Sigmundur birtir skattaupplýsingar

Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son greiddu um 300 millj­ónir íslenskra króna í skatta á tíma­bil­inu 2007 til 2015. Fram kemur í Morg­un­blað­inu í dag að fé­lag­inu Wintris, í eigu Önnu Sig­ur­laug­ar, eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra, hafi aldrei verið leynt og eign­ir þess hafa aldrei verið í skatta­skjóli.

Morg­un­blaðið vitnar í gögn frá Sigmundi Davíð sem unnin eru af KPMg þar sem hann grein­ir frá eign­um og skatt­greiðslum þeirra hjóna um ára­tug aft­ur í tím­ann.

Reiknað til nú­v­irðis má áætla að skatt­greiðslur af eign­um Önnu Sig­ur­laug­ar nemi hátt í 400 millj­ón­um. Í gögn­un­um kem­ur einnig fram að fjár­magn­s­tekj­ur frá Wintris á ár­un­um 2009-2015 nemi sam­tals 324.187.102 kr. en fjár­magn­s­tekju­skatt­ur­inn nem­ur sam­tals 174.283.895 kr. á ár­un­um 2007-2015.

Sig­mundur Davíð hefur birt gögnin á heima­síðu sinni. Þar segir hann að und­an­gengin ár hafi það verið við­tekin krafa að stjórn­mála­menn geri gein fyrir eigum sínum og ýmsir telja að eðli­legt sé að einnig sé gerð grein fyrir skuldum.

„Færa má sterk rök fyrir því. Það er ekki jafn aug­ljóst að gera eigi kröfu um að stjórn­mála­menn birti upp­lýs­ingar um fjár­mál fjöl­skyldu sinnar. Ég hef þó lýst mig reiðu­bú­inn til þess að birta slík gögn ef aðrir for­ystu­menn í stjórn­málum gerðu slíkt hið sama," segi Sig­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár