Olíuverð rýkur upp

Heims­mark­aðs­verð á olíu hækk­aði hratt þegar opnað var fyrir við­skipti á mark­aði í morgun. Fram­virkt verð á hrá­ol­íu­t­unn­inni á mark­aði í Banda­ríkj­unum, hækk­aði um tæp­lega 5 pró­sent, og kostar tunnan nú tæp­lega 54 Banda­ríkja­dali.

Samkvæmt fréttum Bloomberg er margir fjár­festar nú ráð fyrir að tunnan fari í 60 Banda­ríkja­dali áður en langt um líður. Ástæðan er sú að olíu­fram­leiðslu­ríki hafa náð saman um að draga úr fram­leiðslu, sem svo leiðir til minna fram­boðs á mark­aði.

Olíuverð hefur farið hækk­andi að und­an­förnu, en það náði lág­punkti í febr­úar þegar tunnan kost­aði 26 Banda­ríkja­dali. Rúmlega ári fyrr kost­aði tunnan 110 Banda­ríkjdali, og hefur olíu­verð því sveifl­ast mikið.

Ell­efu olíu­fram­leiðslu­ríki, sem eru ekki aðilar að OPEC, sam­tök­um olíu­fram­leiðslu­ríkja, hafa sam­þykkt að feta í fót­spor OPEC ríkja og minnka olíu­fram­leiðslu sína til þess að ýta und­ir olíu­verð.

Rík­in greindu frá því í gær að þau myndu minnka fram­leiðsl­una um 558 þús­und tunn­ur á dag.

Opec greindi frá því í síð­asta mán­uði að aðild­ar­rík­in myndu minnka olíu­fram­leiðslu og er þetta í fyrsta skiptið í fimmtán ár sem sam­komu­lag næst milli ríkj­anna um fram­leiðslu.

Opec-rík­in segj­ast ætla að minnka fram­leiðsl­una um 1,2 millj­ón­ir tunna á dag og hefst það fyr­ir­komu­lag í janú­ar.

Meðal þeirra ríkja sem eru eru ekki í Opec eru Rúss­land, Azer­baij­an, Oman, Mexí­kó, Malasía, Súd­an, Suður-Súd­an og Barein.

Áhrifa­­­mesta ríkið innan OPEC er Sá­dí-­­­Ar­a­b­ía, en til sam­tak­anna til­­­heyra fjórtán olíu­­­fram­­­leiðslu­­­rík­­i. Auk Sádí-­­­Ar­a­bíu eru það Alsír, Angóla, Ekvador, Gabon, Indónesía, Íran, Írak, Kúveit, Líbía, Katar, Níger­ía, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­­­dæm­in, og Venes­ú­ela. ­Saman standa ríkin undir meira en 33 pró­­­sent af heims­fram­­­leiðsl­unni.

Ísland hefur notið góðs af lágu olíu­verði þar sem það hefur haldið niðri verð­bólgu­þrýst­ingi erlendis frá. Verð­bólga mælist nú 2,1 pró­sent en hún hefur hald­ist fyrir neðan 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið í næstum þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár