Lagt til að frestur til að skila Hauck&Aufhäuser-skýrslu verði lengdur

Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson leiddu S-hópinn svokallaða. Mikil áhersla var lögð á aðkomu erlends banka að kaupunum og reyndist sá á endanum vera Hauck & Aufhäuser. Það hefur lengi verið tortryggt hvort sú aðkoma hafi verið raunveruleg.
Finnur Ing­ólfs­son og Ólafur Ólafsson leiddu S-hóp­inn svo­kall­aða. Mikil áhersla var lögð á aðkomu erlends banka að kaup­unum og reynd­ist sá á end­anum vera Hauck & Auf­häuser. Það hefur lengi verið tor­tryggt hvort sú aðkoma hafi verið raun­veru­leg. Mynd: Skjáskot af frétt Morgunblaðsins.

Lagt er til í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu, sem komin er fram á Alþingi, að frestur rann­sókn­ar­nefndar um þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í kaupum á 45,8% eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf., verði fram­lengdur.

Í skýrslu nefnd­ar­innar um fram­gang rann­sókn­ar­innar til þings­ins, sem skilað var 8. des­em­ber, er lagt til frestur til að skila skýrslu verði ekki fyrir 31. des­em­ber næst­kom­andi heldur frekar eins fljótt og verða má.

Alþingi ályktaði 2. júní 2016, í sam­ræmi við ákvæði laga um rann­sókn­ar­nefndir, að fram skyldi fara rann­sókn á þátt­töku þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers KGaA í kaupum á 45,8% eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands hf. Samkvæmt álykt­un­inni skyldi rann­sókn­inni ljúka svo fljótt sem verða mátti og eigi síðar en 31. des­em­ber 2016. Til þess að ann­ast rann­sókn­ina skip­aði for­seti Alþingis, að höfðu sam­ráði við for­sætis­nefnd og stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, Kjartan Bjarna Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ara.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar til for­seta Alþingis, dags. 8. des­em­ber 2016 er gerð grein fyrir fram­gangi rann­sókn­ar­innar, að því er segir í grein­ar­gerð með þings­á­ly­kunt­ar­til­lög­unni.

Kemur þar fram að nefndin hafði ráð­gert, sem loka­þátt í rann­sókn sinni, að boða til­greind vitni til skýrslu­töku 11. nóv­em­ber 2016. Þegar kom í ljós að þau höfn­uðu slíku, eins og áður hefur verið greint frá, óskaði nefndin eftir því, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga um rann­sókn­ar­nefndir, að þau yrðu kvödd fyrir hér­aðs­dóm sem vitni til þess að svara spurn­ingum um rann­sókn­ina.

Viðbrögð vitn­anna við óskum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar um upp­lýs­ingar hafa leitt til þess að tafir hafa orðið á störfum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar og fyr­ir­sjá­an­legt er að nefnd­inni mun ekki takast að ljúka rann­sókn­inni innan þeirra tíma­marka sem ákveðin eru í ályktun Alþingis, segir í grein­ar­gerð­inni.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar um fram­gang rann­sókn­ar­innar er talið æski­legt að frest­ur­inn, sem nefnd­inni var veittur til að skila skýrslu sinni, verði fram­lengdur, enda yrði að öðrum kosti við­búið að látið yrði reyna enn frekar á umboð og heim­ildir nefnd­ar­innar fyrir dóm­stólum ef skýrslu verður ekki skilað fyrir 31. des­em­ber nk.

Bún­­að­­ar­­bank­inn var seldur til svo­nefnds S-hóps­ 16. j­an­úar 2003. Einka­væð­ing­­ar­­nefnd fékk fyrst að vita nafn erlenda bank­ans ­sem tók þátt í kaup­unum viku áður. Sá banki var þýski sveita­­bank­inn Hauck & Auf­hauser. Hann var aldrei nefndur á nafn í fund­­ar­­gerðum einka­væð­ing­­ar­­nefnd­­ar.

Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­­­ar­­banka, var bank­inn búinn að ­selja hann allan til ann­­arra aðila innan S-hóps­ins.

Um tveimur mán­uðum eftir að S-hóp­­ur­inn keypti Bún­­að­­ar­­bank­ann hófust við­ræður um að sam­eina hann og Kaup­­þing. Eftir að sú sam­ein­ing gekk í gegn varð sam­ein­aður banki stærsti banki lands­ins og hóp­­ur­inn sem stýrð­i honum gerði það þangað til að hann féll í októ­ber 2008, og skráði sig á spjöld ­sög­unnar sem eitt stærsta gjald­­þrot sem orðið hef­­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár