Ekki fimm flokkar sem vilja sækja um aðild að ESB

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­sæt­is­ráð­herra um að full­trúar fimm af sjö flokkum vilji sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu.

Sigurður Ingi var í leiðtogaumræðunum á Stöð 2, þar sem kom skýrt fram að VG vilji ekki inngöngu að ESB.
Sigurður Ingi var í leið­togaum­ræð­unum á Stöð 2, þar sem kom skýrt fram að VG vilji ekki inn­göngu að ESB. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Af sjö full­trúum í kosn­inga­þætti á Stöð tvö í kvöld, voru fimm sem vilja sækja um aðild að ESB.“ Þetta sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi. „ESB er komið á þann stað að því hefur verið líkt við brenn­andi hús. Þar vilja þessir flokkar slá upp sínum tjöldum. Og kljúfa þar með þjóð­ina AFTUR,“ sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son einnig.

Stað­reynda­vakt Kjarnans ákvað að sann­reyna þessa full­yrð­ingu Sigurðar Inga, hvort fimm flokkar vilji sækja um aðild að ESB.

Stefnur flokkanna

Byrjum á að skoða stefnur flokk­anna eins og þær birt­ast á net­inu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn „áréttar að hags­munir Íslands eru best tryggðir utan Evr­ópu­sam­bands­ins. Aðild­ar­við­ræður má ekki hefja að nýju nema þjóðin verði fyrst spurð í beinni atkvæða­greiðslu hvort hún óski eftir aðild að ESB.“ Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn „telur hag lands og þjóðar best borgið utan Evr­ópu­sam­bands­ins og hafnar því aðild að sam­band­inu.“

[adspot]

Sam­fylk­ingin er fylgj­andi aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu og segir: „Til að auka stöð­ug­leika í utan­rík­is­við­skiptum, ýta undir erlendar fjár­fest­ingar og bæta hag lands­manna vill Sam­fylk­ingin að evra verði tekin upp sem gjald­mið­ill hér á landi í kjöl­far aðildar að Evr­ópu­sam­band­inu.“ Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð vill að „Ísland standi utan ESB“.

Viðreisn segir að „aðild að Evr­ópu­sam­band­inu fylgja margir kostir sem styrkja stöðu Íslands og efla hag­sæld. Þess vegna á að bera undir þjóð­ar­at­kvæði hvort ljúka eigi aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Viðreisn hvetur til þess að þeim við­ræðum verði haldið áfram og lokið með hag­felldum aðild­ar­samn­ingi, sem bor­inn verði undir þjóð­ina og farið að nið­ur­stöðum þeirrar atkvæða­greiðslu.“

Björt fram­tíð leggur áherslu á að „landa góðum samn­ingi við ESB sem þjóðin getur eftir upp­lýsta umræðu, sam­þykkt í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.“ Píratar vilja „efna lof­orð um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um ESB“ og „færa þjóð­inni valdið í reynd með því að treysta henni til að taka upp­lýsta ákvörðun um sam­eig­in­lega hags­muni. Þjóðin á að ráða svona stóru máli sjálf.“

Hvað sögðu þau í gær?

Þannig liggur það fyrir að það er ekki stefna fimm af þessum sjö flokkum að sækja um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Hér má sjá nákvæm­lega hvað þessir sjö full­trúar frá flokk­unum sögðu um málið á Stöð 2 í gær.

„Það liggur alveg fyrir hér að við viljum ekki að Ísland gangi í Evr­ópu­sam­bandið,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, meðal ann­ars um málið. Jón Þór Ólafsson frá Pírötum tal­aði aðeins um að færa valdið til þjóð­ar­innar. Full­trúar flestra þess­ara flokka sögð­ust hins vegar þeirrar skoð­unar að halda eigi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður að Evr­ópu­sam­band­inu. En það kom alls ekki fram í þætt­inum að full­trúar frá fimm flokkum hafi lýst því yfir að þeir vilji aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, eins og hlusta má á hér að ofan.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Nið­ur­staða Stað­reynda­vakt­ar­innar er því sú að þessi full­yrð­ing sé hauga­lygi hjá Sigurði Inga. Hann var sjálfur við­staddur í kosn­inga­þætt­inum, og afstaða flokk­anna er einnig ekki ný af nál­inni.

Ertu með ábend­ingu fyrir Stað­reynda­vakt Kjarnans? Sendu okkur línu á stadreyndavaktin@kjarninn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár