Samfylking og Framsókn jafn lítil í nýrri kosningaspá

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vann stóran sigur í kosningunum 2013 en nú mælist flokkurinn með aðeins 9,1 prósent fylgi.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vann stóran sigur í kosn­ing­unum 2013 en nú mælist flokk­ur­inn með aðeins 9,1 pró­sent fylgi. Mynd: Birgir Þór

Stuðn­ingur við Fram­sókn­ar­flokk­inn, Sam­fylk­ing­una og Viðreisn mælist nán­ast jafn mik­ill í nýrri kos­inga­spá sem gerð var í dag. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með aðeins 9,1 pró­sent fylgi, Sam­fylk­ingin með níu pró­sent og Viðreisn með 8,8 pró­sent eftir að ný spá var gerð með nýjum könn­unum. Ekki er mark­tækur munur á fylgi þess­ara fram­boða.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur mælst með um tíu pró­sent fylgi síðan í byrjun apríl, eða þegar for­maður flokks­ins sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra vegna upp­ljóstrana úr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Flokk­ur­inn hefur ekki mælst með minna fylgi í um mánuð núna og ekki hefur verið svo mjótt á munum milli hans og Sam­fylk­ingar síðan um miðjan apríl.

Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig fylgi í hverri kosn­inga­spá sem gerð hefur verið síðan í byrjun maí, en þar áður hafði flokk­ur­inn tapað fylgi í nær öllum kosn­inga­spám frá ára­mótum. Fylgi við Sam­fylk­ing­una hefur ekki verið hærra síðan 1. apríl. Síðan þá hafa orðið for­manns­skipti í flokknum; Oddný Harð­ar­dóttir tók við kefl­inu af Árna Páli Árnasyni 3. júní. Þá mæld­ist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar aðeins 7,2 pró­sent.

Í Alþing­is­kosn­ing­unum árið 2013 hlaut Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 24,4 pró­sent atkvæða á lands­vísu og 19 kjörna þing­menn. Sam­fylk­ingin hlaut 12,9 pró­sent atkvæða á lands­vísu og fékk níu þing­menn kjörna.

[adspot]

Viðreisn tapar örlitlu fylgi síðan kosn­inga­spáin var gerð síð­ast 3. júlí. Þá mæld­ist fylgið við fram­boðið 9,5 pró­sent en það er nú 8,8 pró­sent. Síðan Viðreisn var mæld fyrst 1. apríl hefur fylgið auk­ist jafnt og þétt í nærri öllum kosn­inga­spám.

Píratar eru sem fyrr með mest fylgi þeirra flokka sem hyggj­ast bjóða fram í fyr­ir­hug­uðum Alþing­is­kosn­ingum í haust. Fylgi við Pírata mælist nú 27,3 pró­sent og fellur um rúmt pró­sentu­stig milli kosn­inga­spáa. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig 0,6 pró­sentu­stigum á sama tíma­bili og mælist nú með 23,6 pró­sent fylgi. Vinstri græn bæta við sig hálfu pró­sentu­stigi og eru nú með 16,6 pró­sent stuðn­ing.

Björt fram­tíð mælist enn með mjög lítið fylgi og lækkar enn í nýj­ustu kosn­inga­spánni og er með 3,5 pró­sent stuðn­ing. Flokk­ur­inn fékk 8,2 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2013 og sex þing­menn kjörna. Ætla má að fram­boð þurfi um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til þess að ná kjöri. Ekki er enn farið að mæla stuðn­ing við fram­boð til Alþingis eftir kjör­dæmum fyrir fyr­ir­hug­aðar kosn­ignar í haust.

Önnur fram­boð myndu sam­tals fá 2,1 pró­sent atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Framboð sem mæl­ast með minna en eitt pró­sent í kosn­inga­spánni eru flokkuð sem „aðrir“.

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 7. júlí og er byggð á fjórum nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða. Nýjasta könn­unin vegur í þetta sinn ekki þyngst sökum stærðar könn­unar Gallup sem birt var 3. júlí. Áður en könnun er bætt við kosn­inga­spána hlýtur hún vægi gagn­vart öðrum fyr­ir­liggj­andi könn­unum sem byggir meðal ann­ars á lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda. Kann­an­irnar sem liggja til grund­vallar kosn­igna­spánni 7. júlí eru:

  • Skoð­ana­könnun MMR 27. júní til 4. júlí (vægi 26,1%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. maí til 29. júní (vægi 36,7%)
  • Skoðanak. Félags­vís­ind­ast. HÍ f. Morgunbl. 19. til 22. júní (vægi 23,4%)
  • Skoðanak. Félags­vís­ind­ast. HÍ f. Morgunbl. 8. til 12. júní (vægi 13,8%)

Hvað er Kosn­­­­inga­­­­spá­in?

Kosn­­­­inga­­­­spálíkan Bald­­­­urs Héð­ins­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­lýs­ing­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­inga­­­­spá Bald­­­­urs fyrir sveit­­­­ar­­­­stjórn­­­­­­­ar­­­­kosn­­­­ing­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­inga­­­­spá.is má lesa nið­­­­ur­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­leiki könn­un­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­inga­úr­slit­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár