KSÍ tilkynnir aðildarfélögum hvernig 413 milljónir skiptast í dag

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands (KSÍ) mun greina aðild­ar­fé­lögum sínum frá því í dag, 13. febr­úar, á árs­þingi sam­bands­ins hvernig styrkir og fram­lög þess til félag­anna í ár muni skipt­ast. Ljóst er að til­kynn­ing­ar­innar er beðið með tölu­verðri eft­ir­vænt­ingu, enda eru styrkir og fram­lög KSÍ til aðild­ar­fé­laga áætl­aðir 413 millj­ónir króna á árinu 2016. Það er lang­hæsta upp­hæð sem KSÍ hefur nokkru sinni útdeilt til félag­anna, en til sam­an­burðar fengu þau 147 millj­ónir króna í fyrra.

Ástæða aukn­ing­ar­innar er sú að tekjur KSÍ munu tvö­fald­ast í ár vegna þátt­töku karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu í Evr­ópu­mót­inu í knatt­spyrnu í Frakk­landi á kom­andi sumri. Velta sam­bands­ins mun fara úr 1.112 millj­ónum króna í 2.263 millj­ónir króna, aðal­lega vegna þess að styrkir frá knatt­spyrnu­sam­bandi Evrópu (UEFA) fara úr 356 millj­ónum króna í 1.506 millj­ónir króna á milli ára. Samkvæmt nýbirtri fjár­hags­á­ætlun KSÍ mun þessi gríð­ar­lega aukn­ing í veltu skila sam­band­inu 600 millj­ónum króna í hagnað á árinu 2016. Og aðild­ar­fé­lög sam­bands­ins munu njóta þess.

Mest fór til félaga í Pepsí-deild karla í fyrra

KSÍ vildi ekki veita Kjarn­anum upp­lýs­ingar um hvernig sú fjár­hæð sem mun skipt­ast á milli aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins skipt­ist fyrr en búið væri að til­kynna full­trúum þeirra það á árs­þingi KSÍ sem fram fer í dag.

Á árinu 2015 fengu félögin í Pepsí-deild karla 40 millj­óna króna styrk frá UEFA vegna barna- og ung­linga­starfs. KSÍ greiddi síðan öðrum aðild­ar­fé­lögum en þeim sem léku í Pepsí-deild karla 41,5 millj­ónir króna (um 28 pró­sent af heild­ar­kök­unni), félögum í Pepsí-deild karla 71,1 milljón króna vegna útsend­ingar- og mark­aðs­réttar (48 pró­sent) og félögum í leyfis­kerfi KSÍ 22,8 millj­ónir króna (16 pró­sent). Þá greiddi KSÍ 11,6 millj­ónir króna (átta pró­sent) í ferða­þátt­töku­gjald, verð­launafé og fleira á árinu 2015. Samtals gera þessar greiðslur KSÍ til aðild­ar­fé­laga 147 millj­ónir króna.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um árs­reikn­ing KSÍ fyrir árið 2015 og fjár­hags­á­ætlun sam­bands­ins fyrir árið 2016 um síð­ustu helgi. Hægt er að lesa þá umfjöllun hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár