Fleiri ungar mæður og minni háskólamenntun á Suðurnesjum

Hlutfall háskóla­menntraðra á Suð­ur­nesjum er næstum helm­ingi lægra en lands­með­al­talið. Alls eru 19,7 pró­sent íbúa á Suð­ur­nesjum með háskóla­próf en á land­inu öllu er það hlut­fall 36,2 pró­sent. Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri í Reykja­nesbæ, segir að lágt stig háskóla­mennt­unar sé að ein­hverju leyti afleið­ing af 50 ára veru varn­ar­liðs­ins á Suð­ur­nesj­unum. Það hafi útvegað fólki vel launuð störf án hárrar mennt­un­ar­kröfu. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar kemur einnig fram að mæður undir tví­tugu eru þrisvar sinnum fleiri á Suð­ur­nesjum en á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rúm­lega tvisvar sinnum fleiri en með­al­tal slíkra mæðra á land­inu öllu. Þetta kemur fram í lýð­heilsu­vísum land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

Mikil vandræði eftir brotthvarf hersins og hrunið

Suð­ur­nesin hafa gengið í gegnum ýmis­konar vand­ræði síð­ast­lið­inn ára­tug. Eftir hrunið var atvinnu­leysi á Suð­ur­nesjum lengi vel það mesta á land­inu, fór hæst upp i 14,5 pró­sent, og hlut­fall heim­ila sem voru í van­skilum þar var það hæsta á land­inu. Þá var hlut­fall örorku­þega hæst á svæð­inu og fleiri fyr­ir­tæki fóru þar í þrot eftir hrunið en á flestum öðrum stöðum á land­inu. Fast­eigna­verð féll einnig hratt og mark­aður fyrir fast­eignir þar var botn­fros­inn um margra ára skeið.

Þar spil­aði inn í að her­inn hvarf frá fyrir ára­tug síðan og með honum fjöldi starfa án þess að nein ný kæmu í stað­inn. Til að takast á við þessa stöðu síð­ustu árin fyrir hrun reyndi stærsta sveit­ar­fé­lagið á Suð­ur­nesjum, Reykja­nes­bær, að liðka fyrir upp­bygg­ingu á stór­iðju í Helguvík, meðal ann­ars með lán­töku til að byggja upp höfn­ina þar og mik­illi eigna­sölu sem afrakst­ur­inn af var svo not­aður til fjár­fest­inga. Auk þess lagði sveit­ar­fé­lagið sig fram við að auka lóða­fram­boð og reyna með því að fjölga íbúum hratt.

Þessar aðgerðir, ásamt braski með fast­eignir sveita­fé­lags­ins, skil­uðu því í hræði­legri fjár­hags­stöðu og á tólf ára tíma­bili var það rekið með rekstr­ar­tapi ell­efu sinnum. Þótt að mikil til­tekt hafi átt sér stað í rekstri þess á und­an­förnum árum þá eru enn líkur á því að fjár­halds­stjórn verði skipuð yfir Reykja­nesbæ á næstu vikum.

Ýmsar hagtölur batnað hratt

Ýmsar aðrar hag­tölur hafa þó batnað hratt á Suð­ur­nesjum á und­an­förnum árum, sam­hliða gríð­ar­legri aukn­ingu í komu ferða­manna til lands­ins, en Kefla­vík­ur­flug­völlur og þjón­usta í kringum hann er stærsti vinnu­staður svæð­is­ins.

Í maí náði svæðið til að mynda þeim árangri að atvinnu­leysi er ekki lengur mest þar á land­inu i fyrsta sinn í áraraðir. Nú mælist það ein­ungis 2,6 pró­sent. Fast­eigna­verið á Suð­ur­nesjum hefur einnig hækkað skarpt á allra síð­ustu árum og í nýju fast­eigna­mati fyrir árið 2017, sem kynnt var í gær, kom fram að næst­mesta hækk­unin utan höfðu­borg­ar­svæð­is­ins væri á Suð­ur­nesj­unum, eða 6,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár