Fyrstu áfangarnir í loftslagsmálum borgarinnar klárast um áramót

Reykja­vík­ur­borg kynnti stöðu lofts­lags­mála í Ráð­hús­inu í gær. Árlegur fundur verður hald­inn til þess að gera grein fyrir árangrinum sem náðst hefur í lofts­lags­málum.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skipu­lags og und­ir­bún­ings­ferli lofts­lags­að­gerða Reykja­vík­ur­borgar fer senn að ljúka og við tekur fram­kvæmda­ferli í þessum mála­flokki þar sem stefnu­mörk­un­inni verður hrint í fram­kvæmd. Sér­stakur kynn­ingar- og upp­lýs­inga­fundur var hald­inn í Ráðhúsi Reykja­víkur í gær­morgun þar sem staðan í lofts­lags­málum borg­ar­innar var útli­stuð.

„Við erum að vinna á mjög mörgum sviðum. Nú erum við búin að skil­greina hvaða svið borg­ar­innar og hvaða sam­starfs­að­ilar bera ábyrgð á hverju verk­efni fyrir sig,“ segir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í sam­tali við Kjarnann. Búið sé að leggja inn­leið­ing­ar­á­ætlun fyrir borg­ar­ráð og nú fari ýmis verk­efni að rúlla af stað. „Sum þeirra eru með skila­fresti í lok þessa árs, til dæmis áætlun um end­ur­heimt vot­lendis og aðgerða­á­ætlun varð­andi mat­ar­sóun. Þessir áfangar eru að nást.“

Borgin leikur stóran þátt í aðgerðum Íslend­inga til þess að stemma stigu við hlýnun lofts­lags á jörð­inni. Reykja­vík er stærsta sveit­ar­fé­lagið á land­inu og sinnir sorp­hirðu, rekur stóra vinnu­staði og hefur umsjón með stóru gatna­kerfi og almenn­ings­sam­göngum svo fátt eitt sé nefnt. Allt eru þetta mik­il­vægar víg­línur þegar kemur að lofts­lags­málum.

Bæj­ar­stjórar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­rit­uðu sam­komu­lag í gær sem felur í sér að farið verið í við­ræður við inn­an­rík­is­ráðu­neytið, fjár­mála­ráðu­neytið og Vega­gerð­ina um form­legt sam­starf um fjár­mögnun og laga­breyt­ingar sem þarf til þess að Borg­ar­lína verði að veru­leika. Kjarninn fjall­aði um und­ir­ritun bæj­ar­stjór­anna í gær.

„Við erum að leysa stærri hluta sam­göngu­þarfar­innar til fram­tíðar með öfl­ugri almenn­ings­sam­göng­um. Til þess erum við bæði að bæta Strætó en við þurfum líka afkasta­meiri hágæða almenn­ings­sam­göngur á stöðum þar sem margir búa,“ segir Dag­ur.

Skipu­lags­mál og þétt­ing byggðar er einnig ofar­lega í huga Dags þegar hann þylur upp þau verk­efni sem skipta hvað mestu máli. Hann segir að þessi mála­flokkur sé lyk­il­at­riði ef sá árangur á að nást sem sveit­ar­stjórn­ar­menn vilji. „Þar eru að detta inn deiliskipu­lags­á­ætl­anir í hverjum mán­uði. Við erum síðan að vinna að orku­skiptum í sam­göngum. Sumt af því eru skamm­tíma­mál, annað eru lang­tíma­mál.“

Árlegt stöðumat

Ætlunin er að halda svip­aðan fund og í gær að ári og gera þennan við­burð árlegan. Þar á að útlista þann árangur sem náðst hefur í lofts­lags­málum í borg­inni og skapa eins­konar mæla­borð fyrir árang­ur­inn. „Það sem við vorum að gera hérna í dag er að setja niður árlegan fund þar sem við gerum grein fyrir áföng­unum á hverju ári. Því að mér finnst svo­lítið mik­il­vægt að þetta séu ekki bara áætl­anir og áform heldur raun­veru­leg verk­efni,“ segir Dagur. Mik­il­vægt sé að geta mælt árang­ur­inn, svo álykt­anir verði ekki dregnar af til­finn­ingu einni.

„Þannig að við teljum þá raf­bíl­ana, við teljum hleðslu­stöðv­arnar, við teljum Strætófar­þeg­ana, við teljum sér­flokk­aða plastið, við teljum papp­ír­inn. Við fylgj­umst með þessu og búum til mæla­borð fyrir árang­ur­inn þannig að það sé ekki bara talað út frá til­finn­ingu; að við höldum að þetta sé að ganga nokkuð vel.“

Þessi fundur í ráð­hús­inu var ekki aðeins hald­inn af Reykja­vík­ur­borg heldur einnig Festu, sam­taka fyr­ir­tækja í borg­inni um sam­fé­lags­á­byrgð. Festa hefur sleg­ist í för með borg­inni í tengslum við lofts­lags­málin og fyr­ir­tækin sem þar starfa saman und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um að taka fullan þátt í lofts­lags­að­gerðum borg­ar­innar.

Dagur segir mik­il­vægt að allir vinni saman í þessum mála­flokki því vitað er að ef mál­unum er ekki fylgt fast eftir þá verði ekki hægt að ná árangri. „Þess vegna erum við að taka þetta svona föstum tökum og fá öll þessi fyr­ir­tæki með okkur og fá önnur sveit­ar­fé­lög með okkur. Og síð­ast en ekki síst að fá gras­rót fólks með okkur; heim­ilin í land­inu, skól­ana og fólk sem brennur fyrir því að Reykja­vík verði græn,“ segir hann.

„Þess vegna er þessi fundur. Þess vegna er þetta ekki bara ein ákvörðun eða áætlun heldur heljar mikið ferli þar sem við þurfum að veita okkur sjálfum aðhald með að þessir hlutir ger­ist raun­veru­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftsagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár