Ekki hægt að fá upplýsingar um CFC skil

Rík­is­skatt­stjóri hefur ekki upp­lýs­ingar um fjölda þeirra sem skila CFC eyðu­blaði með skatt­fram­tali sínu. Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að aðeins rekstr­ar­fé­lög þurfi að standa skil á slíku, en það stenst ekki.

Rík­is­skatt­stjóri hefur ekki upp­lýs­ingar um það hversu margir aðilar, og þar af hversu margir ein­stak­lingar, hafa skilað CFC eyðu­blaði með skatt­fram­tölum sínum frá því að lög­gjöfin þar um tók gildi árið 2010. Þetta kemur fram í svari Skúla Eggerts Þórð­ar­sonar rík­is­skatt­stjóra við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Skúli Eggert segir að CFC-eyðu­blaðið sé fyrst og fremst verk­færi til að leiða fram ákveðnar upp­lýs­ingar, það er „skatt­stofna þar sem félag á lág­skatta­svæði er skatt­lagt hjá eig­and­anum eins og ekk­ert félag væri fyrir hendi. Skatt­lagn­ing verður þá hin sama og ein­stak­lingur í atvinnu­rekstri með þeim reglum sem um slíka skatt­lagn­ingu gilda.“

Ástæða þess að rík­is­skatt­stjóri er ekki með þessar upp­lýs­ingar er að í mörgum til­vikum er það svo að pdf-skjöl fylgi með skatt­fram­tali án þess að þau séu tölvu­tekin. „Í ein­hverjum til­vikum fylgir blaðið ekki, en réttir skatt­stofnar eru leiddir fram með öðrum hætti. Þá er það nægj­an­legt,“ segir rík­is­skatt­stjóri.

Engin íslensk kennitala

CFC lög­gjöfin tók gildi í byrjun árs 2010. CFC stendur fyrir Controlled Foreign Corporation, erlend fyr­ir­tæki, félög eða sjóði í lág­skatta­ríkjum í eigu, eða undir stjórn íslensks eig­anda, hvort sem sá eig­andi er félag eða ein­stak­lingur. Lögin kveða meðal ann­ars á um að greiða skuli tekju­skatt hér á landi af hagn­aði félags sem íslenskur skatt­að­ili á en er í lág­skatta­ríki. Íslend­ingar sem eiga félög á lág­skatta­svæðum eiga að skila sér­stöku fram­tali með skatt­fram­tal­inu sínu vegna þessa, skýrslu ásamt grein­ar­gerð þar sem meðal ann­ars eru sund­ur­lið­aðar tekj­ur, skatta­legar leið­rétt­ing­ar, arðsút­hlutun og útreikn­ingur á hlut­deild í hagn­aði eða tapi á grund­velli árs­reikn­inga, sem eiga að fylgja. Ef það er ekki gert brýtur það í bága við lög um tekju­skatt.

Eins og komið hefur fram í fréttum hafa fjöl­miðlar ítrekað leitað svara við því hvort Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og eig­in­kona hans, Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, hafi talið fram félagið Wintris í sam­ræmi við CFC regl­urnar. Kjarninn hefur ítrekað leitað svara við þessu frá því skömmu eftir að Anna Sig­ur­laug greindi frá til­vist fyr­ir­tæk­is­ins, en fyr­ir­spurnum hefur ekki verið svarað. Fleiri fjöl­miðlar hafa einnig spurst fyrir um málið. Í við­tali við Morg­un­blaðið um síð­ustu helgi sagði Sig­mundur Davíð að CFC lög­gjöfin taki bara til rekstr­ar­fé­laga. Félagið Wintris hafi hins vegar ekki verið rekstr­ar­fé­lag.

Þetta er ekki rétt sam­kvæmt upp­lýs­ing­unum sem fram koma um CFC félög á vef rík­is­skatt­stjóra. Þar kemur fram að það eigi að skila CFC eyðu­blaði ef:

  • Félagið, sjóð­ur­inn eða stofn­unin er stað­sett í lág­skatta­ríki. Þau ríki telj­ast lág­skatta­ríki ef sá tekju­skattur sem lagður er á lög­að­il­ann ytra er lægri en tveir þriðju hlutar af þeim tekju­skatti sem hefði verið lagður á lög­að­il­ann hefði hann verið heim­il­is­fastur á Íslandi og
  • Íslenskir skatt­að­ilar, einn eða fleiri saman, eiga beint eða óbeint minnst helm­ing í CFC-félag­inu eða stjórn­un­ar­leg yfir­ráð þeirra hafa verið til staðar innan tekju­árs. Ekki er litið til eign­ar­halds hvers ein­staks eig­anda við ákvörðun þess hvort skil­yrði telst upp­fyllt, heldur sam­eig­in­legs eign­ar­halds eða stjórn­un­ar­legra yfir­ráða allra íslenskra skatt­að­ila í hinu erlenda félagi.

Engin önnur skil­yrði eru til­tekin. Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri vill ekki tjá sig um ein­staka ummæli, en for­veri hans, Indriði H. Þor­láks­son, hefur sagt að ummæli eins og Sig­mundar Davíðs séu jafn­vel til­raun til blekk­ingar.

„Eign­ar­halds­fé­lag eða hvað annað félag sem starfar í þeim til­gangi að sýsla með eignir og afla tekna fyrir eig­anda sinn er með atvinnu­starf­sem­i skv. þeim lögum sem hér skipta máli, þ.e. tekju­skatts­lag­anna. Hvort sem ­tekj­urnar eru afrakstur af sölu á vöru eða þjón­ustu, þókn­an­ir, arð­ur, tekjur af ­eigna­sölu, þ.m.t. fast­eignum eða vextir af banka­inni­stæð­um, skulda­bréfum o.s.fr. eru það skatt­skyldar tekjur af atvinnu­rekstri í skiln­ingi þeirra laga. Það skipt­ir og engu hvort félagið hefur starfs­menn á sínum snærum eða kaupi þjón­ustu af öðr­um,“ skrif­aði hann í grein í Kjarn­anum fyrir skömmu.

Einnig kemur fram á vef rík­is­skatt­stjóra að CFC félög eiga að hafa íslenska kenni­tölu til þess að skila til­skildum gögnum til rík­is­skatt­stjóra. „Án íslenskrar kenni­tölu er ekki hægt að skila til­skildum gögnum til rík­is­skatt­stjóra.“

Félagið Wintris er ekki með íslenska kenni­tölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár