á sinni lífs­leið. Michael við­ur­kenndi ekki kyn­heigð sína að fullu fyrr en árið 1998 þegar hann var 34 ára og hafði verið hand­tek­inn fyrir það sem kallað var „ósæmi­legt athæfi“ á kló­setti í Los Angeles. Hann sagði síðar að hann hefði eflaust orðið ham­ingju­sam­ari maður ef hann hafði getað opin­berað kyn­heigð sína þegar hann var 19 ára; þegar hann kom út úr skápnum gagn­vart vinum sínum.

(Greinin birt­ist fyrst 16. des­em­ber síð­ast­lið­inn. George Michael var bætt við í umfjöll­un­ina af Rit­stjórn Kjarnans)

Keith Emerson og Greg Lake

Tveir af með­limum bresku hljóm­sveit­innar ELP (Emerson, Lake & Palmer) lét­ust á árinu. ELP var ein af vin­sæl­ustu og áhrifa­mestu rokk­hljóm­sveitum átt­unda ára­tug­ar­ins. Á níunda ára­tugnum fóru þeir allir í mis­mun­andi áttir en komu svo stutt­lega aftur saman í byrjun tíunda ára­tugs­ins. ELP-liðar voru nokkuð frá­brugðnir öðrum tón­list­ar­mönnum á sínum tíma. Þeir skeyttu saman ýmsum tón­list­ar­stefnum og voru fremur undir áhrifum klass­ískrar tón­listar en rokks og blús. Hljóm­borðs­leikur Emerson var horn­steinn­inn í tón­list­inni en ekki gít­ar­leik­ur­inn. Lögin voru löng og mik­ill tími fór í að sýna fram á yfir­burða færni þeirra sem hljóð­færa­leik­ara. En þeir voru svo heppnir að átt­undi ára­tug­ur­inn var einmitt það skeið í tón­list­ar­sög­unni þar sem tón­list á borð við þeirra gat notið svo mik­illa vin­sælda.

Keith Emerson (71) framdi sjálfs­víg með byssu þann 11. mars á heim­ili sínu í Santa Monica í Kali­forníu. Hann hafði verið þung­lyndur lengi og átt við áfeng­is­vanda­mál að stríða.

Gít­ar­leik­ar­inn Greg Lake (69) lést 7. des­em­ber í Lundúnum úr krabba­meini. Lake hafði barist við sjúk­dóm­inn í langan tíma.

Merle Haggard

Country-goð­sögnin og harð­jaxl­inn Merle Haggard féll frá þann 6. apríl á heim­ili sínu í Palo Cedro í Kali­forníu. Haggard var 79 ára gam­all og hafði verið heilsu­veill lengi. Árið 2008 greind­ist hann með lungna­krabba­mein og und­ir­gekkst stóra aðgerð. Hann hélt þó áfram að taka upp plötur og spila á tón­leikum eftir það. Það sem dróg hann loks til dauða var lungna­bólga. Haggard var síbrota­maður á unga aldri og sat lengi inni en sló í gegn í country-tón­list um miðjan sjö­unda ára­tug­inn. Hann spil­aði country af gamla skól­anum, laust við allt glys og glamúr, og höfð­aði mikið til verka­manna­stétt­ar­innar. Hann söng mikið um föð­ur­land sitt og íhalds­söm gildi og varð fyrir vikið and­stæð­ingur hipp­anna.

Þetta fleytti honum áfram og hann náði mörgum lögum inn á vin­sælda­lista. Þekktasta lagið var Okie from Muskogee sem íslenska hljóm­sveitin Ðe lónlí blú bojs flutti sem Það blanda allir landa upp til stranda. Á seinni árum sett­ist hann á bekk með Johnny Cash, Willie Nelson og fleirum í hinni svoköll­uðu útlaga­hreyf­ingu sem hafn­aði aðgengi­legri country-tón­list sam­tím­ans en leit fremur aftur til for­tíðar. Haggard var manna háværastur í þeim hópi. En pirr­ing­ur­inn og tuðið var ekki end­ur­goldið því að innan country-geirans er hann almennt tal­inn einn af fremstu tón­skáldum og flytj­endum frá upp­hafi.

Leon Russell

Þann 13. nóv­em­ber lést hinn 74 ára Leon Russell á heim­ili sínu í Mt. Juliet í Tennessee. Hann lést í svefni eftir mikil hjarta­veik­indi og erf­ið­leika eftir skurð­að­gerð. Hinn lit­ríki Russel náði nokkrum vin­sældum á átt­unda ára­tugnum sem sólólista­maður en áhrif hans á aðra tón­list­ar­menn voru alltaf langt um meiri. Russell spil­aði á hljóm­borð og píanó með hljóm­sveit­inni The Wrecking Crew á sjö­unda ára­tugnum. Það var sam­an­safn afburða­færra tón­list­ar­manna sem spil­uðu inn á plötur fyrir aðra. Hljóm­sveitin spil­aði inn á ótal þekktar plötur, t.d. fyrir The Rolling Stones, The Beach Boys, The Byrds, Frank og Nancy Sinatra, Ike og Tinu Turner, Sonny og Cher og ótal marga aðra. Með hljóm­sveit­inni lærði hann að spila nán­ast hvaða gerð af tón­list sem var, allt frá gospel til brim­brett­arokks. Eftir að hljóm­sveitin hætti og Russell fór að semja eigið efni þá hélt hann áfram að semja fyrir og vinna með öðrum. Hann samdi lög fyrir og vann náið með B.B. King, Tom Jones, The Carpenters, Joe Cocker, Bob Dylan og Elton John. Allir sem unnu með honum báru honum góða sög­una og töldu hann hafa haft mikil áhrif á feril sinn. Russell fer í bæk­urnar sem ein óeig­in­gjarn­asta stjarna sög­unnar.

Stór nöfn úr tón­list­ar­iðn­að­inum kvöddu einnig.

Upp­töku­stjór­inn George Martin lést frið­sam­lega í svefni á heim­ili sínu í Englandi, níræður að aldri, þann 8. mars. Martin var oft kall­aður “fimmti bít­ill­inn” enda fram­leiddi hann allar Bítla­plöt­urnar nema þá síð­ustu, Let It Be. Hann hjálp­aði og leið­beindi Bítlunum í gegnum allan fer­il­inn og hafði mikil áhrif á útsetn­ingar laga þeirra, t.d. Yester­day og Eleanor Rigby. Hann spil­aði einnig sjálfur á píanó í nokkrum lögum. Martin vann með fjöl­mörgum öðrum lista­mönnum og útsetti t.d. tón­list­ina fyrir fyrstu James Bond kvik­mynd­irnar en nafn hans verður ávallt nefnt í sömu andrá og Bítlanna.

Hinn 2. sept­em­ber lést umboðs­mað­ur­inn Jerry Heller úr hjarta­á­falli í Los Angeles. Heller, sem var 75 ára, var einn af helstu áhrifa­mönnum í upp­gangi rapptón­listar á níunda og tíunda ára­tugnum. Hann stofn­aði útgáfu­fyr­ir­tækið Ruthless Records árið 1987 ásamt Eazy-E, for­sprakka hljóm­sveit­ar­innar N.W.A., og saman seldu þeir yfir 100 millj­ónir platna. Hann var umdeildur en eitt er víst, þ.e. að bófarapp hefði ekki verið samt án Jerry Heller.

Útgef­and­inn Phil Chess lést þann 18. októ­ber á heim­ili sínu í Tuczon í Arizóna fylki, 95 ára að aldri. Phil og Leonard bróðir hans (sem lést árið 1969) ráku saman djass­klúbba á fjórða og fimmta ára­tugnum í Chicago. Árið 1947 keyptu þeir útgáfu­fyr­ir­tæki sem þeir end­ur­nefndu Chess Records og ein­beittu sér að blús og r&b tón­list. Útgáfan varð ákaf­lega mik­il­væg fyrir tón­list­ar­grein­ina í 20 ár og mætti segja að hún hafi verið eins konar stofnun í sjálfu sér. Lista­menn á borð við Chuck Berry, Muddy Waters, Etta James, Johnny Lee Hooker og The Rolling Stones tóku upp í hljóð­veri Chess bræðra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2016

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár