Panamaskjalauppljóstrarinn sendir frá sér yfirlýsingu

Um er að ræða stærsta gagnaleka í sögunni.
Um er að ræða stærsta gagna­leka í sög­unni.

Upp­ljóstr­ar­inn sem kom Panama­skjöl­unum til fjöl­miðla úr panamísku lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca vill að vernd upp­ljóstr­ara verði lög­fest í heim­inum. Hann seg­ist í yfir­lýs­ingu reiðu­bú­inn að aðstoða stjórn­völd við skatt­rann­sóknir.

Heim­ild­ar­mað­ur­inn, sem kemur ekki fram undir nafni, seg­ist ekki vera njósn­ari. Ástæða þess að hann kom um 11,5 milljón gögnum til þýska dag­blaðs­ins Süddeutche Zeitung og ICIJ, alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna, var sú að honum ofbauð notkun auð­manna heims­ins á skatta­skjólum og öllu órétt­læt­inu sem því fylgir. Hann seg­ist ekki vinna fyrir neina opin­bera stofnun og hafi aldrei gert. Allt sem hann hafi gert byggi ein­ungis á hans skoð­unum.

„Tekju­ó­jöfn­uður er eitt af stærstu málum okkar tíma. Hann hefur áhrif á okkur öll, alls staðar í heim­inum. Umræðan um öran vöxt tekju­ó­jöfn­uðar hefur staðið um ára­bil, þar sem stjórn­mála­menn, fræði­menn og akti­vistar hafa ekki getað stöðvað hann þrátt fyrir ótelj­andi ræður, töl­fræði­grein­ingar, nokkur mót­mæli og stöku heim­ild­ar­myndir. Enn stendur spurn­ingin eftir: Af hverju? Og af hverju núna?” segir í yfir­lýs­ing­unni, sem má lesa á íslensku í heild sinni inni á vef Reykja­vík Media og á ensku inni á vef Guardian. „Svarið við þessum spurn­ingum er skýrt í Pana­ma­gögn­unum; gríð­ar­leg, gegn­sýrð spill­ing. Og það er ekki til­viljun að svörin skuli koma frá lög­manns­stofu – sem er ekki bara tann­hjól í mask­ínu „auð­stjórn­unar“ því Mossack Fonseca not­aði áhrif sín til að skrifa og beygja lög um allan heim til að þjóna hags­munum glæpa­manna um ára­tuga­skeið. Í til­viki eyj­unnar Nieu rak lög­manns­stofan í raun skatta­skjól frá upp­hafi til enda. Ramón Fonseca og Jürgen Mossack vilja að við trúum því að skúffu­fé­lög stof­unnar, sem stundum eru kölluð „far­ar­tæki með sér­stakan til­gang“ séu eins og bílar. En sölu­menn not­aðra bíla skrifa ekki lög. Og eini „sér­staki til­gangur“ þess­ara far­ar­tækja sem þeir bjuggu til var of oft svik, af gríð­ar­stórum skala.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár