Meintu vanhæfi dómara til að annast skýrslutöku hafnað

Hæstirétt­ur stað­festi í gær úr­sk­urð Hér­aðs­dóms Reykja­vík­ur þar sem hafnað var kröf­um um að Ásmund­ur Helga­son hér­aðs­dóm­ari viki sæti í tengsl­um við rann­sókn rann­sókn­ar­nefnd­ar Alþing­is á kaup­um þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser Pri­vat­banki­ers á 45,8 pró­sent eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands árið 2003.

Rann­sókn­ar­nefnd­in var skipuð í sum­ar eftir að Umboðs­maður Alþingis, Tryggvi Gunn­ars­son, sagði að nýjar upp­lýs­ingar væru komnar fram um við­skiptin. Þessar upp­lýs­ingar varpa skýr­ari ljósi á það að aðkoma fyrr­nefnda bank­a að kaup­un­um hafi ekki verið sú sem full­yrt var þegar gengið var frá sölu rík­is­ins á eign­ar­hlutnum.

Tryggvi send­i ­stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd Alþingis bréf þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­­sókn­­ar­­nefnd um mál­ið. Snýst málið meðal ann­ars um að upp­lýsa hvort Kaup­þingi hafi í raun fjár­magnað kaupin, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Þrír varn­arað­ilar í mál­inu neit­uðu að koma fyr­ir rann­sókn­ar­nefnd­ina nema Ásmund­ur viki fyrst úr henni þar sem meint van­hæfi hans var sagt lút að því, að hann væri dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­vík­ur líkt og Kjart­an Bjarni Björg­vins­son sem Ein­ar K. Guðfinns­son, for­seti Alþing­is, skip­aði í sum­ar til þess að stýra rann­sókn­ar­nefnd­inni.

Hlut­ur­inn í Bún­að­ar­bank­an­um var seld­ur til fjár­fest­inga­hóps sem kall­aði sig S-hóp­inn en einn af for­ystu­mönn­um hans var Ólaf­ur Ólafs­son kaup­sýslu­maður, sem var eig­andi 10 pró­sent eign­ar­hlutar í Kaup­þingi þegar hann féll haustið 2008. Ólafur hlaut fjög­urra og hálfs árs fang­els­is­dóm vegna Al-Thani máls­ins.

Rann­­sóknin bein­ist sér­­stak­­lega að hlut þýska einka­­bank­ans Hauck & Auf­häuser, eins og áður sagði, að kaupum S-hóps­ins á Bún­­að­­ar­­bank­­anum í byrjun árs 2003.

Ólaf­ur, sem er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Eglu sem var hluti S-hóps­ins svo­kall­aða, ásamt Guðmundi Hjalta­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra fé­lags­ins, eru tveir af þremur sem fóru fram á að Ásmundur myndi víkja til hliðar í mál­inu.

Í dómi Hæsta­réttar segir að ekki verði fall­ist á van­hæf­is­á­stæður þeirra sem halda þeim uppi, og var nið­ur­staða hér­aðs­dóms því stað­fest. „Mál þetta er rekið á grund­velli sér­laga nr. 68/2011, um rann­sókn­ar­nefndir. Einungis er óskað atbeina dóm­ara til að vitnið gefi skýrslu fyrir dómi um þau atvik sem rann­sóknin sem Alþingi hefur ályktað að fram skuli fara, þar sem sókn­ar­að­ili telur að skil­yrðum 2. mgr. 8. gr. fyrr­greindra laga sé full­nægt. Dómara er ein­ungis ætlað að stýra þeirri skýrslu­töku en kemur ekki að rann­sókn­inni að öðru leyti. Kjartan Bjarni Björg­vins­son er skip­aður hér­aðs­dóm­ari við sama dóm­stól og und­ir­rit­aður hér­aðs­dóm­ari. Honum hefur verið falið af for­seta Alþingis á grund­velli laga nr. 68/2011 að stýra umræddri rann­sókn. Hann á hins vegar enga hags­muni tengda nið­ur­stöðu þeirrar rann­sóknar. Að teknu til­liti til þess sem hér hefur verið rakið er það nið­ur­staða dóm­ara að ekki séu fyrir hendi atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlut­drægni und­ir­rit­aðs dóm­ara með réttu í efa, sbr. g-lið 1. mgr. 6. gr. laga nr. 88/2008. Kröfu vitn­is­ins um að dóm­ar­inn víki sæti er því hafnað,“ segir í nið­ur­stöðu Hæsta­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár