Topp 10: Borðspil

Senn líður að jólum. Þá grípur fólk oft í spil. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur hefur prófað ófá borð­spilin.

Fólk hefur stytt sér stundir með góðu spili síðan á tímum Forn-Egypta. Lengst af voru það ein­föld spil á borð við kotru, lúdó og skák en síðar hönnuð spil á borð við Monopoly, Cluedo og Risk. Þegar tölvu­leikir komu fram á sjón­ar­sviðið bjugg­ust flestir við því að tími borð­spil­anna væri lið­inn. Því er þó öfugt farið og bylt­ing hefur átt sér stað innan grein­ar­innar. Hönnun spila hefur fleygt fram og mark­að­ur­inn fer sífellt stækk­andi. Nokkur ný borð­spil eins og t.d. Settlers of Catan, Carcassonne og Ticket to Ride hafa opnað augu fólks fyrir þessum heim og fæstir verða fyrir von­brigðum. Nú þegar líður að jólum, mestu spila­tíðar árs­ins, er til­valið að fá góðar hug­myndir að nokkrum gjöfum.

10. Sheriff of Nottingham

3-5 leik­menn, 60 mín.

Sheriff of Nott­ing­ham er korta­spil sem sló í gegn árið 2014. Leikmenn eiga að reyna að koma varn­ingi (eplum, brauði o.fl.) fram­hjá fóget­anum en þeir geta einnig reynt að smygla (pipar, silki o.fl). Leikmenn skipt­ast á að leika hlut­verk fóget­ans sem reynir að góma þá. Sál­fræði­þáttur spils­ins er mik­ill þar sem menn verða að geta haldið and­liti og beitt ýmsum brögðum, s.s. mútu­greiðslum og samn­ingum. Þetta spil hentar því reyndum póker-spil­urum afar vel. Spilið var hannað af tveimur Bras­il­íu­mönnum, Sergio Halaban og André Zatz, en áður höfðu þeir hannað tvö keim­lík spil. Annars vegar Hart an der Grenze (Vandræði á landa­mær­unum) árið 2006 og Robin Hood árið 2011 en hvor­ugt spilið náði neinum vin­sældum. Félag­arnir náðu hins vegar að skapa mikla spennu fyrir Sheriff of Nott­ing­ham með hóp­fjár­mögnun á heima­síð­unni Kickstarter. Það verður hins vegar að segj­ast að fram­leiðslan á spil­inu er ekki alveg jafn góð og hug­myndin.

9. Descent: Journeys in the Dark

2-5 leik­menn, 120 mín.

Descent er svo­kallað „dýflissu­spil“ (dun­geon crawl) frá Fantasy Flight Games, hannað af Kevin Wilson frá árinu 2005. Dýflissu­spilin eru beinir afkom­endur hlut­verka­spila á borð við Dungeons & Dragons sem náðu miklum vin­sældum á átt­unda og níunda ára­tugnum. Einn leik­mað­ur­inn leikur dýflissu-meist­ar­ann en hinir hetjur sem meist­ar­inn leiðir í gegnum ýmis ævin­týri og setur ýmsa tálma og skrímsli í veg þeirra. Descent sker sig þó nokkuð út þar sem meist­ar­inn etur kappi við hetj­urnar fremur en að leiða þær. Spilið er ákaf­lega stórt með mörgum spila­bunkum, pappa­táknum og plast­fígúrum og borðið sjálft minnir á púslu­spil. Árið 2012 kom út mikið breytt útgáfa af spil­inu þar sem regl­urnar voru gerðar mun ein­fald­ari og straum­línu­lag­aðri. Tveim árum seinna kom svo út Imperial Assault sem byggir á nákvæm­lega sama kerfi en í Star Wars heim­inum.

8. Sushi Go

2-5 leikmenn, 15 mín.

Sushi Go er eldsnöggt korta­spil sem kom út árið 2013 og var hannað af Ástr­a­l­anum Phil Walker-Harding. Spilið er lítið, aðeins einn 108 spila bunki, og teikn­ing­arnar á spil­unum eru mínímal­ískar og ein­faldar. Eins og tit­ill­inn gefur til kynna þá er þemað sushi mat­ar­gerð en það skiptir í raun litlu máli fyrir sjálft spilið. Leikmenn fá 8 spil á hendi, velja eitt og láta leik­mann á vinstri hönd hafa rest. Síðan leggja allir spilið niður og velja svo úr þeim 7 spilum sem þeir fengu frá sessu­naut sínum. Svona gengur þetta koll af kolli. Tak­markið er að safna settum og sam­setn­ingum af sushi réttum sem gefa sem flest stig og spilað er í sam­an­lagt 3 umferðir. Þessi aðferð er ekki ný af nál­inni. Þekktasta spilið með þess­ari aðferð er mjög svo vin­sæla 7 Wonders frá árinu 2010. Sushi Go er hins vegar mun ein­fald­ara spil sem hver sem er getur lært á örfáum mín­útum. Sushi Go Party, sem er útgáfa með fleiri sam­setn­ingum af réttum, kom út á þessu ári.

7. Varúlfur

8-? leik­menn, 60 mín (fer eftir fjölda)

Varúlfur er partí­leikur sem varð til í Moskvu-háskóla árið 1986 eða 1987. Þá hét hann reyndar Mafía en þegar hann barst til Vest­ur­landa um miðjan tíunda ára­tug­inn var var­úlfa­þem­anu breitt yfir hann. Leik­ur­inn er fyrir fjöl­mennan hóp, helst fleiri en 10, sem skipt­ist í þorps­búa og var­úlfa auk sögu­manns sem tekur ekki beinan þátt. Var­úlf­arnir drepa þorps­bú­ana þegar þeir sjá ekki til og þorps­bú­arnir reyna að kom­ast að því hverjir séu var­úlfar og hengja þá. Sumir þorps­búar hafa sér­staka og dulda hæfi­leika s.s. veiði­mað­ur­inn, elskend­urnir og litla stúlkan. Hægt er að nota ein­faldan spila­stokk eða hand­skrif­aða miða til að spila Varúlf en skemmti­legra er að spila með útgefnum stokkum. Margar gerðir eru fáan­legar eins og t.d. The Werewolves of Miller´s Hollow og Ultimate Werewolf . Helsta vanda­málið við Varúlf er að finna nógu marga leik­menn. Lausnin við því er fólgin í spil­inu The Resistance sem er mjög svipað og Varúlfur en fyrir aðeins 5-10 leik­menn.

6. Battlestar Galactica

3-6 leik­menn, 180 mín.

Batt­lestar Galactica er gert eftir sam­nefndri geim­þátta­röð sem sýnd var á árunum 2003-2010 og var end­ur­gerð af eldri seríu. Eldri ser­ían var algjört flopp en sú nýrri naut tölu­verðra vin­sælda og hefur enn mikið költ-fylgi. Borð­spilið er sam­vinnu­spil þar sem leik­menn reyna að koma geim­skip­inu Galactica til Jarðar fram­hjá víga­sveitum sjálfs­með­vit­aðra vél­menna (Cylona) sem hafa tor­tímt öllu öðru fólki. Það sem gerir spilið svo athygl­is­vert er það að 1-2 leik­menn eru duldir Cylonar og tak­mark þeirra er að skemma fyrir flótt­anum og granda geim­skip­inu. Þetta gerir það verkum að traust milli leik­manna er afar lítið og oft grípur um sig hrein og klár væn­i­sýki. Ásakanir fljúga og Cylonarnir verða því að fara mjög leynt með skemmd­ar­verk sín. Yfir­leitt eru borð­spil sem byggja á kvik­myndum eða þáttum ekki hátt skrifuð. En Batt­lestar Galactica var hannað af hinum virta Corey Konieczka og gefið út hjá Fantasy Flight Games sem er leið­andi borð­spila­fram­leið­andi. Spilið nýtur því enn mik­illar hylli.

5. King of Tokyo

2-6 leik­menn, 30 mín.

King of Tokyo hefur verið kallað nokk­urs konar „bar­daga-Yahtzee“. Þetta er ten­inga­spil þar sem leik­menn leika risa­vaxin skrímsli sem bít­ast um það að fá að leggja japönsku höf­uð­borg­ina í rúst. Þemað í spil­inu er aug­ljós­lega fengið frá kvik­myndum á borð við King Kong og Godzilla. Leikmenn geta unnið með því að safna stigum eða drepa öll hin skrímslin (sem er algeng­ara og skemmti­legra). King of Tokyo er hug­verk Richard Garfield, sem er best þekktur fyrir korta­spilið lífseiga Magic: The Gather­ing, og hefur farið sig­ur­för um heim­inn síðan það kom út árið 2011. Árið 2014 gaf hann út King of New York sem byggir á sama grunni en er aðeins flókn­ara og lengra. Það hefur hins vegar ekki náð sömu vin­sældum og for­ver­inn. Ein­fald­leik­inn og hrað­inn er nefni­lega gald­ur­inn við King of Tokyo. Um leið og fyrsta spilið er búið langar manni að spila strax aftur.

4. Small World

2-5 leik­menn, 80 mín.

Belgíski hönn­uð­ur­inn Philippe Keysa­erts gaf út Small World árið 2009. Fólk tók strax eftir því þetta var eitt lit­rík­asta og fal­leg­asta borð­spil sem til út hafði komið. Það var teiknað af franska lista­mann­inum Miguel Coimbra og gefið út hjá Days of Wonder sem eru þekktir fyrir að gefa út fá en mjög vönduð borð­spil. Kerfi spils­ins var þó ekki nýtt af nál­inni því Keysa­erts hafði sjálfur gefið út sams konar spil 10 árum áður undir nafn­inu Vinci en við til­tölu­lega hóg­værar und­ir­tektir. Bæði spilin eru land­vinn­inga stríðs­spil þar sem leik­menn velja sér heri með tvenna sér­staka hæfi­leika. Leikmenn geta svo skipt út þessum herjum fyrir nýja tvennu. Munurinn liggur helst í þem­anu, þ.e. Vinci var með forn­ald­ar­þema á meðan Small World er með klass­ískt fantasíu­þema. Days of Wonder hafa fylgt vel­gengni Small World eftir með mörgum við­bótum og ein­stak­lega vel heppn­uðu smá­forriti fyrir síma og spjald­tölvur.

3. Spartacus: A Game of Blood & Treachery

3-4 leik­menn, 150 mín.

Þegar Spartacus kom út árið 2012, frá hinni lítt þekktu spila­út­gáfu Gale Force Nine, höfðu fáir trú á því að um gæða­grip væri að ræða. Spilið er byggt á þátta­röð um skylm­inga­þræl­inn fræga sem sýnd var á árunum 2010-2013 og ein­kennd­ust af hömlu­lausu ofbeldi, ljótum munn­söfn­uði og nekt. Það besta við þætt­ina var þó allt bak­tjalda­makkið og það skilar sér vel í spil­inu. Leikmenn taka sér hlut­verk þræla­hald­ara og reyna að kom­ast á topp­inn í met­orða­stiga hring­leika­húss­ins. Spilið skipt­ist í nokkra fasa, s.s. upp­boð, verslun, ráða­brugg, bar­daga og veð­mál, sem er einn helsti kost­ur­inn við það. Spilið er ekki bara spennu­þrungið og dramat­ískt heldur einnig marg­slungið og fjöl­breyti­legt. Í spil­inu taka leik­menn miklar áhættur og nóg er af tæki­færum til að sína af sér virki­lega svíns­lega hegðun. Þetta er því ekki spil fyrir auð­sært fólk. Spartacus hefur ekki fengið mjög mikla útbreiðslu en þeir sem hafa prófað það bera því góða sög­una.

2. Arkham Horror

1-8 leik­menn, 180 mín.

Fyrsta útgáfa Arkham Horror kom út árið 1987 en fékk litla dreif­ingu, enda mark­að­ur­inn þá í skötu­líki. En þegar að Fantasy Flight Games keyptu rétt­inn og gáfu spilið aftur út árið 2005 hófst bylgja sem ekki sér fyrir end­ann á. Richard Launius hann­aði spilið sem er byggt á verkum rit­höf­und­ar­ins H.P. Lovecraft og er í raun mun lík­ara hlut­verka­spili en hefð­bundnu borð­spili. Sögu­sviðið er Massachusetts á þriðja ára­tug sein­ustu aldar og leik­menn vinna saman að því að sigr­ast á skrímslum sem koma frá öðrum víddum. Spilið er sjálft orðið að hálf­gerðu skrímsli hvað varðar stærð og magn spila­muna, sér­stak­lega eftir að 8 við­bætur bætt­ust við. Það krefst því bæði mik­ils und­ir­bún­ings, tíma, ein­beit­ingar, þol­in­mæðar, veit­inga og borð­pláss. Að kljást við Cthulhu og félaga er því ekki fyrir hvern sem er. Ef af fólki langar til að fá nasa­þef­inn af Arkham Horror þá eru til ein­fald­ari spil með sama þema, t.d. Elder Sign og Eldritch Horror.

1. Pandemic

1-4 leik­menn, 60 mín.

Pandemic hefur notið mik­illa vin­sælda síðan það kom út árið 2008 og er í dag þekktasta sam­vinnu­spilið. Leikmenn bregða sér í hlut­verk heil­brigð­is­starfs­fólks (lækna, vís­inda­manna, við­bragðs­að­ila o.fl) og vinna saman sem teymi við það að kljást við stór­hættu­lega og bráðsmit­andi far­alds­sjúk­dóma sem herja á heim­inn. Annað hvort nær teymið að hefta útbreiðsl­una og finna lækn­ingu eða að allir jarð­ar­búar far­ast. Pandemic minnir nokkuð á púslu­spil eða þraut og því er vel hægt að spila það ein­sam­all/ein­sömul líkt og kapal. Vin­sældir spils­ins má að miklu leyti rekja til hversu ein­falt og aðgengi­legt það er. Höf­und­ur­inn Matt Leacock hefur fylgt vel­gengn­inni eftir og hannað fleiri ein­föld sam­vinnu­spil sem einnig hafa náð þó nokkrum vin­sældum, s.s. For­bidden Island og For­bidden Desert. Einnig hafa komið út fleiri útgáfur af Pandemic, s.s. The Cure sem er ten­inga­út­gáfa og Contagion þar sem tafl­inu er snúið við og leik­menn leika sjúk­dómana sjálfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

spil

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár