Er hægt að hafa völd yfir persónuupplýsingum á netinu?

Fyr­ir­tæki nýta sér per­sónu­upp­lýs­ingar á net­inu í miklu mæli. Julian Ranger, stofn­andi og stjórn­ar­maður digi.me, segir að fólk eigi að ráða sjálft hvaða upp­lýs­ingum sé deilt og hvernig sé farið með þær.

Gríð­ar­lega mikið magn per­sónu­upp­lýs­inga er varð­veitt á inter­net­inu. Ýmis fyr­ir­tæki á borð við Facebook, Twitter, Instagram, Amazon, Ebay, Spotify og svo lengi mætti telja, geyma upp­lýs­ingar og gögn um fólk. En er á ein­hvern hátt hægt að safna þessum upp­lýs­ingum saman og stjórna því hvað verður um þær? Julian Ranger er stofn­andi og stjórn­ar­maður fyr­ir­tæk­is­ins digi.me sem gerir not­endum kleift að safna saman per­sónu­legum gögnum af sam­fé­lags­miðlum og deila þeim með þriðja aðila á sínum eigin for­sendum.

Ranger hélt fyr­ir­lestur um per­sónu­upp­lýs­ingar og hag­nýt­ingu þeirra á ráð­stefnu á vegum Reikni­stofu bank­anna um upp­lýs­inga­tækni og fjár­mála­þjón­ustu fram­tíð­ar­innar þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Kjarninn hafði sam­band við hann og spurði hann út í fyr­ir­tækið og hvað það væri að gera.

Hvernig er gagnasöfnun háttað á netinu?

Ranger segir að í fyrsta lagi sé alltaf hætta á að fyr­ir­tæki týni gögnum eða upp­lýs­ingum um fólk. Aðal­á­stæðan fyrir því sé að það hættir að nota þjón­ustu til­tek­ins fyr­ir­tækis. Til dæmis skipti fólk iðu­lega um banka og þá flytj­ast gögn ekki milli. Í öðru lagi sé erfitt að leita í gagna­grunnum eins og til dæmis Facebook og að það geti verið erfitt að finna gögn sem eru margra ára gömul. Í þriðja lagi sé erfitt að hafa heild­ar­sýn yfir gögnum sem safn­ast saman á net­inu.

Hægt er að safna öllum þessum gögnum saman og þá er mun auð­veld­ara að hafa yfir­sýn yfir þau, leita að þeim og eru þau örugg­ust í þínum höndum, segir Ranger. Það sé þó ekki gott ef öll gögnin eru geymd hjá einum aðila og bendir hann á að ekki sé hægt að nið­ur­hala gögnum frá til dæmis Facebook og geyma þau ann­ars staðar. Hann segir að þó sé til leið fram­hjá þessu vanda­máli. Með því að hlaða niður hug­bún­aði digi.me þá kemst fólk hjá því að fyr­ir­tækið sjálft sjái eða með­höndli gögnin.

Aðeins notandinn hefur aðgang að gögnum

Ranger vill sér­stak­lega taka það fram að digi.me sjái ekki gögnin eða varð­veiti þau á nokkurn hátt. Hug­bún­að­ur­inn sé þannig gerður að aðeins not­and­inn geymi gögnin og hafi aðgang að þeim. Til­gang­ur­inn með hug­bún­að­inum sé ein­ungis að gera not­and­anum kleift að nálg­ast sín per­sónu­legu gögn á auð­veldan hátt.

„Við byrj­uðum fyrst að safna gögnum af sam­fé­lags­miðlum þar sem not­endur sáu auð­veld­lega gildi þess,“ segir Ranger. Núna hafi þau hjá digi.me aftur á móti byrjað að safna ýmsum öðrum gögnum, eins og heilsu­fars- og fjár­mála­upp­lýs­ingum og upp­lýs­ingum um inn­kaup og fleira.

Notendur geta notað hug­bún­að­inn í hvaða tæki sem er, tölvu, spjald­tölvu og síma í gegnum hvaða ský sem er. Vinnsla gagn­anna og notkun er algjör­lega í þeirra höndum, segir Ranger.

Fyrirtæki taka oft gögn ófrjálsi hendi

„Við trúum því statt og stöðugt að eina mann­eskjan sem eigi að sjá um þín per­sónu­legu gögn eigi að vera þú,“ segir Ranger. Hann segir að þetta atriði skipti þau gríð­ar­lega miklu máli, sér­stak­lega í ljósi sið­ferði­legrar afstöðu. Fólk eigi sjálft að sjá um deil­ingu gagna og að hafa umsjón með sínu efni. Þess vegna hafi þau ákveðið að nefna gagna­grunn­inn Netið mitt.

Hann bendir þó á að þetta sé ekki raunin. Gögn séu alltaf að leka út þegar fólk notar öpp eða heim­sækir vef­síður. Stundum gefi not­endur leyfi en alls ekki alltaf.

Hvernig á losna við siðlausa gagnasöfnun?

En af hverju gera fyr­ir­tæki þetta svona þegar aug­ljóst er að það sé á sið­ferði­lega gráu svæði? Ranger telur að í heimi við­skipt­anna sé for­skot mjög mik­il­vægt fyrir fyr­ir­tæki til að afla tekna í gegnum kaup og sölu þjón­ustu. Hann segir að þetta muni breyt­ast þegar mark­að­ur­inn upp­götvar að það sé betra að fá leyfi til að nota gögn og þá verði auð­vitað neyt­endur ánægð­ari. „Þannig að þær fjár­hæðir sem eytt er í sið­lausa gagna­söfnun munu minnka þar til það er ekki lengur þess virði að eyða þeim þannig,“ segir hann.

Hægt er að hlusta á Julian Ranger útskýra hvernig digi.me virkar á síð­unni þeirra og nálg­ast frek­ari upp­lýs­ingar um Netið mitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gagnasöfnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár