Notkun á heilsuúrum skilar ekki árangri, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar

Þrátt fyrir miklar vin­sældir skilar notkun svo­kall­aðra heilsu­úra ekki til­skildum árangri, ef marka má nið­ur­stöður rann­sóknar sem birtar voru í tíma­rit­inu Journal of American Medical Association í gær. Rann­sóknin er ein sú fyrsta sem kannar áhrif þess að nýta sér heilsuúr til að bæta heil­brigði.

Rann­sóknin stóð yfir í tvö ár og voru þátt­tak­endur hátt í 500 ein­stak­lingar á aldr­inum 18 til 35 ára sem allir glímdu við offitu. Þátt­tak­endur voru beðnir að breyta matar­æði sínu auk þess að hreyfa sig meira á meðan á rann­sókn­inni stóð. Til að kanna áhrif notk­unar heilsu­úra fékk helm­ingur þeirra heilsuúr til að nýta sér í lífstíls­breyt­ing­unni en hinn helm­ing­ur­inn ekki.

Í ljós kom að hóp­ur­inn sem ekki not­að­ist við heilsuúr missti mark­tækt fleiri kíló á tíma­bil­inu en þeir sem fengu heilsuúr. Sá hópur sem nýtti sér heilsuúr missti að með­al­tali 3,6 kg á meðan hóp­ur­inn sem ekki nýtti sér úrin missti að með­al­tali 5,9.

Nið­ur­stöð­urnar líta ekki vel út fyrir heilsuúr en rann­sókn­ar­hóp­ur­inn segir að þær þýði þó ekki að fólk eigi að leggja úrunum. Frekar skuli taka áhrifum þeirra með fyr­ir­vara enda er margt sem gæti skýrt nið­ur­stöð­urnar.

Í sam­tali við BBC sagði Dr. John Jakicic, fyrsti höf­undur grein­ar­innar, að til dæmis hafi “fólk þá til­hneig­ingu að nota tæki líkt og þessi í smá tíma og missi svo áhuga á þeim þegar nýja­brumið fer af þeim”. Einnig telur Dr Jakicic að þeir sem nýti sér úrin gleymi ef til vill frekar að huga að matar­æð­inu en þeir sem gera það ekki. Jafn­framt gæti not­endum þótt nið­ur­drep­andi að ná ekki mark­mið­unum sem þeir hafa sett í gegnum úrið sem gæti haft letj­andi áhrif.

Fréttin birt­ist fyrst á vefnum Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár