Tekjur KSÍ tvöfaldast í ár

Knatt­spyrnu­sam­band Ísland mun velta 2,3 millj­örðum króna í ár. Þrátt fyrir að kostn­að­ar­samt verði að taka þátt á EM í Frakk­landi mun sam­bandið skila 600 millj­óna hagn­aði, eftir að hafa greitt yfir 400 millj­ónir til aðild­ar­fé­laga sinna.

Tekjur Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) munu tvö­fald­ast á árinu 2016. Í fyrra voru þær 1.112 millj­ónir króna en áætlað er að þær verði 2.263 millj­ónir króna á þessu ári. Gjöld sam­bands­ins munu einnig aukast mikið á yfir­stand­andi ári, vegna þátt­töku íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu í Evr­ópu­mót­inu í Frakk­landi næsta sumar. Áætlað er að gjöldin verði 1.663 millj­ónir króna í ár en þau voru 956 millj­ónir króna í fyrra. Það breytir því ekki að nóg verður eftir í kass­anum hjá KSÍ þegar rekstr­ar­árið verður liðið og mótið í Frakk­landi búið. Áætlaður hagn­aður sam­bands­ins er 600 millj­ónir króna á árinu. Það er næstum fjórum sinnum meiri hagn­aður en KSÍ skil­aði í ár. Þetta kemur fram í fjár­hags­á­ætlun KSÍ fyrir árið 2016 sem birt var í gær.

Aðild­ar­fé­lög KSÍ munu njóta góðs af þeirri miklu búbót sem þátt­takan á EM í Frakk­landi er fyrir efna­hag íslenskrar knatt­spyrnu. Styrkir og fram­lög til aðild­ar­fé­laga KSÍ eru áætl­aðir 413 millj­ónir króna á árinu 2016, en voru 147 millj­ónir króna í fyrra. Það er mik­ill fjár­hags­legur upp­gangur framundan í íslenskri knatt­spyrnu.

Næstum níu af hverjum tíu krónum koma frá UEFA

Í áætl­un­inni segir að styrkir og fram­lög til KSÍ, sem voru 584 millj­ónir króna árið 2015, verði 1.725 millj­ónir króna á árinu 2016. Þau munu því næstum þre­fald­ast. Ástæðan er ein­fald­lega árangur karla­lands­liðs­ins og vera þess á loka móti lands­liða í fyrsta sinn á kom­andi sumri. Aðrar tekjur, svo sem sjón­varps­réttur og tekjur af lands­leikjum munu að mestu standa í stað á milli ára. Alls falla 76 pró­sent allra tekna KSÍ til vegna styrkja og fram­laga.

Lang­hæsti styrk­ur­inn, alls 1.506 millj­ónir króna, kemur frá knatt­spyrnu­sam­bandi Evrópu (UEFA). Styrkir frá sam­band­inu fara úr 356 millj­ónum króna árið 2015 og fara því lang­leið­ina við að fimm­fald­ast vegna þátt­töku íslenska karla­lands­liðs­ins á EM í Frakk­landi í sumar. Styrkir UEFA eru heil 87,3 pró­sent af öllum styrkjum og fram­lögum sem KSÍ fær á næsta ári.

Stærsti kostn­að­ar­liður yfir­stand­andi árs er A-lands­lið karla, en kostn­aður vegna þess er áætl­aður 809 millj­ónir króna. Hann var 228 millj­ónir króna í fyrra og því ljóst að það kostar skild­ing­inn að taka þátt í loka­móti. Kostn­aður við rekstur A-lands­liðs kvenna eykst líka umtals­vert á þessu ári. Áætlanir gera ráð fyrir að hann verði 114 millj­ónir króna, sem er næstum tvisvar sinnum meira en þær 59 millj­ónir króna sem fóru í hann á árinu 2015.

Framlag frá ÍSI og getraunum 1,7 prósent af tekjum

Annars er rekstr­ar­staða KSÍ afar sterk. Félagið á eignir sem metnar eru á 581 milljón króna um síð­ustu ára­mót og á 221,6 millj­ónir króna í eigin fé. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi sam­bands­ins vegna árs­ins 2015 sem einnig var gerður opin­ber í gær. Raunar er það svo að KSÍ hefur á und­an­förnum árum velt mun meira fé en öll önnur íþrótta­sér­sam­bönd lands­ins til sam­ans. Með þeirri við­bót sem áætluð er að falli til í ár mun sá munur aukast enn meira. Til sam­an­burðar má nefna að Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Íslands (ÍSI) velti um 220 millj­ónum króna á árinu 2014.

Þessi staða, og sú það mikla fjár­magn sem KSÍ fær í formi styrkja frá UEFA og FIFA á hverju ári, hefur gert það að verkum að innan margra ann­arra sér­sam­banda er uppi sterk krafa um að KSÍ fari út úr ÍSÍ og leyfi öðrum sér­sam­böndum sem eiga mun erf­ið­ara með að láta enda ná saman og sækja að njóta þeirra tekna sem til falla vegna styrkja rík­is­sjóðs og hlut­deildar sér­sam­banda í get­raun­ar­tekjum. Á árinu 2016 er áætlað að KSÍ fái 33 millj­ónir króna fram­lag frá ÍSÍ og sex millj­ónir króna vegna íslenskra get­rauna. Sam­an­lagt er þessi tala, 39 millj­ónir króna, 1,7 pró­sent af tekjum KSÍ og ljóst að þær skipta sam­bandið ekki öllu máli. Þetta er hins vegar fé sem gæti skipt sköpum hjá mörgum minni sér­sam­böndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár