Sjö af hverjum tíu vilja kjósa í haust

Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson greina frá myndun nýrrar ríkisstjórnar í byrjun apríl. Þar greindu þeir einnig frá því að kosið verði í haust.
Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son greina frá myndun nýrrar rík­is­stjórnar í byrjun apríl. Þar greindu þeir einnig frá því að kosið verði í haust. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls segj­ast 69,5 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í nýrri skoð­ana­könnun miðla 365 að þeir vilji þing­kosn­ingar í haust. 30,5 pró­sent segja að þeir vilji kjósa vorið 2017. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þegar öll svör eru skoðuð sést að 60 pró­sent aðspurðra vilja haust­kosn­ingar, 26 pró­sent vilja kjósa næsta vor, tólf pró­sent segj­ast ekki vita hvenær þau vilja kjósa og tvö pró­sent vilja ekki svara. Konur vilja frekar kjósa í haust en karlar og fólk undir fimm­tugu er hlynnt­ari því en eldra fólk.

Könnunin var gerð 30. maí. Hringt var í 919 manns þar til náð­ist í 772 og var svar­hlut­fallið því 84 pró­sent. Þátt­tak­endur voru valdir með slembi­úr­taki úr þjóð­skrá. Alls tóku 85,7 pró­sent þeirra sem náð­ist í afstöðu til spurn­ing­ar­innar.

Þegar Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son til­kynntu um myndun nýrrar rík­is­stjórnar í stiga Alþing­is­húss­ins í byrjun apríl, eftir að upp­lýs­ingar úr Panama­skjöl­unum um aflands­fé­laga­eign ráða­manna höfðu dregið á þriðja tug þús­und manna á Aust­ur­völl til að mót­mæla, sögðu þeir að kosið yrði í haust. Kjör­tíma­bilið verður þar með stytt um nokkra mán­uði, en það hefði runnið sitt skeið í vor.

Kjarninn greindi frá því í lok síð­ustu viku að mjög skiptar skoð­anir eru meðal stjórn­ar­þing­manna um það hvort rétt hafi verið að boða til kosn­inga í haust. Eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lýsti efa­semdum sínum um kosn­ingar í haust hafa nokkrir fylgt í kjöl­farið á opin­berum vett­vangi. Kjarn­inn hafði sam­band við þing­menn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks um mál­ið. Flestir fram­sókn­ar­menn sem náð­ist í voru þeirrar skoð­unar að ekki hefði þurft að flýta kosn­ing­um. Sú ákvörðun hafi bara verið tekin til að róa ástandið í sam­fé­lag­inu á örlaga­ríkum tím­um.

Hægt er að lesa um afstöðu allra stjórn­ar­þing­manna til kosn­inga í haust hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár