Fleiri börn en fullorðnir búa við fátækt

Ísland er eina landið á Norð­ur­lönd­unum þar sem fleiri börn en full­orðnir búa við fátækt. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Barna­heill – Save the Children um fátækt barna og tengsl bágs efna­hags við skort á tæki­færum og menntun.

Ellefu pró­sent full­orð­inna á Íslandi eiga á hættu að búa við fátækt eða félags­lega ein­angrun, en fjórtán pró­sent barna. Það eru um ell­efu þús­und börn, og frá árinu 2008 hefur lít­ill árangur náðst í að upp­ræta fátækt meðal barna á Íslandi, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Í Evrópu utan Norð­ur­land­anna er það einnig þannig að fleiri börn en full­orðnir búa við fátækt. Skortur á menntun er einn helsti áhættu­þáttur fátækta, en með­al­tal brott­falls úr námi er ell­efu pró­sent. Markmið er að ná þessu hlut­falli niður í tíu pró­sent, en ell­efu lönd, þar á meðal Ísland, eru mjög langt frá því. Á Íslandi er brott­fall 18,8%. Miðað við þró­un­ina hér á landi mun brott­fall ekki fara niður í 10 pró­sent fyrr en árið 2030.

Í öllum Evr­ópu­ríkjum, nema Íslandi, eru 30 til 80 pró­sent meiri líkur á því að börn búi við fátækt ef for­eldrar þeirra hafa litla menntun. Á Íslandi eru lík­urnar hins vegar 18%. Á Íslandi eiga svo 15% þeirra sem eru á vinnu­mark­aði á hættu að búa við fátækt, en það er hærra hlut­fall en með­al­tal Evrópu.

Barna­heill skora á stjórn­völd að tryggja gjald­frjálsa gæða­menntun fyrir öll börn, minnka brott­fall úr skólum og styrkja mennta- og vel­ferð­ar­kerfið ásamt beinum inn­gripum fyrir börn sem eiga við erf­ið­leika að etja. Þá vilja Barna­heill að stjórn­völd tryggi aðgang allra barna að tóm­stundum, listum og skemmt­unum, að öll börn geti vænst þess að hafa tæki­færi til mennt­unar, heilsu og lífs­fyll­ingar og ekk­ert barn muni búa við fátækt. Samtökin vilja að stjórn­völd lengi fæð­ing­ar­or­lof og tryggi að öll börn geti farið í námsum­hverfi á vegum sveit­ar­fé­laga þegar fæð­ing­ar­or­lofi lýkur, og að fjár­fest­ing í börnum sé höfð að leið­ar­ljósi í fjár­laga­gerð á öllum stjórn­sýslu­stigum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár