Persónuvernd annar ekki eftirspurn

Eftir að ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf tók gildi síð­asta sumar hefur kvört­unum til Per­sónu­verndar fjölgað um 70 pró­sent en lög­gjöfin gerir fólki kleift að stýra sínum per­sónu­upp­lýs­ingum betur. Per­sónu­vernd hefur ekki náð að sinna eft­ir­spurn að öllu leyti.

Frá því að ný per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf tók gildi hér á landi fyrir ári síðan hefur kvört­unum til Per­sónu­verndar fjölgað um 70 pró­sent. Lög­gjöfin veitir ein­stak­lingum mögu­leika til að stýra sínum per­sónu­upp­lýs­ingum betur en á innan við ári hafa þús­und fyr­ir­spurnir borist Per­sónu­vernd. Vegna mann­eklu hefur stofn­unin hins vegar ekki náð að sinna eft­ir­spurn að öllu leyti. Frá þessu er greint á frétta­vef RÚV.

Einstaklingum veitt vald til að þekkja rétt sinn

[links]Ný per­sónu­vernd­ar­reglu­gerð tók gildi í Evrópu í maí í fyrra en reglu­gerðin var sam­þykkt af Evr­ópu­þing­inu og Evr­ópu­ráð­inu í apríl 2016. Reglu­gerðin gengur undir nafn­inu GDPR sem er stytt­ing á enska heit­inu General Data Protection Regulation og á íslensku heitir hún reglu­gerð um vernd ein­stak­linga í tengslum við vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga og um frjálsa miðlum slíkra upp­lýs­inga.

Á heima­síðu Per­sónu­verndar segir að sam­þykkt þess­ara end­ur­bóta marki tíma­mót í sögu per­sónu­vernd­ar­lög­gjafar í Evr­ópu. Um er að ræða umfangs­mestu breyt­ingar sem gerðar hafa verið á per­sónu­vernd­ar­lög­gjöf­inni í tvo ára­tugi sem stað­festa að sá grund­vall­ar­réttur sem felst í vernd per­sónu­upp­lýs­inga ein­stak­linga verði tryggður fyrir alla. Þessar laga­breyt­ingar eiga að gagn­ast öllum borg­urum Evr­ópu og að ein­stak­lingum þurfi að vera veitt vald til að þekkja rétt sinn svo þeir viti hvernig unnt sé að verja þann rétt ef hann er ekki virt­ur.[adspot]

Í kjöl­far reglu­gerð­ar­innar þurftu öll fyr­ir­tæki að sýna fram á að þau gætu verndað allar per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar ein­stak­linga. Fyr­ir­tækin þurfa einnig að geta upp­lýst fólk um alla með­ferð fyr­ir­tæk­is­ins og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga þeirra, sé eftir því leit­að.

Helga Þór­is­dóttir, for­stjóri Per­sónu­verndar, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í fyrra að sam­fé­lags­miðlar og önnur fyr­ir­tæki sem fólk þiggur þjón­ustu frá vera oft vera að vinna upp­lýs­ingar um ein­stak­linga langt umfram það sem flestir hafa gert sér grein fyr­ir. Nýju skil­mál­arnir séu nú allt öðru­vísi heldur en löngu not­enda­skil­mál­arnir sem not­endur hafa hingað til átt að venj­ast, og fæstir lásu þar sem þeir voru oft og tíðum upp á hund­ruð blað­síðna. „Nýja lög­gjöfin lætur þessi fyr­ir­tæki lýsa í mjög stuttu og auð­skilj­an­legu máli hvað þau eru að gera hvað varðar vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga.“

Helga benti jafn­framt á að reglu­gerðin teygir anga sína út fyrir Evrópu. „Fyr­ir­tæki sem eru að fylgj­ast með evr­ópskum rík­is­borg­urum eða eru starf­rækt á því svæði falla undir þessar breyt­ingar líka. Fyr­ir­tæki sem eru að fylgj­ast með hegðun fólks, bjóða vöru eða þjón­ustu óháð því hvort end­ur­gjald komi fyr­ir, þurfa að sína fram á hvernig þeir nota og fara með þessar upp­lýs­ing­ar,“ sagði Helga.

Fyrirspurnum til Persónuverndar fjölgað töluvert

Vernd per­sónu­upp­lýs­inga er tal­inn hluti af EES-­samn­ingnum og lög­gjöfin var því tekin upp í íslenskum rétti fyrir ári síðan, þann 15 júlí 2018. Þórður Sveins­son, skrif­stofu­stjóri lög­fræðis­viðs Per­sónu­verndar, segir í sam­tali við RÚV að lög­gjöfin gefi fólki mögu­leika til að stýra sínum per­sónu­upp­lýs­ingum betur. Frá því að lögin tóku gildi hafa þús­und fyr­ir­spurnir borist stofn­un­inni en allt árið 2017 voru þær 640.

Kvört­unum til Per­sónu­verndar hefur því fjölgað um 70 pró­sent á innan við ári en mann­ekla hjá stofn­un­inni hefur sett strik í reikn­ing­inn og Per­sónu­vernd hefur ekki náð að sinna eft­ir­spurn að öllu leyti.

Þórður segir að það sé ekki óal­gengt að máls­með­ferð­ar­tími nálgist ár eða jafn­vel heilt ár. „Þetta hefur leitt af sér að tals­verður fjöldi mála frá gild­is­tíð eldri laga hefur enn verið óaf­greiddur. Það sax­ast smám saman á þetta en þetta hefur auð­vitað orðið til þess að stofn­unin hefur ekki getað sinnt inn­leið­ingu á nýrri lög­gjöf eins og vel og ella hefði verið unnt,“ segir Þórður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gagnasöfnun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár