„Mikið fé læt eg annað áður mér þykir betra að missa sverðsins“

Sverðið sem fannst nýlega hefur vakið áhuga og for­vitni land­ans á fundum af því tagi. Ljóst er að slíkir munir hafi þótt dýr­mætir og eig­endur og smiðir hátt skrif­aðir.

Eitt „nýtt“ sverð fannst á dögunum sem nú er geymt á Þjóðminjasafni Íslands.
Eitt „nýtt“ sverð fannst á dög­unum sem nú er geymt á Þjóð­minja­safni Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Sverð eru iðu­lega örlaga­valdar í Íslend­inga­sög­unum en gott dæmi þess er Fótbítur, sverð Geir­mundar gnýs í Laxdælu. „Mikið fé læt eg annað áður mér þykir betra að missa sverðs­ins,“ mælir hann og er til­bú­inn að fórna miklu fyrir sverðið áður en hann leggur bölvun á það og ferst með skipi sínu. Forvitni vaknar nú þegar „nýtt“ sverð er fundið í Skaft­ár­hreppi. Það fannst í byrjun sept­em­ber en slíkir fundir eru sjald­gæfir hér á landi. Kjarninn náði tali af tveimur forn­leifa­fræð­ingum sem hafa velt fyrir sér og stúd­erað sverð­fundi á Íslandi.

Helmingur kumla rænd

Slíkir fundir eru algeng­astir í kumlum eða gömlum gröfum að sögn Stein­unnar J. Krist­jáns­dóttur, pró­fess­ors í forn­leifa­fræði við Háskóla Íslands. Hún segir að rúm­lega tutt­ugu sverð hafi fund­ist á að minnsta kosti 200 ára tíma­bili sem segir hversu fátíðir slíkir fundir eru. Sverðið sem nýlega fannst er talið hafa legið í kumli og lík­legt þykir að það hafi færst úr stað í Skaft­ár­hlaupi.

Um 320 kuml hafa fund­ist á Íslandi og mörg þeirra, eða um helm­ingur, hafa verið rænd, að sögn Stein­unnar. Hún segir að ránin hafi gerst mjög snemma eftir að fólk hefur verið grafið í kuml­unum og að þess vegna séu ekki mörg sem eru óskemmd. Sautján sverð hafa fund­ist í kumlum og hin voru lausa­fundir.

Dýrmætir hlutir grafnir með eigendunum

„Það tíðk­að­ist á þessum tíma að grafa fólk með eigum sínum, með þessu svo­kall­aða haugfé,“ segir Steinunn. Hún segir að það hafi tíðkast á öllum tímum að grafa fólk með ein­hverjum gripum og meira segja í dag sé þetta enn gert. Hún bendir þó á að á kristnum tíma hafi þetta orðið mjög sjald­gæft og þá hafi það yfir­leitt verið sálma­bók sem fór með í gröf­ina. En á heiðnum tíma, á vík­inga­öld, hafi grafir oft verið mjög ríku­legar og mikil verð­mæti í þeim.

En hvernig telur Steinunn að sverðin hafi verið notuð? „Ég held að sverðin hafi verið notuð sem vopn. Og miðað við hvað það hafa fund­ist fá sverð þá hljóta þetta að hafa verið mjög verð­mætir gripir,“ segir hún. Og mjög sjald­gæfir, bætir hún við.

Hún segir að í Íslend­inga­sög­unum hafi sverð verið ígildi jarðar eða báts. Það kemur fram í Vatns­dæla­sögu þar sem synir skipta eigum föður síns. Einn son­ur­inn fær sverðið, einn bæinn og einn bát­inn. Hún segir að það hafi verið stöðu­tákn að eiga sverð.

Einungis karlmenn áttu sverð

Steinunn bendir á að sverð hafi aldrei fund­ist í kven­kumli og þess vegna sé talið að konur hafi alla­jafna ekki átt sverð. „Að sama skapi virð­ast það vera kúptar nælur sem eru frekar sjald­gæfar líka, en þó algeng­ari en sverðin, sem hafi verið tákn um stöðu kvenna. Og þær hafa aldrei fund­ist í karl­kumli,“ segir hún. Hún segir að þessir tveir hlutir séu einu hlut­irnir sem bundnir eru við kynin. Annað hefur fund­ist í báðum kumlum, skart­gripir, perlur og fleira.

Sverðin innflutt

Að sögn Stein­unnar voru þeir sem smíð­uðu sverðin mjög hátt skrif­aðir, eins og eig­end­urnir. Það hafi alls ekki verið á færi allra að smíða slík sverð en það hefur tekið tvö til þrjú ár að smíða gott sverð. Hún segir að þau hafi ekki verið búin til hér á landi og séu því inn­flutt. Ákveðnir smiðir hafi fram­leitt sverðin og að viss tísku­fyr­ir­brigði hafi tíðkast í smíð­inni.

Steinunn segir að blöðin í þau, sverð­blöðin sem yfir­leitt voru tví­eggja, hafi verið fram­leidd í Bæj­ara­landi og flutt þaðan til Skand­in­avíu þar sem hjöltun hafi verið búin til á þau. 

Síðan hafi vík­ing­arnir farið aftur með sverðin til­búin suður eftir meg­in­land­inu og drepið mann og annan, sem hafi orðið til þess að bann var sett við útflutn­ingi á sverð­blöðum frá Bæj­ara­landi. Þá hafi sum þess­ara sverða ratað til Íslands með vík­ingum sem voru að flytj­ast hingað til Íslands allt fram til alda­mót­anna 1000, jafn­vel enn lengur. Öll sverðin sem fund­ist hafa á Íslandi eru frá árunum 870-1000. 

Hægt að aldursgreina á hjöltunum

Sverðið sem fannst núna er Q-gerð sem segir okkur að það hafi verið búið til á bil­inu 900-1000. Steinunn segir að þetta sé algeng­asta teg­undin sem fund­ist hefur til dæmis í Noregi og það gæti bent til tengsla þangað.

Kerfið sem farið er eftir er nefnt eftir norska forn­leifa­fræð­ingnum Dr. Jan Greve Thaulow Petersen. Hann skrif­aði bók­ina Norska Vík­inga­sverðið árið 1919 og eru kenn­ingar hans og við­mið enn þann dag í dag notuð til að ald­urs­greina sverð. Kerfið gengur út á að það sáist á hjölt­unum hvaða gerðar sverð eru og þar af leið­andi frá hvaða tíma­bili. Þess vegna eru sverð sem finn­ast án hjalta erf­ið­ari í ald­urs­grein­ingu.

Fann sjálf sverð

Steinunn fann sjálf sverð fyrir tuttt­ugu og einu ári í Skriðdal í Fljóts­dal. Kumlið var óraskað og mikið haugfé var í því. „Þar voru skart­gripir, vopn, heim­il­is­á­höld og hestur í fullum reið­tygum,“ segir hún. Talið er að það hafi verið tengt Graut-Atla, þann sem nam Atlavík, en eru það ein­ungis vanga­veltur. Sverðið er V-gerð.

Hún segir að hún hafi í raun ekki áttað sig á því að þetta hafi verið svona merki­legt. „Seinna meir þá hef ég verið að velta því meira fyrir mér hvað það er lít­ill mögu­leiki á að finna sverð,“ segir hún. Og vegna fund­ar­ins núna þá séu margir spenntir sem vinna á þessum vett­vangi.

Sverð hafa fund­ist hring­inn í kringum allt landið. Steinunn segir þó að á ákveðnum svæðum á land­inu hafi fund­ist fleiri kuml en ann­ars staðar. Þar nefnir hún Fljóts­dals­hérað og ákveðin svæði fyrir norðan eins og Svarf­að­ar­dal. Þar hafi fund­ist mjög kuml og eins á Suð­ur­landi.

„Nýja“ sverðið hánorrænn gripur

„Gripir af þessu tagi eru mjög óal­gengir og fágætir hér á safn­inu,“ segir Ármann Guð­munds­son, forn­leifa­fræð­ingur og verk­efna­stjóri á Þjóð­minja­safni Íslands, um nýfundna sverðið. Hann tekur undir með Stein­unni og bendir á að Q-gerðin sé fremur algeng sem og M-gerðin. Hann segir að þetta sverð sé hánor­rænn gripur því að þessi Q-gerð finn­ist nán­ast ekk­ert á Bret­landseyjum og hafi ein­ungis eitt þannig sverð fund­ist í Skotlandi. En fjöld­inn allur í Skand­in­avíu.

Ármann segir að ýmsar ástæður gætu legið að baki því að ekki hafi fund­ist fleiri sverð á Íslandi en raun ber vitni. Ein ástæðan gæti verið að þau finn­ist aðal­lega í kumlum og að fá kuml hafi fund­ist.

„Þetta er þriðja sverðið sem kemur hingað inn á 20 árum, þannig að það er ekki eins og það ger­ist á hverjum föstu­degi,“ segir Ármann. Öll sverðin eru geymd á Þjóð­minja­safn­inu.

Sverðin verða að mold sé ekkert að gert

Allir gripir sem finn­ast þurfa að fara í for­vörslu en hún miðar að því að koma þeim í stöðugt ástand, segir Ármann. „Efnin hafa til­hneig­ingu til að leita að upp­runa sínum. Ef ekk­ert er að gert, þá mun þetta grotna niður og verða að mold. Þar grípum við inn í og það er for­varslan,“ segir hann. Grip­irnir séu síðan geymdir við bestu aðstæður sem hugs­ast geta.

Að lokum segir Ármann að það sé gott hjá þeim sem fundu þetta sverð að koma því til Minja­stofn­unar, til þess að allir geti notið þess; „Því við eigum þetta saman, öll þjóðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

minjar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár