Ekki mælist marktækur munur á fylgi Viðreisnar og Framsóknarflokks

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur í stað í nýrri kosn­inga­spá en Viðreisn sækir enn í sig veðrið. Ekki mælist mark­tækur munur milli fylgi flokk­anna. Píratar eru enn stærstir og fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk minnkar enn.

Fylgi við Framsókn minnkaði hratt í kjölfar Wintris-málsins. Fylgi Sjálfstæðisflokks minnkaði lítillega í einni könnun en flokkurinn náði vopnum sínum fljótt aftur. Framsóknarflokkur mælist nú ekki með meira en 10 prósenta fylgi.
Fylgi við Framsókn minnk­aði hratt í kjöl­far Wintris-máls­ins. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks minnk­aði lít­il­lega í einni könnun en flokk­ur­inn náði vopnum sínum fljótt aftur. Fram­sókn­ar­flokkur mælist nú ekki með meira en 10 pró­senta fylgi. Mynd: Birgir Þór

Viðreisn er nú með nán­ast jafn mikið fylgi og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og mælist með 9,5 pró­sent í nýrri kosn­inga­spá. Píratar mæl­ast enn með mestan stuðn­ing allra fram­boða sem hyggj­ast bjóða fram í fyr­ir­hug­uðum Alþing­is­kosn­ingum í haust.

Fylgi við Viðreisn hefur auk­ist jafnt og þétt í síð­ustu kosn­inga­spám, sem Kjarninn og Baldur Héð­ins­son gera í sam­ein­ingu. Á sama tíma og Viðreisn bætir við sig virð­ist stuðn­ingur við önnur fram­boð minnka eða standa í stað. Sam­fylk­ingin bætir reyndar örlítið við sig en nær ekki jafn miklu fylgi og Fram­sókn­ar­flokks og Viðreisn. Ekki er mark­tækur munur á fylgi Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hlyti 23 pró­sent atkvæða ef gengið yrði að kjör­borð­inu nú, sam­kvæmt kosn­igna­spánni. Fylgi við flokk­inn hefur minnkað nokkuð í síð­ustu kosn­inga­spám og fallið úr nærri 30 pró­sent fylgi.

Á sama tíma virð­ist stuðn­ingur við Pírata hafa fundið jafn­vægi á ný í rúm­lega 28 pró­sent stuðn­ingi. Þegar best lét nutu Píratar fylgis meira en 35 pró­sent kjós­enda framan af ári en í Wintris-vik­unni svoköll­uðu í byrjun apríl byrj­aði stuðn­ingur við Pírata að falla.

[adspot]

Vinstri græn eru enn þriðja stærsta fram­boðið sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Stuðn­ingur við flokk­inn mælist nú 16,1 pró­sent, örlítið minna en í síð­ustu kosn­inga­spá. Vinstri græn virð­ast einnig hafa fundið jafn­vægi í rúmum 16 pró­sentum eftir fylg­is­flakkið í byrjun apríl. Fram­sókn­ar­flokkur mælist með 10 pró­sent fylgi.

Enn mælist Björt fram­tíð með minnst fylgi allra núver­andi flokka á Alþingi. Framboð þeirra mælist með aðeins 3,7 pró­sent stuðn­ing. Ætla má að flokkur þurfi að fá um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til að ná kjöri. Erfitt er hins vegar að fjöl­yrða um slíkt því eitt fram­boð gæti verið að sækja meiri stuðn­ing í eitt kjör­dæmi umfram önnur. Enn er ekki farið að kanna stuðn­ing innan hvers kjör­dæmis fyrir sig.

Önnur fram­boð fá minna en eitt pró­sent stuðn­ing. Dögun mælist með 0,5 pró­sent og Alþýðu­fylk­ingin með 0,1 pró­sent. Önnur fram­boð fengju sam­tals 0,3 pró­sent. Stuðn­ingur við Dögun og Alþýðu­fylk­ing­una er innan vik­marka.

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 3. júlí og er byggð á þremur nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í Alþing­is­kosn­ingum sem fyr­ir­hug­aðar eru í haust. Nýjasta könn­unin vegur lang þyngst í þetta sinn. Það útskýrist af stærð könn­un­ar­innar og lengd tíma­bils­ins sem hún er gerð á. Kann­an­irnar eru:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. maí til 29. júní (vægi 50,2%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 19. til 22. júní (vægi 30,6%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 8. til 12. júní (vægi 19,2%)

Hvað er Kosn­­­inga­­­spá­in?

Kosn­­­inga­­­spálíkan Bald­­­urs Héð­ins­­­sonar miðar að því að setja upp­­­lýs­ing­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­inga­­­spá Bald­­­urs fyrir sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar og reynd­ist sú til­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­inga­­­spá.is má lesa nið­­­ur­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­vik kann­ana miðað við kosn­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­inga­úr­slit­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár