Engin eining um kosningar í haust

Margir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hefðu viljað og vilja enn að kosið verði á næsta ári. Nokkrir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins telja það hafa verið óþarft að flýta kosn­ingum.

Sigurður Ingi og Bjarni Benediktsson sögðu strax að kjörtímabilið yrði stytt um eitt þing. Þeir eru enn á því.
Sigurður Ingi og Bjarni Bene­dikts­son sögðu strax að kjör­tíma­bilið yrði stytt um eitt þing. Þeir eru enn á því. Mynd: Birgir Þór

Mjög skiptar skoð­anir eru meðal stjórn­ar­þing­manna um það hvort rétt hafi verið að boða til kosn­inga í haust. Eftir að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, lýsti efa­semdum sínum um kosn­ingar í haust hafa nokkrir fylgt í kjöl­farið á opin­berum vett­vangi. Kjarninn hafði sam­band við þing­menn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks um málið. Flestir fram­sókn­ar­menn sem náð­ist í voru þeirrar skoð­unar að ekki hefði þurft að flýta kosn­ingum. Sú ákvörðun hafi bara verið tekin til að róa ástandið í sam­fé­lag­inu á örlaga­ríkum tímum. „Sterk löngun fram­sókn­ar­manna er að ljúka verk­inu sem sett var upp sem 4ja ára plan,“ segir Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra til dæmis.

Byrjaði með Ásmundi

Það hefur verið ljóst frá því skömmu eftir að rík­is­stjórn­ar­sam­starfið var end­ur­nýjað í apríl að ekki eru allir í stjórn­ar­lið­inu ánægðir með þær mála­lyktir að boða til kosn­inga í haust. Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, byrj­aði þessa umræðu fyrir nokkrum vikum. Ásmundur Einar hóf strax í apríl að tala um að verið væri að „skoða mögu­leik­ann“ á því að kjósa í haust. Svo sagði hann að það liggi í raun ekk­ert á að kjósa, og að kosn­ingar eigi ekki að fara fram fyrr en mik­il­vægum verk­efnum sé lokið. Til­gang­ur­inn var mögu­lega sá að kanna við­brögðin við því að hætta við að halda kosn­ing­arnar í haust.

Bæði Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sögðu hins vegar strax í kjöl­farið að ekki stæði til að breyta þeim áætl­unum að kjósa í haust. Það voru jú líka þeir tveir sem kynntu þá fyr­ir­ætlun, þegar þeir greindu frá áfram­hald­andi stjórn­ar­sam­starfi flokk­anna í byrjun apríl.

„Við ætlum að stíga við­bót­ar­skref til að mæta kröfum um að virkja lýð­ræðið í land­inu til þess að koma til móts við þá stöðu sem hefur mynd­ast, og hyggj­umst stefna að því að halda kosn­ingar í haust, stytta kjör­tíma­bilið um eitt lög­gjaf­ar­þing. Nákvæm dag­setn­ing á kosn­ing­unum mun ráð­ast á fram­vindu þing­mála,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son þá. Þegar Sigurður Ingi var spurður að því hvort ein­ing hafi verið um ákvarð­an­irnar sem teknar voru sagði hann „algjör­lega.“ Það virð­ist hins vegar ljóst að svo var ekki og svo er ekki. Þetta á ekki síst við í hans flokki.

„Sterk löngun“ að klára fjögur ár

Sig­mundur Davíð tók svo við kefl­inu af Ásmundi Einari þegar hann steig aftur í sviðs­ljósið eftir sjö vikna frí um síð­ustu helgi. Hann tal­aði um að menn hefðu haft „ein­hverjar hug­myndir“ um kosn­ingar í haust. „Það er rétt að þeir [Sigurður Ingi og Bjarni] sögðu að þeir væru reiðu­búnir til að ræða það að kosn­ingar færu fram snemma og nefndu haustið í því sam­hengi. En þeir voru mjög skýrir með það að þetta yrði ef, og ein­ungis ef, að öll mál næðu að klár­ast.“

Fleiri tóku í sama streng og gera það í svörum við fyr­ir­spurn Kjarnans. Þó má ljóst vera af orðum Bjarna Bene­dikts­sonar, sem vitnað er til hér að ofan, að því var alltaf lofað frá byrjun að það yrðu kosn­ingar í haust og kjör­tíma­bilið stytt um eitt lög­gjaf­ar­þing. Margir fyr­ir­var­anna sem settir hafa verið komu eftir á.

Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði nán­ast um leið og Sig­mundur Davíð, bara í við­tali á öðrum fjöl­miðli, Hring­braut, að hann hafi alltaf verið og sé enn mót­fall­inn því að kjósa fyrr.

Sigrún Magn­ús­dóttir umhverf­is­ráð­herra segir það vera sterka löngun hjá fram­sókn­ar­mönnum „að ljúka verk­inu sem sett var upp sem 4ja ára plan.“ Hún segir að það hafi verið á örlaga­ríkum þremur dögum, þegar mikið gekk á, sem sagt hafi verið að kosið verði í haust ef tak­ist að koma for­gangs­málum rík­is­stjórn­ar­innar í höfn. Þetta hafi verið sagt til að róa ákveðið and­rúms­loft.

Hún segir að öll hennar vinna í ráðu­neyt­inu miði engu að síður við kosn­ingar í haust, en henni þyki sárs­auka­fullt að geta ekki fylgt úr hlaði verk­efnum eins og Ramma­á­ætlun.

Lýðræðislegra að kjósa á næsta ári

„Per­sónu­lega finnst mér ekki tíma­bært að ákveða kjör­dag,“ segir Elsa Lára Arn­ar­dóttir. Hún segir að horfa þurfi til þeirra verk­efna sem rík­is­stjórnin var kosin til að vinna að, eins og hús­næð­is­mál, verð­trygg­ing­ar­mál og end­ur­bætur á almanna­trygg­ing­ar­kerf­inu og fæð­ing­ar­or­lofi. „Þetta eru þau brýnu verk­efni sem horfa þarf til og klára. Þegar þeim er lokið er tíma­bært að ganga til kosn­inga. Hvort sem það er í haust eða síðar.“

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir segir að hún hefði kosið að lof­orð um kosn­ingar í haust hefði ekki verið gefið á sínum tíma. Ástæðan: „árangur rík­is­stjórn­ar­innar er fram­úr­skar­andi góður og ég hefði viljað sjá þessa rík­is­stjórn klára fjög­urra ára kjör­tíma­bil.“

Willum Þór Þórsson segir að búið sé að bregð­ast mynd­ar­lega við upp­lýs­inga­leka Panama­skjal­anna, með starfs­hópi og skýrslu. „Þessi rík­is­stjórn hefur mynd­ar­legan meiri­hluta, rétt­kjör­inn, og er með fjöl­mörg mik­il­væg mál í far­vatn­inu. Tíminn til þess að klára mik­il­væg mál er mjög knappur með til­liti til kosn­inga í haust.“

„Mér finnst það lýð­ræð­is­legra og eðli­legra að þessi meiri­hluti fái að klára þau verk­efni sem og þann tíma sem hann var kos­inn til,“ segir Haraldur Ein­ars­son. Hins vegar sé búið að gefa vænt­ingar um kosn­ingar í haust. „Það var gert á örlaga­tímum og á miklu hraði,“ segir hann, en vegna vænt­ing­anna muni hann styðja kosn­ingar í haust.

„Ég tel að rétt­ast væri að kjósa vorið 2017 eins og ráð var fyrir gert við síð­ustu kosn­ingar,“ segir Líneik Anna Sæv­ars­dóttir. Hún virði hins vegar það sam­komu­lag að ganga til kosn­inga í haust ef vel gangi að klára mál.

Sjálfstæðismenn vilja standa við loforð en fannst sumum óþarfi að gefa það

„Það hefur ekk­ert breyst varð­andi það sem við for­sæt­is­ráð­herra höfum áður sagt að stefnt er að kosn­ingum í haust,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son í byrjun vik­unnar, spurður um málið á Alþingi. „Ég tek hins vegar fram að ég skil vel að skiptar skoð­anir séu um þessi efni. Við sáum það líka á könn­unum sem gerðar voru á sínum tíma meðal lands­manna. Það voru skiptar skoð­anir í þjóð­fé­lag­inu hvort kjósa ætti núna í vor eða í haust eða síðar, þannig að það kemur út af fyrir sig ekki á óvart. En við lögðum af stað í þessu end­ur­nýj­aða stjórn­ar­sam­starfi með þá hugsun. Það hefur ekki verið rætt okkar í milli og stendur ekki til að gera breyt­ingar á því.“

Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill líka standa við það að kosið verði í haust, og Haraldur Bene­dikts­son sömu­leiðis. Jón Gunn­ars­son seg­ist ein­fald­lega styðja nið­ur­stöðu for­ystu­manna rík­is­stjórn­ar­innar.

„,Ég er fylgj­andi því að ganga til kosn­inga í haust. Ég tel að mínum flokki verði vel tekið í þeim kosn­ingum,“ segir Elín Hirst um málið. Vil­hjálmur Árnason segir að að sjálf­sögðu eigi að kjósa í haust, enda hafi þing­störf gengið vel und­an­farið. „Rétt­kjörin stjórn­völd eiga að sitja út sitt kjör­tíma­bil en miðað við þær aðstæður sem voru uppi tel ég að for­ustu­menn stjórn­ar­flokk­anna hafi tekið hár­rétta ákvörðun með því að boða til kosn­inga í haust og við þá ákvörðun á að standa.“

Brynjar Níelsson taldi á sínum tíma að það væri ekki nauð­syn­legt að flýta kosn­ingum. Það hafi þó verið nið­ur­staðan og hann eigi ekki von á öðru en að við það verði staðið. Sigríður Andersen segir að það verði að vera mjög sér­stakar ástæður til að rjúfa þing áður en umboð þeirra sam­kvæmt stjórn­ar­skránni renni út. „Það er umhugs­un­ar­efni hvort að slíkar aðstæður hafi verið fyrir hendi þegar hug­mynd um kosn­ingar í haust var fyrst nefnd.“

Ásmundur Frið­riks­son seg­ist hafa viljað klára sína vakt til fjög­urra ára og að það hafi verið ástæðu­laust að boða til þing­kosn­inga í haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár