Konan sem tugtaði nasistana til

Nancy Wake var sæmd heið­urs­merkjum margra ríkja eftir seinna stríð fyrir fórnir sínar í bar­átt­unni við nas­is­mann. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kynnti sé stríðs­sögu hennar.

Eftir seinni heims­styrj­öld­ina var ung áströlsk kona sæmd ótal heið­urs­merkjum og ekki ein­ungis af löndum sínum heldur einnig í Bret­landi, Banda­ríkj­unum og því landi sem stóð í mestri þakk­ar­skuld við hana, Frakk­landi. Hún barð­ist í fremstu línu með and­spyrnu­hreyf­ing­unni gegn bryn­vörðum og þung­vopn­uðum her­sveitum Þjóð­verja. Fram­göngu hennar mætti líkja við per­sónur á borð við James Bond eða Rambó en hún var mann­eskja af holdi og blóði. Þetta er sagan af konu sem þoldi ekki að sjá yfir­gang nas­ism­ans og ákvað að gera eitt­hvað í því.

Í leit að ævintýrum

Nancy Wake fædd­ist þann 30. ágúst árið 1912 í Wellington, höf­uð­borg Nýja Sjálands. Hún var yngst sex systk­ina hjón­anna Charles og Ellu Wake og lifðu þau við ákaf­lega þröngan kost. Þegar Nancy var aðeins tveggja ára flutt­ist fjöl­skyldan til Sydney í Ástralíu. Faðir hennar, sem starf­aði sem blaða­maður, yfir­gaf fjöl­skyld­una skömmu eftir kom­una til Sydney og því þurfti móðir hennar að ala börnin upp sjálf.

Þegar Nancy var 16 ára fór hún að heiman og vann um tíma sem hjúkr­un­ar­kona. Draumur hennar var þó að kom­ast til Evrópu og Ameríku og það gerði hún mjög ung. Hún flutti til New York um stund og síðan til Lundúna þar sem hún fet­aði í fót­spor föður síns og lærði blaða­mennsku. Í Lundúnum beitti hún brellum til að fá vinnu hjá úti­búi amer­íska frétt­ar­is­ans Hearst. Hún komst að því að rit­stjór­inn þar hefði áhuga á mál­efnum Egypta­lands. Því laug hún því að hún tal­aði reiprenn­andi forn-egyp­sku og kynni að rita híróglífur. Hún páraði ein­hverjar myndir á blað og fékk starfið.

Eitt af fyrstu verk­efnum hennar var að fara til Vín­ar­borgar til að taka við­tal við hinn nýja kansl­ara Þýska­lands, Adolf Hitler, árið 1933. Í Vín sá hún flokk af ungum nas­istum ráð­ast að gyð­ingum með til­hæfu­lausu ofbeldi og sví­virð­ingum. Frá þeim punkti hafði hún megna óbeit á nas­ism­anum. Nancy flutti til Parísar þar sem hún naut sín í botn í skemmt­ana-og menn­ing­ar­lífi borg­ar­innar. Hún hafði mik­inn sjarma og þótti hisp­urs­laus í fasi. Sjálf lýsir hún sér sem daðr­ara. Hún gat drukkið hvern sem er undir borðið, sagði klúra brand­ara og fékk unga mynd­ar­lega menn til að borga drykk­ina fyrir sig. Hún ferð­að­ist víða um Evrópu og skrif­aði fyrir amer­ísk dag­blöð. Í borg­inni Marseille í Suður Frakk­landi kynnt­ist hún hinum unga stáljöfri Henri Fiocca árið 1937. Þau giftu sig árið 1939, tveimur mán­uðum eftir að seinni heims­styrj­öldin braust út.

Hvíta músin

Leift­ur­sókn Þjóð­verja um Evrópu barst til Frakk­lands vorið 1940. Henri var kvaddur í her­inn og Nancy starf­aði sem hjúkr­un­ar­kona og sjúkra­bíls­stjóri. Þýska stríðs­vélin reynd­ist Frökkum hins vegar ofviða og í júní var landið sigrað. Nancy hjálp­aði m.a. til við hinn örvænt­ing­ar­fulla flótta breskra og ástr­al­skra her­manna við Dunkirk. Þjóð­verjar hernumdu norð­ur­hluta Frakk­lands en komu á fót lepp­ríki í suð­ur­hlut­anum kennt við Vichy. Nancy gat hins vegar ekki unað við það að lifa undir járn­hæl þriðja rík­is­ins og gekk strax í frönsku and­spyrnu­hreyf­ing­una og vann með hópum sem köll­uðu sig maquis. Hún vann sem sendi­boði og milli­liður við Breta sem reyndu að aðstoða and­spyrnu­menn­ina.

En aðal­starf hennar var að bjarga her­mönnum. Þýskar loft­varn­ar­byssur skutu niður fjölda flug­véla úr breska flug­hernum og þeir her­menn sem komust lífs af urðu stranda­glópar í óvin­veittu ríki. Nancy not­aði auð eig­in­manns síns til að kaupa hús í útjaðri Marseille sem hún not­aði til að hýsa þessa menn. Hún fæddi þá og klæddi, keypti fölsuð vega­bréf fyrir þá og smyglaði þeim úr landi suður yfir Pýrenn­ea­fjöllin til Spánar. Alls náði and­spyrnu­hreyf­ingin að koma meira en 2000 manns yfir landa­mærin.

Við þetta starf­aði hún í þrjú ár undir nefi þýsku leynilög­regl­unnar Gestapo. Gestapo-menn vissu af til­vist hennar en ekki hver hún var. Hún fékk við­ur­nefnið “hvíta músin” vegna þess hversu oft hún slapp þeim úr greipum. Hún var eft­ir­lýst og 5 milljón frönkum heitið í verð­launafé fyrir hand­töku hennar. Árið 1943 hler­uðu sam­verka­menn hennar sím­tal Gestapo þar sem ljóst var að leynilög­reglan hafði kom­ist að því hver hvíta músin var. Þegar Nancy frétti það tók hún föggur sínar og flúði umsvifa­laust í átt að spænsku landa­mær­unum. Fyrir til­vi­jun var hún hand­tekin í borg­inni Toulouse og sökuð um að hafa sprengt upp kvik­mynda­hús. Hún var yfir­heyrð í fjóra daga en gaf ekk­ert upp um sjálfa sig.

Þá kom Albert Guerisse, belgískur and­spyrnu­maður, henni til bjargar. Guerisse laug því að hann væri vinur Pierre Laval, for­ingja Vichy stjórn­ar­innar og að Nancy væri hjá­kona sín. Henni var sleppt en flótt­anum var ekki lokið. Það þurfti sex til­raunir til að kom­ast yfir landa­mærin því að hún og félagar hennar komust í kast við Gestapo menn á leið­inni. Í eitt skipti stökk hún út úr far­þega­lest á ferð undir kúluregni Gestapo manna. Loks komst hún yfir fjöllin, falin undir kolafarmi á flutn­inga­bíl. Þaðan fór hún suður til Gíbraltar-höfða og svo Bret­lands. Skömmu eftir flótt­ann var eig­in­maður hennar hand­tek­inn, yfir­heyrður og loks tek­inn af lífi.

Þjálfaður njósnari

Þegar Nancy komst loks til Englands var hún stað­ráðin í því að halda bar­átt­unni gegn nas­ist­unum áfram. Hún gekk því til liðs við deild innan breska hers­ins sem nefnd­ist S.O.E. (Special Operations Executive). Hlutverk deild­ar­innar var að aðstoða og eiga í sam­skiptum við and­spyrnu­hreyf­ingar víða um Evrópu. Reynsla hennar og tengsl við maquis hópana var því ómet­an­leg. Hún var send í þjálf­un­ar­búðir í Skotlandi þar sem hún lærði m.a. vopna­burð, sjálfs­varn­ar­list, njósnir, dulkóðun, að bjarga sér í óbyggðum og að fara með sprengi­efni.

Nancy hafði enga reynslu af vopna­burði eða bar­dögum og þjálfunin var henni því mjög fram­andi í upp­hafi. Hún var heldur ekki íþrótta­mann­lega vaxin eða í góðu formi. Þetta lá þó fyrir henni, hún kom kenn­urum sínum á óvart og eftir aðeins nokkra mán­uði var hún orðin vel þjálf­aður útsend­ari hans hátignar. Í lok apríl 1944, skömmu fyrir inn­rás­ina á Normandí, var Nancy reiðu­búin til þjón­ustu og var send með flug­vél aftur til Frakk­lands. Hún, ásamt fleiri með­limum S.O.E. stukku úr vél­inni með fall­hlíf og lentu í námunda við bæinn Montlucon í Mið-Frakk­landi þar sem þau hittu fyrir maquis-and­spyrnu­menn.

Aðal­verk­efni S.O.E. manna var að koma vopnum til maquis-hópanna. Þau fundu bletti þar sem auð­velt var fyrir flug­vélar að varpa birgða­kössum með fall­hlífum og komu skila­boðum til Bret­lands um þessa bletti. Einnig þurfi að kenna and­spyrnu­mönn­unum að nota vopnin og sprengj­urnar. And­spyrnu­liðið stækk­aði umtals­vert eftir komu S.O.E., í alls um 7500 menn, og þeirra beið mik­il­vægt verk­efni, þ.e. að skapa glund­roða og gera Þjóð­verjum erfitt fyrir áður en Banda­menn lentu í Normandí á D-deg­inum.

Í fremstu víglínu

Stríðið breitti per­sónu Nancy Wake. Áður hafði hún verið glað­vær ung kona sem unni sér best með kampa­víns­glas í hönd og herra­mann upp á arm­inn. Nú var hún orðin ein­beitt og miskun­ar­laus bar­áttu­kona. Hún sagð­ist aldrei hafa gugnað. „Maður var aldrei hræddur. Það var of mikið að gera til að vera hræddur.” Hún tók virkan þátt í árásum and­spyrnu­manna á brýr, birgða­lestir, verk­smiðjur, orku­ver og fleiri mik­il­væga staði fyrir þýsku her­vél­ina. Í eitt skipti réð­ust þau á höf­uð­stöðvar Gestapo í Montlucon vörp­uðu hand­sprengjum inn um hurð­ina og skutu þá lög­reglu­menn sem komust lif­andi út, alls féllu 38 leynilög­reglu­menn í árásinni. Í annað skipti þurfti hún að hjóla nán­ast við­stöðu­laust um 400 km leið fram­hjá mörgum eft­ir­lits­stöðvum Þjóð­verja til að koma nauð­syn­legum skila­boðum til Lundúna.

Þegar hún sneri aftur var hún svo örmagna að hún gat vart staðið eða talað. Nancy fékk einnig það verk­efni að yfir­heyra fanga hóps­ins. Hún veigraði sér ekki við að taka suma af lífi sjálf, jafn­vel þó það væru konur. Hún sagði: „Ég var ekki ljúf mann­eskja, en ég hélt samt niðri morg­un­matnum.” Hún kom meira að segja sjálfri sér á óvart í einni árásinni þegar hún drap þýskan her­mann með berum höndum. Einn sam­verka­maður hennar sagði að hún væri sú kven­leg­asta kona sem hann þekkti….þangað til að bar­dagar hæfust, þá jafn­að­ist hún á við fimm karl­menn. Hún kunni vel við sig innan um alla menn­ina í hreyf­ing­unni og var hvers manns hug­ljúfi.

Hún reykti vindla og gat enn drukkið menn undir borðið en hún pass­aði einnig upp á það að vera alltaf vel útlít­andi, með Chanel-vara­lit og ýmsan annan tísku­varn­ing. Hún sagð­ist aldrei hafa átt í ást­ar­sam­bandi við nokkurn mann á meðan hún barð­ist með frönsku and­spyrn­unni enda vissi hún ekki á þeim tíma­punkti að eig­in­maður hennar var lát­inn. Loks reyndu Þjóð­verjar að snúa vörn í sókn gegn and­spyrnu­mönn­unum. Þeir höfðu þrefalt meiri mann­afla en það gagn­að­ist þeim lítið. And­spyrnu­menn þekktu svæðið mun betur og skóg­vaxið lands­lagið hent­aði einkar vel til varna. Þetta trufl­aði Þjóð­verja veru­lega á sama tíma og þeir þurftu að sinna vörnum gegn sókn Banda­manna í Norður-Frakk­landi. Loks yfir­gáfu þeir svæðið og and­spyrnu­hreyf­ingin stóð uppi með pálmann í hönd­inni.

Eftir stríðið

Í lok stríðs­ins og skömmu eftir það vann hún fyrir breska flug­her­inn í París en flutti skömmu seinna heim til Ástralíu. Þar reyndi hún að kom­ast á þing fyrir Frjáls­lynda hægri flokk­inn en mistókst í tvígang, 1949 og 1951. Þá flutti hún til Bret­lands og vann hjá flug­hernum þar sem hún kynnt­ist seinni eig­in­manni sínum, ofurst­anum John Forward. Þau gift­ust árið 1957 og fluttu nokkrum árum seinna til Ástralíu þar sem hún reyndi enn á ný að kom­ast á þing en mistókst aftur, árið 1966. Forward lést árið 1997 en þau áttu engin börn saman.

Fram á gam­als­aldur keppt­ust rík­is­stjórnir við að sæma hana orðum. Heima­land hennar Ástralía, fæð­ing­ar­land hennar Nýja Sjáland, Bretland, Banda­ríkin og vita­skuld Frakk­land. Hún fékk flestar orður af öllum þeim konum sem börð­ust í seinni heims­styrj­öld­inni. Í Nýja Sjálandi var gata nefnd í höf­uðið á henni. Árið 2001 flutti hún aftur til Bret­lands og bjó þar sein­ustu æviár sín. Hún hætti aldrei að hafa gaman að líf­inu og sást iðu­lega á krám í góðra vina hópi með gin og tonik í glasi þó hún væri komin á tíræð­is­aldur. Nancy Wake lést 98 ára að aldri þann 7. ágúst árið 2011 í Lundúnum en ösku hennar var dreift Frakk­landi, nærri bænum Montlucon. Í Ástralíu er hennar minnst sem einnar mestu stríðs­hetju sem landið hefur alið.

Frelsið er það eina sem er þess virði að lifa fyrir. Meðan á þessu öllu stóð hugs­aði ég með sjálfri mér að það skipti ekki máli hvort ég lifði eða dæi, því að án frelsis væri eng­inn til­gangur með líf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár