Hið lífseiga Nintendo

Saga Nintendo er um margt óvenju­leg. Tölvur frá fyr­ir­tæk­inu voru víða á heim­ilum en það hafa skipst á skin og skúrir í rekstr­inum í gegnum tíð­ina. Kristinn Haukur Guðnason kaf­aði ofan í óvenju­lega sögu þessa þekkta fyr­ir­tækis.

Japanska fyr­ir­tækið Nintendo hefur verið í tölvu­leikja­brans­anum í 44 ár, mun lengur en flestir sam­keppn­is­að­ilar þeirra. Saga Nintendo er þó mun lengri þar sem fyr­ir­tækið hefur komið víða við og stjórn­endur þess ekki verið hræddir við að taka áhættur. Marg­sinnis hefur fyr­ir­tækið verið á von­ar­völ en ávallt komið fíleflt til baka. Saga Nintendo er saga af útsjón­ar­semi, þraut­seigju, nýunga­girni og snilli­gáfu nokk­urra manna.

Spiladíler mafíunnar

Árið 1889 er merki­legt fyrir ýmsar sakir. Eiffel turn­inn var vígður, asperín kom á markað í fyrsta skipti, Jeffer­son Davis eini for­seti Suð­ur­ríkj­anna lést og Adolf Hitler fædd­ist sem og Charlie Chaplin. Þetta ár stofn­aði Fusajiro Yamauchi lítið verk­stæði í japönsku borg­inni Kyoto sem hann nefndi Nintendo Koppai. Nafnið Nintendo hefur valdið mönnum miklum heila­brotum en almennt er þó talið að það þýði látið himna­ríki um heppn­ina. Koppai þýðir korta­spil og það er það sem fyr­ir­tækið fram­leiddi fyrstu 74 árin. Á 19. öld var jap­anska keis­ar­anum og rík­is­stjórn­inni mjög í mun að taka fyrir allt fjár­hættu­spil í land­inu og því voru hefð­bundin korta­spil með tölum sem við þekkjum á vest­ur­löndum bönnuð með lögum. Yamauchi fram­leiddi aftur á móti svokölluð hanafuda spil, eða blóma­spil, sem höfðu lit­ríkar myndir af árs­tíðum og mán­uðum í stað talna. Hanafuda spil höfðu verið til um aldir í Japan en Yamauchi bjó til sín eigin spil með eigin leik­reglum, allt hand­gert af honum einum í upp­hafi.

Spil Yamauchi urðu vin­sæl og fljót­lega var farið að nota þau í fjár­hættu­spil. Japanska maf­ían, eða yakuza, stýrði umtals­verðu fjár­hættu­spili í Kyoto og liðs­menn hennar not­uðu spilin frá Nintendo. Orðið yakuza kemur einmitt úr hanafuda spila­mennsku og þýðir tap­hönd. Yamauchi nýtti sér þessa starf­semi og fram­leiddi meira að segja spil sem sér­stak­lega voru stíluð inn á þennan markað, tengu, sem ein­ungis fjár­hættu­spil­arar not­uðu. Vegna auk­inna umsvifa og vin­sælda (og gæða­krafna frá mafí­unni) stækk­aði Yamauchi við sig, réði inn starfs­fólk og hóf að fram­leiða spilin í vélum. Hann byggði upp fyr­ir­tækið hægt og bít­andi og upp úr alda­mót­unum voru spilin seld um ger­vallt landið. Árið 1929 tók Sekiryo Yamuchi, ætt­leiddur tengda­sonur Fusajiro, við fyr­ir­tæk­inu og efldi dreifi­kerfi þess til muna. Nú voru Nintendo spilin seld í flestum leik­fanga­versl­unum lands­ins og fyr­ir­tækið átti eftir að nota þetta dreifi­kerfi seinna meir. Sekiryo stýrði fyr­ir­tæk­inu í 20 ár þar sem það gekk undir ýmsum nöfnum en það var Hiroshi Yamauchi, þriðji for­seti Nintendo og afa­barn Sekiryo, sem umbreytti því eftir að hann tók við árið 1949.

Prófum allt

Hiroshi var metn­að­ar­fullur ungur maður þegar hann tók við stjórn fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­is­ins. Hann breytti fram­leiðslu fyr­ir­tæk­is­ins m.a. með því að fram­leiða plast­spil og gerði samn­ing við Disney um að fá að nota per­sónur úr þekktum teikni­myndum á spilin. Nýr mark­aður hafði opn­ast fyrir Nintendo, þ.e. börn. Annar mark­aður opn­að­ist líka þegar Nintendo hófu að prenta spil með nöktum konum á, þar á meðal Marilyn Monroe. En þetta var ekki nóg, Hiroshi vildi stækka Nintendo enn meir. Hann hélt til Banda­ríkj­anna árið 1953 og heim­sótti stærstu korta­spila­fram­leið­endur Banda­ríkj­anna en varð fyrir von­brigðum þegar hann sá hversu lítil þau fyr­ir­tæki voru í raun og veru. Seinna heim­sótti hann hið nýopn­aða Dis­neyland, varð heill­aður og sá hveru stór fyr­ir­tæki í skemmt­ana­iðn­að­inum gátu orðið. Þessi ferð opn­aði augu Hiroshi. Hann vissi að þó að Nintendo hefðu yfir­burða stöðu á jap­anska korta­spila­mark­að­inum þá yrðu umsvif fyr­ir­tæks­ins ávallt tak­mörkuð við þennan litla markað, nema hann gripi í taumana og tæki áhættu.

Hiroshi setti Nintendo á markað í kaup­höll­inni í Osaka árið 1962. Mikið nýtt fé rann inn í fyr­ir­tækið og hann ákvað að nýta það til að auka umsvifin. Það fyrsta sem honum datt í hug var að fram­leiða skyndi-hrís­grjón en þessum tíma voru skyndi-núðlur orðnar vin­sælar í Japan. Þetta gekk væg­ast sagt illa og Hiroshi hóf leit­ina að næstu gróða­von. Nintendo opn­uðu svokölluð ástar-hótel, þar sem við­skipta­vinir gátu dvalið í örfáa klukku­tíma, og leigu­bíla­stöðvar en bæði verk­efnin reynd­ust mis­heppnuð. Fyr­ir­tækið setti ýmsar vörur á markað svo sem kúlu­penna, ljós­rit­un­ar­vélar og plast­kubba sem voru í lag­inu eins og jarð­hnetur en flestar reynd­ust mis­heppn­aðar einnig. Eitt fræg­asta flopp Nintendo á þessum tíma var hin svo­kall­aða chiritorie sem var ryk­suga með fjar­stýr­ingu. Ofan á þetta dvín­uðu vin­sældir hanafuda spil­anna til muna. Mark­aðsvirði Nintendo hluta­bréfa hrundu úr 900 yenum niður í 60 og skuld­irnar hrönn­uð­ust upp. Eini ljósi punkt­ur­inn var leik­fanga­fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins. Nintendo herj­uðu inn á markað þar sem risar á borð Bandai og Tomy höfðu yfir­burða­stöðu. Nýlið­arnir höfðu þó tvennt á sínu bandi. Annars vegar öfl­ugt og rót­gróið dreifi­kerfi síðan á tímum Sekiryo og svo ungan snill­ing sem vann í einni verk­smiðj­unni. Gunpei Yokoi var raf­einda­fræð­ingur sem vann við við­hald véla en hann­aði ýmsa hluti í frí­tíma sínum. Þar á meðal teygj­an­lega klípu­hendi sem Hiroshi sá fyrir slysni. Varan var mark­aðs­sett sem Ultra hand og seld­ist í meira en milljón ein­tökum. [http://nintendo.wikia.com/wiki/Ultra_Hand] Í kjöl­farið var Yokoi gerður að leið­andi leik­fanga­hönn­uði innan fyr­ir­tæk­is­ins og Hiroshi átti ekki eftir að sjá eftir því. Yokoi hann­aði t.d. Ultra machine (vél sem varp­aði hafna­boltum) og Love tester (tæki sem mældi ást­ar­bylgur milli fólks) sem urðu gríð­ar­lega vin­sæl og festu nafn Nintento kyrfi­lega inn í leik­fanga­mark­að­inn í Japan. Þetta var þó aðeins byrj­unin. Á átt­unda ára­tugnum hófst hin eig­in­lega bylt­ing innan fyr­ir­tæk­is­ins.

Hin stafræna framtíð

Það má segja að tölvu­leikir hafi orðið til á átt­unda ára­tug sein­ustu aldar eða a.m.k. fóru þeir að verða iðn­aður sem fólk tók eftir. Fyrst í spila­kassa­sölum en svo inn á heim­ilum. Stjórn­endur Nintendo höfðu snemma mik­inn áhuga á að hasla sér völl á þessu sviði og tryggðu sér rétt­inn á að dreifa fyrstu sjón­varps­tengdu leikja­tölv­unni, Magnavox Odyssey, í Japan árið 1972. Tölvan var mjög frum­stæð og seld­ist ekki vel en fræ­unum var stráð. Leikja­tölvan var komin til að vera og Nintendo ætl­uðu að vera með. Til að byrja með ákváðu þeir að ein­beita sér að spila­kössum og árið 1975 kom út þeirra fyrsti tölvu­leikur EVR Race. Tveimur árum seinna réð Hiroshi Yamauchi inn ungan hönnuð að nafni Shigeru Miyamoto sem reynd­ist mikið gæfu­spor. Árið 1981 hann­aði hann bylt­ing­ar­kenndan spila­kassa­leik að nafni Donkey Kong sem er almennt tal­inn fyrsti palla-leik­ur­inn (plat­former). Leik­ur­inn átti upp­runa­lega að vera byggður á hinum spína­telsk­andi sjó­ara Stjána Bláa en leyfið frá kvik­mynd­aris­anum Paramount, sem átti rétt­inn á Stjána, fékkst ekki. Miyamoto bjó því til nýjar per­sónur til að prýða leik­inn, apann Donkey Kong og Mario sem var byggður á skap­vondum leigu­sala Nintendo í Banda­ríkj­unum Mario Segale.

Kvik­mynda­verið Uni­ver­sal fór í mál við Nintendo þar sem þeir töldu Donkey Kong vera stælun á hálf­nafna hans King Kong en því máli var vísað frá. Donkey Kong sló í gegn og þykir í dag einn besti spila­kassa­leikur allra tíma og er ennþá spil­aður víðs vegar um heim. Per­són­urnar Donkey Kong og sér í lagi Mario hlutu heims­frægð og áttu eftir að fylgja Nintendo alla tíð.

Hiroshi Yamauchi var með­vit­aður um að fram­tíð tölvu­leikj­anna væri ekki á spila­kassa­sölum heldur inni á heim­il­unum. Strax árið 1977 byrj­uðu Nintendo að fikta við að hanna tölvur með inn­byggðum leikjum sem hægt var að tengja við sjón­varps­tæki. Það sama ár kom Atari 2600 leikja­tölvan á markað og seld­ist í tugum millj­óna ein­taka. Mörg önnur fyr­ir­tæki fram­leiddu leikja­tölvur en gæði þeirra og leikj­anna voru mis­jöfn. Atari hrundu af stað eig­in­legu gull­graf­ara­æði í geir­anum sem lauk árið 1983 með algjöru hruni og gjald­þroti margra leikja­fyr­ir­tækja. Það voru hins vegar nýlið­arnir í Nintendo sem björg­uðu leikja­tölv­unni. Þetta sama ár settu þeir sína fyrstu tölvu, Famicom, á markað í Japan. Hún reynd­ist mein­gölluð og Nintendo þurftu að inn­kalla hana en hug­myndin var góð og Yamauchi gafst ekki upp. Tveimur árum seinna var hún end­ur­bætt og sett á markað um allan heim sem Nintendo Enterta­in­ment System, NES. Við­tök­urnar voru væg­ast sagt ótrú­legar. NES seld­ist í sam­an­lagt 62 millj­ónum ein­taka og fyrsti tölvu­leik­ur­inn, Super Mario Bros, seld­ist í 40 millj­ónum ein­taka (met sem stóð í 21 ár). Árið 1989 kom svo út hug­ar­fóstur Gunpei Yokoi, Game Boy. Það var hand­leikja­tölva sem seld­ist í tæp­lega 120 milljón ein­tökum. Fyr­ir­tækið sem byrj­aði með einum mynd­list­ar­manni á verk­stæði hund­rað árum áður var nú orðið langstærsta tölvu­leikja­fyr­ir­tæki heims­ins.

Leikjastríð

Einokun Nintendo á mark­að­inum stóð ein­ungis yfir í nokkur ár eða þangað til að annað jap­anskt leikja­fyr­ir­tæki, Sega, fór að láta á sér kræla. Árið 1988 settu Sega leikja­tölv­una Mega Drive (seinna Genesis) á markað og vin­sældir hennar juk­ust með hverju árinu í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins. Nintendo svör­uðu með Super Nintendo Enterta­in­ment System (SNES). Á þessum tíma kom fram aug­ljós munur á fyr­ir­tækj­unum. Leikir Sega voru stíl­aðir inn á eldri mark­hóp, voru hraðir og margir hverjir mjög blóð­ugir. Nintendo pössuðu aftur á móti upp á að hafa sína leiki sem fjöl­skyldu­vænsta. Þá kom fram gagn­rýni á fyr­ir­tækið sem hefur loðað við það allar götur síðan, þ.e. að þeir geri tölvu­leiki fyrir börn. Sega náðu að toppa Nintendo í sölu eitt árið en heilt yfir unnu Nintendo stríðið við Sega. SNES var ein­fald­lega betri tölva með betri stýr­ingu. Stýring Nintendo leikj­anna hefur ávallt verið helsta aðals­merki fyr­ir­tæk­is­ins og meiri áhersla lögð á hana heldur en aðra þætti eins og grafík eða hljóð.

Á meðan stríðið við Sega stóð sem hæst var annað og stærra stríð í gerjun. Raf­tækj­aris­inn Sony var að koma inn á mark­að­inn og það voru Nintendo sem vöktu hann. Nintendo sömdu við Sony um að búa til leikja­tölvu fyrir sig þar sem leik­irnir yrðu bæði á hefð­bundnum leikja­hylkjum og geisla­diskum en riftu samn­ingnum vegna deilna um skipt­ingu gróð­ans. Sú tölva átti að heita Nintendo Play Station. Þess í stað ákváðu Sony að fram­leiða tölv­una sjálfir og árið 1994 kom hún á markað sem ein­fald­lega PlayStation. PlayStation ger­sigr­aði mark­að­inn með meira en 100 milljón seld ein­tök. Næsta tölva Sony, PlayStation 2, varð mest selda leikja­tölva allra tíma með meira en 150 milljón seldra ein­taka. Vin­sældir Nintendo dvín­uðu þrátt fyrir góða dóma þeirra tölva, Nintendo 64 og GameCube. Sega ját­uðu sig sigr­aða eftir útgáfu hinnar mis­heppn­uðu Saturn tölvu og ákváðu að ein­beita sér ein­göngu að gerð tölvu­leikja í fram­tíð­inni. Fram­tíðin leit ekki vel út fyrir Nintendo þegar banda­ríski tölvuris­inn Microsoft herj­aði svo inn á mark­að­inn árið 2001 með vél sinni XboX. Hvernig gat Nintendo sigrað tvö risa­stór alþjóða­fyr­ir­tæki með breitt vöru­úr­val? Nintendo höfðu ekk­ert annað bak­land en tölvu­leiki.

Rússíbani Iwata

Svarið fólst í nýjum for­seta Nintendo. Árið 2002 steig Hiroshi Yamauchi loks­ins til hliðar eftir ótrú­legt 53 ára umbreyt­ing­ar­skeið fyr­ir­tæks­ins og við tók Satoru Iwata. Iwata hóf feril sinn með því að festa fyr­ir­tækið í sessi í hand­tölvum með útgáfu Nintendo DS sem sló meira að segja Game Boy við. En Iwata vissi að til að lifa af yrðu Nintendo að ná vopnum sínum á ný í gerð sjón­varps­tölva. Sony og Microsoft höfðu öfl­ugt dreifi­kerfi og fram­leiddu kraft­miklar tölvur sem erfitt var að keppa við. Nintendo ákváðu því að fara í aðra átt. Árið 2006 gáfu þeir út Wii, sem reynd­ist alger bylt­ing. Tölvan var ekki nærri eins öflug og tölvur helstu keppi­nauta þeirra en gald­ur­inn var fólg­inn í fjar­stýr­ing­unni og hreyfiskynjara sem nam hana. Skyndi­lega opn­að­ist alger­lega nýr mark­aður, þ.e. fólk sem venju­lega hefði ekki gaman að tölvu­leikjum. Stýr­ingin svo ein­föld að hver sem er gat spilað leik­ina, algjör and­staða við sífellt flókn­ari stýr­ingu hinna leikja­tölvanna. Margir Wii leikir kröfð­ust einnig mik­illar hreyf­ingar og Nintendo not­uðu þetta til að draga að fólk sem stund­aði lík­ams­rækt, yoga og fleira. Wii tölvur fóru að sjást í kennslu­stofum, end­ur­hæf­ing­ar­stöðvum og öldr­un­ar­heim­ilum. Nintendo sem höfðu verið afskrif­aðir ein­ungis nokkrum árum áður voru skyndi­lega komnir aftur á topp­inn. Wii seld­ist í meira en 100 millj­ónum ein­taka og DS í meira en 150 millj­ónum. Árið 2007 var Nintendo orðið næst verð­mætasta fyr­ir­tæki Japan (á eftir Toyota) og skar­aði frammúr aðal­keppi­nautnum Sony.

En gæfan í tækni­geir­anum er fall­völt. Nýjasta afurð Nintendo, Wii U, hefur ekki reynst fyr­ir­tæk­inu jafn vel þrátt fyrir mun öfl­ugri vél og mikla útsjón­ar­semi með til­komu snert­iskjás. Ofan á það hefur nýjasta hand­tölvan, 3DS, valdið tölu­verðum von­brigðum. Áhrif snjall­síma­leikja eru aug­ljós og Nintendo sem og aðrir þurftu að taka á sig tölu­vert högg vegna minnk­andi eft­ir­spurnar hand­tölvu­leikja. Árið 2011 hrundu hluta­bréf í fyr­ir­tæk­inu og talið er að stærsti hlut­haf­inn, hinn aldni Hiroshi Yamauchi hafi tapað um 300 millj­ónum doll­ara á einum degi það árið. Þetta var jafn­framt fyrsta tapár fyr­ir­tæk­is­ins í 30 ár. Satoru Iwata lést úr krabba­meini í júlí síð­ast­liðnum ein­ungis 55 ára að aldri og við tók Tatsumi Kis­hishima, fyrr­ver­andi for­stjóri Pokémon. Nintendo hafa látið lítið fyrir sér fara síðan hann tók við en þó hefur verið til­kynnt um nýja leikja­tölvu, titluð NX, sem áætlað er að komi út í mars árið 2017. Mikil leynd er yfir verk­efn­inu en Kis­hishima hefur lofað að það verði óvænt og bylt­ing­ar­kennt. Nintendo hafa alltaf haldið sér á mark­að­inum fyrst og fremst vegna útsjón­ar­semi og nýsköð­unar. Hvort að NX verði næsta snilld eða bana­biti fyr­ir­tæk­is­ins verður að koma í ljós því að Nintendo hafa ekk­ert annað bak­land til að falla á. Ef undan eru skilin hanafuda spilin sem þeir hafa fram­leitt sam­fellt í 127 ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leikir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár