Bjarni og Sigmundur tala ekkert saman lengur

Formenn stjórn­ar­flokk­anna hitt­ast ekki lengur og ræða ekki saman í síma. Þannig hafa mál staðið frá því að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra vegna Wintris-máls­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mun halda flokks­þing í haust.

Formenn stjórnarflokkanna tala ekki saman.
Formenn stjórn­ar­flokk­anna tala ekki saman. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hann eigi ekki lengur í neinum sam­skiptum við Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þeir hitt­ist ekki lengur eftir að Sig­mundur Davíð lét af emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra og tali heldur ekki saman í síma. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna á Hrafna­þingi á sjón­varps­stöð­inni ÍNN.

Sig­mundur Davíð sagði af sér emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra 5. apríl 2016 eftir að upp komst um Wintris-málið svo­kall­aða. Það snýst um að Sig­mundur Davíð og eig­in­kona hans áttu saman aflands­fé­lagið Wintris, skráð til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, fram til loka árs 2009. Félagið átti skulda­bréf á föllnu íslensku bank­anna upp á rúman hálfan millj­arð króna og lýsti kröfum í bú þeirra á meðan að Sig­mundur Davíð var eig­andi þess. Hann seldi eig­in­konu sinni sinn helm­ing í félag­inu á gaml­árs­dag 2009 á einn dal. Wintris stóð ekki í skatt­skilum í sam­ræmi við CFC-reglur, líkt og erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóðir í lág­skatta­ríkjum í eigu, eða undir stjórn íslensks eig­enda, eiga að gera. Sig­mundur Davíð hefur sagt að félagið hafi ekki þurft að gera það og haldið því fram að öll skatt­skil hafi verið í sam­ræmi við lög. Ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hver skatt­stofn eigna Wintris er eða var og því er ekki hægt að sann­reyna hvort allir skattar hafi verið greiddir af eignum félags­ins.

Fordæmalaus atburðarrás

Bjarni var sjálfur í Panama­skjöl­unum líkt og Sig­mundur Davíð og Wintris. Þar kom fram að Bjarni átti 40 millj­­óna hlut í félagi sem skráð var á Seychelles-eyj­um, Falson og Co. Hann hafði áður neitað því að eiga, eða hafa átt, pen­inga í skatta­­skjól­­um. Bjarni sagði í voru að félagið hefði verið stofnað í kring um félag sitt og félaga sinna til að kaupa fast­­eign í Dubai, sem varð þó aldrei af. Hann svar­aði fyrir þetta svo að hann hafi haldið að félagið hafi verið skráð í Lúx­em­borg, en ekki á skatta­­skjóls­eyj­un­­um. Félagið var sett í afsk­rán­ing­­ar­­ferli 2009.

Eftir frægan Kastljós-þátt um Panama­skjölin, sem sýndur var sunnu­dag­inn 3. apríl, fór af stað for­dæma­laus atburða­rás. Mikill þrýst­ingur skap­að­ist strax á Sigmund Davíð, og Bjarna, að segja af sér emb­ættum. Eftir mikil mót­mæli mánu­dag­inn 4. apríl dró loks til tíð­inda dag­inn eftir. Þá reyndi Sig­mundur Davíð að sækja sér umboð til að rjúfa þing til for­seta Íslands og til­kynnti um þá fyr­ir­ætlan sína á Facebook-síðu sinni. Hann hafði hvorki rætt málið við eigin þing­flokk né sam­starfs­flokk­inn, Sjálf­stæð­is­flokk. Þetta ætl­aði Sig­mundur Davíð að gera ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn hans við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum. Fyrr um morg­un­inn höfðu hann og Bjarni fundað og þar greindi Bjarni honum frá því að það þyrfti að bregð­ast við þeirri stöðu sem upp væri komin. Sig­mundur Davíð hafi boðið sér tvo kosti í stöð­unni, annað hvort óskor­aðan stuðn­ing við sig og áfram­hald rík­is­stjórn­ar­innar eða þing­rof. Bjarni hafi hins vegar séð fleiri kosti í stöð­unni, meðal ann­ars myndun nýrrar rík­is­stjórnar Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks án Sig­mundar Davíðs. Sú varð raunin og rík­is­stjórn undur for­sæti Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, vara­for­manns Fram­sóknar var mynduð 5. apríl.

Tveimur dögum síðar mættu bæði Sig­mundur Davíð og Bjarni í við­töl í Íslandi í dag. Þar hélt Sig­mundur Davíð því fram að engin munur væri á málum hans og Bjarna. Bjarni hélt því hins vegar fram að grund­vall­ar­munur væri á málum þeirra tveggja. Í þætt­inum sagði hann: „Ég held að það sé óhætt að segja að það sé mik­ill grund­vall­ar­munur á því að vera sem ráð­herra ekki með neitt slíkt félag nálægt sér og það er ekki nein uppi nein spurn­ing um hags­muna­á­rekstra af nokkrum toga. Ég held að það sé hægt að ­segja, og nú er ég bara að lýsa minni skoð­un, þegar ég horf­i ­yfir sviðið og horfi á fréttir reyni að rýna í það hvað ­menn eru að reyna að draga út úr þessi og kannski ekki síst að ut­an, glöggt er gests augað og allt það. Þá staldra menn við það að þarna voru kröfur á slita­búin á sama tíma og ­rík­is­stjórnin var að vinna að lausn þeirra mála. Þetta er auð­vitað auð­vitað mik­ill grund­vall­ar­mun­ur.“

Kom til baka í lok júlí

Sig­mundur Davíð tók sér frí eftir afsögn sína en snéri aftur í stjórn­mál í lok júlí. Í bréfi sem hann sendi flokks­mönnum sínum sagð­ist hann enn njóta mik­ils stuðn­ings þeirra og fjölda ann­ars fólks sem ekki tekur þátt í stjórn­mála­starfi. Það séu stað­reyndir sem liggi fyr­ir. Hann sagði enga ástæðu til þess að kjósa í haust en boð­aði fulla þátt­töku sína í stjórn­mála­bar­átt­unni. Síðar hefur hann boðið upp á ýmsar skýr­ingar á því hvað hafi legið að baki Wintris-mál­inu. Í byrjun ágúst sagði hann í við­tali á Bylgj­unni að málið væri í raun mjög ein­falt. „Svo sér maður að það skipti engu máli, það var búið að skrifa eitt­hvað hand­rit, und­ir­búa það í sjö mán­uði í mörgum lönd­um, eins og kom síðar fram og margt sér­kenni­legt í þeirri sögu all­ri.“

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Sig­mundur Davíð ýjaði að því að Panama­skjölin og umfjöllun um þau hafi verið ein­hvers konar sam­særi gegn hon­um. Áður hafði hann ásak­að banda­ríska auð­mann­inn George Soros um að standa að baki því, hann hafi keypt Panama­skjölin og notað þau að vild. Þess ber að geta að upp­lýs­ingar um víð­feðma aflands­fé­laga­eign Soros er að finna í skjöl­unum. 

Þrátt fyrir að mán­uður sé lið­inn frá því að Sig­mundur Davíð snéri aftur í stjórn­mál hefur hann ekki verið í neinum sam­skiptum við for­mann sam­starfs­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn, Bjarna Bene­dikts­son.

Flokksþing verður haldið hjá Framsókn

Þrátt fyrir mikla and­stöðu Sig­mundar Davíð gegn kosn­ingum í haust hafa Bjarni og Sigurður Ingi boðað slíkar 29. októ­ber næst­kom­andi. Nú stendur yfir und­ir­bún­ingur flokka fyrir þær og í gær­kvöldi kaus kjör­dæma­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi með því að halda flokks­þing fyrir kosn­ing­arnar. Það þýðir að þrjú af fimm kjör­dæma­þingum flokks­ins hafa kosið með slíku og þá þarf það að fara fram. Eina kjör­dæma­þingið sem hefur kosið gegn flokks­þingi, þar sem kosin er ný for­ysta, er Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem Sig­mundur Davíð situr. Hann barð­ist sjálfur gegn því að flokks­þing færi fram í haust og kaus gegn ráð­stöf­un­inni. Eina kjör­dæma­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins sem á eftir að fara fram er í Reykja­vík, en það fer fram á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár