Sigmundur: Hægt að nota arð úr bönkum í nýjan spítala við Vífilsstaði

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra vill að stjórn­völd skoði hvort ekki sé best að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði í Garðabæ. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar á vef­síðu sína í dag.

Í Morg­un­blað­inu í dag er rætt við bæj­ar­stjór­ann í Garðabæ um mögu­leik­ann á upp­bygg­ingu Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Bæj­ar­yf­ir­völd þar segj­ast reiðu­búin í sam­starf um bygg­ingu nýs spít­ala þar, og hægt sé að liðka fyrir mál­inu á ýmsan hátt.

Sig­mundur Davíð er mjög jákvæður gagn­vart þess­ari hug­mynd. „Mér finnst ekki hægt að líta fram­hjá þessum kosti nú þegar bæj­ar­stjór­inn hefur stigið fram með þeim hætti sem hann gerði,“ skrifar Sig­mundur. Hann hafi oft á und­an­förnum árum lýst þeirri skoðun sinni að hann telji æski­legt að reisa nýjan spít­ala ann­ars staðar en við Hring­braut, eins og nú er áformað.

„Að mínu mati ber stjórn­völdum að bregð­ast við þessu til­boði Garða­bæjar, taka því fagn­andi og skoða hvort ekki sé best, í ljósi allra aðstæðna að ráð­ast í bygg­ingu nýs Land­spít­ala við Víf­ils­staði. Með því væri hægt að byggja spít­al­ann hraðar, á hag­kvæm­ari hátt og miklu, miklu betur.“

Á Víf­ils­stöðum væri hægt að hanna nýjan glæsi­legan spít­ala frá grunni, segir Sig­mundur Davíð. „Allt fyrsta flokks í sam­ræmi við mögu­leika og þarfir sam­tím­ans. Enginn fjár­austur í að reyna að gera við hálf­ónýta hluti, tjasla því saman sem ekki passar saman og laga óhent­ugar bygg­ingar að heil­brigð­is­þjón­ustu 21. aldar. Allt hannað sem ein heild sem vinnur eins og vél um leið og hugað er að mann­lega þætt­inum, því að fólki líði vel í umhverf­inu og það sé til þess fallið að lyfta and­anum og stuðla að betri and­legri og lík­am­legri líðan sjúk­ling, gesta og starfs­fólks.“ 

Hann segir að margt muni vinna með ef spít­al­inn verði byggður á nýjum stað. Ekki bara staða rík­is­sjóðs sem hafi batnað. „Verðmæti fast­eigna og lóða í miðbæ Reykja­víkur hefur hækkað gríð­ar­lega frá því að síð­ast var lagt mat á stað­setn­ingu spít­al­ans. Með því að selja hús­næði og lóðir gætu ríki og borg náð tug­millj­arða tekjum. Þessar tekjur gæti rík­is­sjóður nýtt til að standa straum af umtals­verðum hluta bygg­ing­ar­kostn­aðar nýs spít­ala.“

Hægt væri að selja hús­næði og lóðir og nýta fjár­magn strax til að flýta fyrir fram­kvæmdum á nýjum stað þótt spít­al­inn myndi ekki flytja strax. „Einnig gæti ríkið veitt öðru fjár­magni, t.d. arði úr bönk­unum í spít­ala­bygg­ing­una þar til tekjur af sölu eigna við Hring­braut skil­uðu sér.“ Aðrar leiðir komi til greina en hvaða leið sem farin yrði „myndu tugir millj­arða skila sér í rík­is­sjóð við það að færa spít­al­ann. Peningar sem ekki yrðu til ella.“ Þá pen­inga mætti nýta í aðra inn­viða­upp­bygg­ingu, ekki síst á lands­byggð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár