Félögin fá 453 milljónir vegna árangurs Íslands á EM

Ótrúlegur árangur íslenska landsliðsins á EM í sumar skilaði KSÍ gríðarlegum tekjum. Sambandið hefur nú ákveðið hversu mikið hvert aðildarfélag fær í sinn hlut.
Ótrú­legur árangur íslenska lands­liðs­ins á EM í sumar skil­aði KSÍ gríð­ar­legum tekjum. Sam­bandið hefur nú ákveðið hversu mikið hvert aðild­ar­fé­lag fær í sinn hlut. Mynd: EPA

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) hefur greint frá því að aðild­ar­fé­lög þess fái 453 millj­ónir króna sem þau skipta á milli sín vegna árang­urs íslenska karla­lands­liðs­ins á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Fjár­mun­irnir skipt­ast á milli félaga eftir árangri þeirra í deild­ar­keppni síð­ast­liðin þrjú ár. Hæstu greiðsl­una fá fimm úrvalds­deild­ar­fé­lög: Fylkir, Breiða­blik, Valur, Stjarnan og ÍBV. Þau fá 18,2 millj­ónir króna í sinn hlut hvert. Lægsta upp­hæð þeirra liða sem leika í dag í Pepsí-deild karla fær Víkingur Ólafsvík, eða 14,3 millj­ónir króna.

Hægt er að sjá frek­ari skipt­ingu á greiðsl­unum og aðferð­ar­fræð­inni á bak­við þær hér.

Langhæstu styrkir sem hafa farið til félaga

KSÍ greindi frá því á árs­þingi sam­bands­ins þann 13. febr­úar síð­ast­lið­inn hvernig styrkir og fram­lög þess til­ ­fé­lag­anna í ár áttu að skipt­ast. Ljóst var að til­kynn­ing­ar­innar er beðið með tölu­verðri eft­ir­vænt­ingu, enda voru styrkir og fram­lög KSÍ til aðild­ar­fé­laga áætl­aðir 413 millj­ónir króna á árinu 2016. Það er lang­hæsta upp­hæð sem KSÍ hefur nokkru sinni útdeilt til félag­anna, en til sam­an­burðar fengu þau 147 millj­ónir króna í fyrra.

Ástæða aukn­ing­ar­innar var sú að áætl­anir gerðu ráð fyrir að tekjur KSÍ myndu tvö­fald­ast í ár vegna þátt­töku karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu EM í Frakk­landi. Velta sam­bands­ins átti að fara úr 1.112 millj­ónum króna í 2.263 millj­ónir króna, aðal­lega vegna þess að styrkir frá knatt­spyrnu­sam­band­i ­Evr­ópu (UEFA) færu úr 356 millj­ónum króna í 1.506 millj­ónir króna á milli ára. ­Sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun KSÍ sem birt var í febr­úar átti þessi gríð­ar­lega aukn­ing í veltu skila ­sam­band­inu 600 millj­ónum króna í hagnað á árinu 2016. Og aðild­ar­fé­lög ­sam­bands­ins munu njóta þess.

Íslenska lands­liðið kom síðan öllum á óvart í sumar og komst mun lengra á EM en nokkur átti von á. Það varð til þess að tekj­urnar vegna þátt­töku liðs­ins urðu mun meiri en upp­haf­lega var áætlað. Samkvæmt áætlun árs­ins var gert ráð fyrir að tekj­urnar vegna EM yrðu 1,1 millj­arður króna, en á end­anum voru þær nær 1,9 millj­örðum króna. Nú hefur sú aukn­ing á tekjum orðið til þess að sú upp­hæð sem rennur til aðild­ar­fé­laga verður 453 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár