Flestir vilja að nýr Landsspítali rísi á Vífilsstöðum

Um 50 pró­sent lands­manna vilja að nýr Lands­spít­ali rísi á Víf­ils­stöðum í Garðabæ. 39,6 pró­sent vilja að hann rísi við Hring­braut, þar sem spít­al­inn stendur nú. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup vann fyrir Við­skipta­blaðið og birt er í því í dag. Aðrir mögu­leikar, eins og Keldna­holt eða Foss­vogur, eru mun óvin­sælli og 7,5 pró­sent vilja að spít­al­inn rísi á öðrum stað en ofan­greindum fjórum. Unnið er að því að reisa nýja spít­al­ann við Hring­braut.

Ekki er mik­ill munur á afstöðu fólks til þess hvort nýr spít­ali rísi við Hring­braut eða á Víf­ils­stöðum þegar hún er skoðuð út frá aldri, tekjum kyni eða menntum. Eldra fólk er þó eilítið hlynnt­ara upp­bygg­ingu á Víf­ils­stöðum en stuð­ingur við upp­bygg­ingu við Hring­braut er meiri hjá yngsta ald­urs­hópnum.

Mikill munur er hins vegar á afstöðu fólks þegar hún er greind eftir því hvaða stjórn­mála­flokka það myndi kjósa. Þar kemur í ljós að stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks (62 pró­sent) og Fram­sókn­ar­flokks (73 pró­sent) eru þeir sem vilja helst sjá nýjan spít­ala rísa á Víf­ils­stöðum. Mestur stuðn­ingur við Hring­braut­ar­lausn­ina er hins­vegar hjá stuðn­ings­mönnum Sam­fylk­ingar (75 pró­sent) og Vinstri grænna (64 pró­sent). Píratar eru nokkuð skiptir í afstöðu sinni. Um 45 pró­sent þeirra vilja Víf­ils­staði en 45 pró­sent vilja Hring­braut.

Spurt var „Hvar vilt þú að nýr Land­spít­ali rísi“ og voru svar­mögu­leik­arnir „Á Víf­ils­stöðum“ og „Við Hring­braut“ birtir svar­endum í til­vilj­un­ar­kenndri röð. Alls voru svar­endur 867 tals­ins og af þeim tóku 669 afstöðu. 

Alveg öruggt að spítalinn verður við Hringbraut

Sitjandi rík­is­stjórn vinnur að upp­bygg­ingu nýs Lands­spít­ala við Hring­braut. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, varp­aði því sprengju inn í stjórn­ar­starf rík­is­stjórnar sinnar í síð­asta mán­uði þegar hann opin­ber­aði þann vilja sinn í gær að byggja nýjan Lands­spít­ala við Víf­ils­staði. Sig­mundur skrif­aði þá grein á vef­síðu sína þar sem hann lýsti yfir þeim vilja sínum. Í Morg­un­blað­inu dag­inn áður hafði verið rætt við bæj­ar­stjór­ann í Garðabæ um mögu­leik­ann á upp­bygg­ingu Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Bæj­ar­yf­ir­völd þar segj­ast reiðu­búin í sam­starf um bygg­ingu nýs spít­ala þar, og hægt sé að liðka fyrir mál­inu á ýmsan hátt.

Sig­mundur Davíð ræddi hvorki við Krist­ján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra né stjórn­endur Lands­spít­al­ans áður en að hann varp­aði fram þess­ari hug­mynd sinni. Krist­ján Þór sagði í kjöl­farið í við­tali við Rás 2 að vinnu­brögð Fram­sókn­ar­flokks­ins vegna upp­bygg­ingu nýs Lands­spít­ala væru ekki boð­leg. Alveg öruggt væri að Land­spít­al­inn muni verða við Hring­braut, þar sem ­upp­bygg­ing hans stendur nú yfir. Alþingi hafi tekið þá ákvörðun með lögum árið 2010, sem síðan var aftur stað­fest í lögum árið 2013.

Í við­tal­inu sagði heil­brigð­is­ráð­herra að hann hefði fyrst heyrt af hug­myndum Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar ­for­sæt­is­ráð­herra um stað­setn­ingu Lands­spít­al­ans á Víf­il­stöðum í Garðabæ á föstu­dag í fjöl­miðl­um. „Fjár­mála­ráð­herra og for­mað­ur­ ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins heyrði það sömu­leiðis í fyrsta skipti á föstu­dag­inn. Þetta eru ekki vinnu­brögð til fyr­ir­myndar bara svo það sé sagt það er ein­fald­lega mín ­skoð­un.“

Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í síð­ustu viku vegna aflands­fé­laga­hneyksl­is­ins og ný rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, undir for­sæti Sigurðar Inga Jóhanns­sonar tók við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár