Rannsókn á millifærslum til Pace í Panama lokið

Embætti sér­staks sak­sókn­ara, nú hér­aðs­sak­sókn­ari, hefur árum saman rann­sakað lán­veit­ingu Fons til Pace í apríl 2007. Rann­sókn­inni er nú lokið og er beðið er ákvörð­unar um hvort ákært verði í mál­inu eða ekki.

Rannsókn á þriggja millj­arða króna lán­veit­ingu frá íslenska fjár­fest­inga­fé­lag­inu Fons, þá í eigu athafna­mann­anna Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­sonar, til félags­ins Pace Associates í apríl 2007 er lokið hjá hér­aðs­sak­sókn­ara, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Málið hefur verið í rann­sókn hjá emb­ætt­inu árum saman. Nú er beðið ákvörð­unar um hvort sak­sótt verði í því eða ekki. Samkvæmt frétta­flutn­ingi DV og RÚV árið 2010 runnu millj­arð­arnir þrír að end­ingu í vasa Pálma og athafna­mann­anna Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Hannesar Smára­sonar. Þeir hafa ætið neitað því.

Pace Associates er skráð til heim­ilis í Panama og var sett á fót af lög­fræði­stof­unni Mossack Fonseca, sem nú er í kast­ljósi fjöl­miðla út um allan heim vegna leka á 11,5 milljón skjölum frá henni. Skjölin sýna víð­ferma aflands­fé­laga­eign sem Mossack Fonseca hefur búið til fyrir við­skipta­vini banka út um allan heim. Um er að ræða stærsta leka heims­sög­unnar.

Þegar hefur verið upp­lýst um aflands­fé­laga­eign íslenskra stjórn­mála­manna. Sú opin­berun hefur þegar leitt til þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra Íslands vegna aðkomu sinnar að aflands­fé­lag­inu Wintris. Auk þess varp­aði hún ljósi á tengsl for­manns og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarna Bene­dikts­sonar og Ólafar Nordal, við aflands­fé­lög.

Í skjöl­unum eru hins vegar upp­lýs­ingar um alls 800 aflands­fé­lög sem tengj­ast 600 Íslend­ingum. Því er ljóst að mikið magn upp­lýs­inga um aflands­fé­laga­eign, og umfang þeirra eigna sem vistaðar eru í slíkum, eiga enn eftir að koma fram.

The Sunday Times setti í gær í loftið leit­ar­vél sem nær yfir 37 þús­und félög sem tengj­ast Mossack Fonseca og skatta­skjól­inu Panama. Eitt þeirra félaga sem hægt er að finna þar er áður nefnt Pace Associates. Í upp­lýs­ing­unum kemur fram að félagið hafi verið stofnað 20. júní 2005 en lagt niður 26. nóv­em­ber 2010.

Fjölmiðlaumfjöllun fyrir sex árum síðan

Félagið Pace var mikið til umfjöll­unar í íslenskum fjöl­miðlum árið 2010. Þá fjall­aði DV um það í tengslum við þriggja millj­arða króna lán­veit­ingu fjár­fest­inga­fé­lags­ins Fons, þá í eigu athafna­mann­anna Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­sonar, til Pace Associates í apríl 2007.

RÚV sagði fréttir af því árið 2010 að pen­ing­arnir sem lán­aðir voru til Pace hafi á end­anum runnið í vasa Pálma, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Hannesar Smára­sonar. Lána­við­skiptin fóru fram í gegnum Lands­banka Íslands í Lúx­em­borg, en sá banki var í miklum við­skiptum við lög­fræði­stof­una Mossack Fonseca í Panama um stofnun aflands­fé­laga. Í frétt­inni sagði að lána­samn­ing­ur­inn hafi verið útbú­inn sex dögum eftir að milli­færsla fjár­hæð­ar­innar átti sér stað og um hafi verið að ræða svo­kallað kúlu­lán þar sem öll fjár­hæðin var á gjald­daga þremur árum eftir gerð lána­samn­ings­ins. Í frétt­inni var enn fremur sagt frá því að sama dag og gengið var frá lána­samn­ingnum, þremur árum fyrir gjaldaga, hafi lánið í heild verið afskrifað í bók­haldi Fons.

Höfðuðu meiðyrðamál og unnu

Jón Ásgeir og Pálmi höfð­uðu meið­yrða­mál gegn frétta­mann­inum sem sagði frétt­ina og unnu þau á end­anum fyrir Hæsta­rétti. Frétta­mað­ur­inn, Svavar Hall­dórs­son, sagði í Facebook-stöðu­upp­færslu í kjöl­far dóms í mál­inu sem Jón Ásgeir höfð­aði: "Fréttin er sönn, til eru gögn fyrir öllum efn­is­at­riðum umræddrar við­skiptafléttu og málið er til rann­sóknar á fleiri en einum stað í kerf­inu (eins og stað­fest er í yfir­lýs­ingu Sérstaks sak­sókn­ara). Sá hluti frétt­ar­innar sem fjall­aði um hvernig yfir­völd töldu raun­veru­lega í pott­inn búið, byggð­ist hins vegar á trún­að­ar­upp­lýs­ingum frá heim­ild­ar­mönnum sem ekki geta komið fram. Þeirra trún­aði mun ég ekki bregð­ast! Jóni Ásgeiri tókst engan vegin að sýna fram á að neitt rangt við frétt­ina – enda er þetta allt rétt."

Heim­ildir Kjarnans herma að rann­sókn máls­ins sé nú lokið og að það bíði ákvörð­unar sak­sókn­ara um hvort ákært verði í mál­inu eða ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár