Tvær stuðningssíður Sigmundar Davíðs skráðar hjá fjölmiðlafyrirtæki

Tvær vef­síður sem settar hafa verið upp til stuðn­ings Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, eru skráðar á fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Forystu ehf. sem rekur fjöl­mið­il­inn Vegg­ur­inn.is. Síðurnar tvær, Islandi­allt.is og Panama­skjolin.is, voru skráðar ann­ars vegar í lok júlí og hins vegar í lok ágúst. Önnur, Islandi­allt.is, birtir jákvæðar færslur um stjórn­mála­mann­inn Sigmund Davíð. Á vefnum kemur fram að hann hafi verið „settur saman og rek­inn af hópi ein­stak­linga úr ýmsum áttum með ólíkar stjórn­mála­skoð­anir sem eiga það sam­eig­in­legt að vera stuðn­ings­menn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar“.

Hin, Panama­skjolin.is, fjallar um skýr­ingar Sig­mundar Davíðs og eig­in­konu hans, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttur, á Wintris-mál­inu svo­kall­aða. Á und­ir­síðu vefs­ins segir að um stað­reyndir um aðkomu Sig­mundar Davíðs að mál­inu sé að ræða. „Efni síð­unnar er unnið upp úr þeim upp­lýs­ingum sem fram hafa komið um málið und­an­farna mán­uði, bæði frá Sigmundi og Önnu sjálfum, frá skatt­yf­ir­völdum, umboðs­manni Alþingis, end­ur­skoð­endum, fjöl­miðlum og fleiri aðilum.

Efnið er sett fram í formi svara við algengum spurn­ingum í þeirri við­leitni að það reyn­ist ein­fald­ara aflestrar. Vefnum er við­haldið af stuðn­ings­mönnum Sig­mundar og Önnu“.

Mikið af því efni sem birt­ist um stjórn­mál á fjöl­miðl­inum Vegg­ur­inn.is er líka til stuðn­ings mál­staðar Sig­mundar Davíðs í Wintris-mál­inu. Í nýlegum pistli sem birt­ist þar er til að mynda spurt hvers vegna kjós­endur ættu að verð­launa Fram­sókn­ar­flokk­inn fyrir að fella Sigmund Davíð. Þeirri spurn­ingu er svarað með eft­ir­far­andi hætti: „And­skotar Sig­mundar Davíðs innan flokks vilja nefni­lega eiga heið­ur­inn af öllum afrekum hans und­an­farin ár en drepa hann sjálfan. Þeir vilja eiga gróð­ann af afl­anum en fleygja skip­stjór­anum sem veiddi fyrir borð.“

Skráður fjölmiðill

Forysta ehf. er skráð fjöl­miðla­fyr­ir­tæki hjá Fjöl­miðla­nefnd vegna rekst­urs frétta­vefs­ins Vegg­ur­inn.is. Sá mið­ill hóf að birta fréttir í nóv­em­ber í fyrra og hefur þá rit­stjórn­ar­stefnu „að miðla fréttum í þeim til­gangi að upp­lýsa og fræða.“

Rit­stjóri Veggsins er Viðar Garð­ars­son, við­skipta­fræð­ingur og mark­aðs­ráð­gjafi, og hann er einnig skráður ábyrgð­ar­maður Forystu ehf. á heima­síðu fjöl­miðla­nefndar. Eigandi félags­ins er hins vegar Ólöf Sig­ur­geirs­dóttir, eig­in­kona Viðars. Ekki kemur fram á síð­unum Íslandi­allt.is og Panama­skjolin.is hverjir það eru sem setji efni inn á þær síður eða hver ábyrgð­ar­maður þeirra er.

Viðar komst í frétt­irnar í des­em­ber á síð­asta ári vegna ráð­gjafa­starfa sinna fyrir Norðurál. Mikil átök stóðu þá yfir vegna end­ur­samn­inga­við­ræðna Lands­virkj­unar og fyr­ir­tæk­is­ins en orku­sölu­samn­ingur til álvers­ins í Grund­ar­tanga átti að renna út 2019. Lands­virkjun vildi hækka verðið, enda var gild­andi samn­ingur einn sá hag­stæð­asti fyrir orku­kaup­anda í stór­iðju sem gerður hefur verið hér­lendis.

Ráðgjafar Norðuráls

17. des­em­ber boð­aði Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar, til blaða­manna­fundar og kom þess­ari skoðun mjög skýrt á fram­færi. Í máli hans kom einnig fram að hann teldi Norð­ur­ál, og eig­end­ur þess, vera að beita öllum mögu­legum með­ulum til að halda verð­inu til sín sem lægstu.

Aðspurður um hvað það væru sem stjórn­endur Norð­ur­áls væri að ­gera sagði Hörður það vera ljóst, og full­kom­lega eðli­legt, að þeir færu víða í sam­fé­lag­inu til að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi. Auk þess sagði Hörð­ur: „Það er hins vegar alveg rétt að það hafa komið upp hópar manna sem hafa áður ekki ­tengst orku­um­ræðu inn í umræð­una. Þeir hafa verið kynntir í við­tölum sem ráð­gjafar Norð­ur­áls.“

Þessi hópur sem Hörður talar um var leiddur af Viðar Garð­ars­syni, sem hafði blandað sér­ af miklu afli í umræður um orku­mál vik­urnar á undan. Viðar var meðal ann­ars á meðal þeirra sem héldu úti vett­vangnum „Auð­lind­irnar okk­ar“ á Facebook og skrif­aði pistla á mbl.is um orku­mál. Fjöl­mið­ill­inn Vegg­ur­inn sem hann rit­stýrir var þá einnig nýbyrj­aður göngu sína.

Í skrifum Við­ars og ann­arra á þessum síðum var talað fyrir lægra orku­verði til stór­iðju, lengri orku­sölu­samn­ingum og gegn lagn­ingu sæstrengs til­ Bret­lands. Þá var Viðar til við­tals í fréttum Stöðvar 2 í byrjun des­em­ber 2015. Í kynn­ingu þeirrar fréttar kom fram að Viðar hafi unnið fyrir Norð­urál. Í þeirri frétt sagði Viðar að hótun Rio Tinto um að loka álver­inu í Straums­vík hafi verið sett fram vegna þungs rekst­urs, sem megi rekja til of hás orku­verðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár