Tími ákvarðana í almenningssamgöngum er „svolítið núna“

Borg­ar­lína er eitt af meg­in­verk­efn­unum í borg­ar­skipu­lag­inu, segir borg­ar­stjóri. Þessi stefnu­mörkun sparar bæði pen­inga og opnar fleiri sam­göngu­tæki­færi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­ir­rita vilja­yf­ir­lýs­ingu um að standa saman að fyrstu skrefum í upp­bygg­ingu borg­ar­línu í dag. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir verk­efnið geta leyst stærri hluta sam­göngu­þarfar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins til fram­tíðar. Íbúa­fjölda­spár gera ráð fyrir mik­illi fólks­fjölgun á svæð­inu á næstu árum og ára­tugum.

„Þetta er eitt af meg­in­verk­efn­unum í borg­ar­skipu­lag­inu,“ segir Dagur í sam­tali við Kjarnann. Hann flutti erindi á lofts­lags­mála­fundi í Ráðhúsi Reykja­víkur í morgun þar sem staða lofts­lags­verk­efna Reykja­vík­ur­borgar var kynnt. Almenn­ings­sam­göngur og þróun þeirra er stór þáttur í þeim mála­flokki enda er ætl­unin að hún komi sums staðar í stað einka­bíls­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Við erum að leysa stærri hluta sam­göngu­þarfar­innar til fram­tíðar með öfl­ugri almenn­ings­sam­göngum. Til þess erum við bæði að bæta Strætó en við þurfum líka afkasta­meiri hágæða almenn­ings­sam­göngur á stöðum þar sem margir búa,“ segir Dagur.

Í nán­ustu fram­tíð er gert ráð fyrir að koma á fót hrað­vagna­kerfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og byrja á að reisa tvær æðar um höf­uð­borg­ar­svæðið. Í fram­haldi af því verði hægt að huga að létt­lest­ar­kerfi innan borg­ar­markanna, sem er mun tíma­frekara verk­efni í fram­kvæmd.

Hrað­vagna­kerfi er í reynd næsta skref fyrir ofan stræt­is­vagna í borg­ar­skipu­lags­fræðum og almenn­ings­sam­göngum. Hrað­vagn­arnir hafa alveg sér­stakar akreinar eða götur fyrir sig og mynda kjarna umferð­ar­æða. Utan við þennan kjarna leggj­ast svo götur fyrir almenna umferð og hjólandi eða gang­andi veg­far­endur. Samhliða stofnun hrað­vagna­kerfis verður stræt­is­vagna­kerfið eflt með því að vísa því dýpra inn í íbúða­hverfin og tengja þau við hrað­vagna­æðar.

„Við erum að vinna að því núna að velja leið­irnar og skil­greina fyrstu áfang­ana. Maður getur ímyndað sér að til langrar fram­tíðar þá beri höf­uð­borg­ar­svæðið um það bil 40 kíló­metra af hágæða almenn­ings­sam­göngum en [núna] við erum kannski að tala um fyrstu 10 til 20 kíló­metrana; kannski tvær meg­in­leiðir, ein frá norðri til suður og önnur frá austri til vest­urs,“ segir Dagur.

„Við erum að ná saman í dag yfir­lýs­ingu sveit­ar­fé­lag­anna um að fara saman í þetta og setj­ast niður með rík­inu – inn­an­rík­is­ráðu­neyti, fjár­mála­ráðu­neyti og Vega­gerð­inni – til að tryggja aðkomu þess og nauð­syn­legar laga­breyt­ingar.“

36 mánuði að setja upp hraðvagnakerfi

Spurður hvenær gert er ráð fyrir að fyrstu kíló­metr­arnir verði lagðir í hrað­vagna­kerfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir Dagur að tím­inn til ákvarð­ana sé „svo­lítið núna“. ?„Við viljum gera það sem allra fyrst. Vegna þess að við sjáum það bæði á aukn­ingu í umferð og þeirri upp­bygg­ingu sem er framundan að við þurfum að mæta henni með nýrri hugsun í sam­göngum. Þær þjóðir sem hafa farið hrað­ast í þetta hafa náð að setja upp hrað­vagna­kerfi á 36 mán­uðum frá því að ákvörð­unin er tekin. Ef að við myndum ákveða að fara í létt­lest­ar­lausnir þá er það miklu lengri tími.“

„Hugs­an­lega förum við fyrst í hrað­vagna – gerum það eins hratt og hægt er – en lokum ekki á fram­tíð­ar­mögu­leik­ann á létt­lest­ar­kerf­inu. Þannig að tími ákvarð­ana er svo­lítið núna. Ég bind vonir við að það ger­ist margt í þessu á þessum vetri og næsta ár,“ sagði Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár