Segja rannsókn á aðkomu Hauck&Aufhäuser undarlega og byggja á dylgjum

Ólafur Ólafsson var einn þeirra sem leiddi S-hópinn.
Ólafur Ólafsson var einn þeirra sem leiddi S-hóp­inn. Mynd: RÚV/Skjáskot.

Lögmaður Ólafs Ólafs­sonar og Guð­mundar Hjalta­sonar segir að allt í kringum rann­sókn­ar­ferlið á aðkomu þýska bank­ans Hauck&Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­anum á sínum tíma sé „und­ar­legt, for­dæma­laust og byggt á órök­studdum dylgjum.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem lög­mað­ur­inn, Gísli Guðni Hall, sendi til fjöl­miðla í dag fyrir hönd umbjóð­enda sinna. Þeir hafa báðir verið kall­aðir fyrir sem vitni vegna rann­sókn­ar­innar.

Til­kynn­ingin er send vegna frétta­flutn­ings um fram­lagn­ingu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að frestur rann­sókn­ar­nefndar um þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á 45,8 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf., verði fram­lengd­ur. Kjarninn greindi frá til­lög­unni í gær­kvöldi. Í skýrslu nefnd­ar­innar um fram­gang rann­sókn­ar­innar til þings­ins, sem skilað var 8. des­em­ber, er lagt til frestur til að skila skýrslu verði ekki fyrir 31. des­em­ber næst­kom­andi heldur frekar eins fljótt og verða má. Ástæðan fyrir frest­un­inni er vitni sem boð­uðu höfðu verði til skýrslu­töku 11. nóv­em­ber 2016 höfn­uðu því að mæta. Vitnin eru Ólafur Ólafsson og Guð­mundur Hjalta­son. Í ljósi þessa óskaði nefndi eftir því að vitnin tvö yrðu kvödd fyrir hér­aðs­dóm sem vitni til þess að svara spurn­ingum um rann­sókn­ina.

Í grein­ar­gerð­inni segir að við­brögð vitn­anna við óskum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar um upp­lýs­ingar hafa leitt til þess að tafir hafa orðið á störfum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar og fyr­ir­sjá­an­legt er að nefnd­inni mun ekki takast að ljúka rann­sókn­inni innan þeirra tíma­marka sem ákveðin eru í ályktun Alþing­is. Henni átti áður að ljúka fyrir árs­lok.

Í til­kynn­ingu lög­manns mann­anna tveggja segir að Ólafur og Guð­mundur hafi nýtt sér rétt sinn til að mæta frekar fyrir dóm­ara en til skýrslu­gjafar hjá rann­sókn­ar­nefnd­inni, sam­kvæmt heim­ild­ar­á­kvæði í lögum um rann­sókn­ar­nefndir Alþingis. Þeir hafi síðan mætt til hér­aðs­dóms sam­kvæmt boð­unum. „Við fyr­ir­töku máls­ins lögðu þeir fram skrif­lega bókun, þar sem þeir kröfð­ust úrskurðar dóm­ara um hvort lög­mætt til­efni hafi verið til skip­unar nefnd­ar­innar. Þeir benda m.a. á að eft­ir­lit Alþingis taki til fram­kvæmda­valds­ins, en ekki lög­skipta ein­stak­linga af einka­rétt­ar­legum toga. Ekki fái heldur stað­ist að þegar mál sem varða ein­stak­linga eru fyrnd, og þar af leið­andi ekki skil­yrði til rann­sóknar þeirra sam­kvæmt almennum reglum, að þá ákveði þing­menn, á póli­tískum for­sendum, að skipa rann­sókn­ar­nefnd í stað­inn. Allt í kringum þetta rann­sókn­ar­ferli er und­ar­legt, for­dæma­laust og byggt á órök­studdum dylgjum. Nánari rök­semdir Ólafs og Guð­mundar hafa verið færðar fram fyrir hér­aðs­dómi og er úrskurðar að vænta fljót­lega.“

Bún­­­að­­­ar­­­bank­inn var seldur til svo­nefnds S-hóps­ 16. j­an­úar 2003. Hópurinn var leiddur af þeim Ólafi Ólafs­syni og Finni Ing­ólfs­syni, fyrr­ver­andi vara­for­manni og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Aðrir lyk­il­menn í hópnum voru Kristján Loftsson, oft­ast kenndur við Hval, Margeir Dan­í­els­son, Jón Helgi Guð­munds­son, oft­ast kenndur við Byko, og lög­mað­ur­inn Kristinn Hall­gríms­son.

Aðkoma Hauck & Auf­hauser að kaup­unum var þannig að bank­inn keypti hlut í félag­inu Eglu, sem Ólafur átti einnig í, og var eitt þeirra sem keypti hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Guð­mundur var fram­kvæmda­stjóri Eglu. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­að­ar­banka, var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­arra aðila innan S-hóps­ins.

Um tveimur mán­uðum eftir að S-hóp­­­ur­inn keypti Bún­­­að­­­ar­­­bank­ann hófust við­ræður um að sam­eina hann og Kaup­­­þing. Eftir að sú sam­ein­ing gekk í gegn varð sam­ein­aður banki stærsti banki lands­ins og hóp­­­ur­inn sem stýrð­i honum gerði það þangað til að hann féll í októ­ber 2008, og skráði sig á spjöld ­sög­unnar sem eitt stærsta gjald­­­þrot sem orðið hef­­­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár