Sigmundur gekk út úr Wintris-viðtali 11. mars

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seldi sam­býl­is­konu sinni, Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttur, 50 pró­senta hlut sinn í Wintris árið 2009, 31. des­em­ber. Hann gerði aldrei grein fyrir þessum eignum í hags­muna­skrán­ingu. Kaup­verðið var einn doll­ari. Engar upp­lýs­ingar þurfti að gefa upp um félagið þar sem kaupin fóru fram fyrir ára­mótin, því ný lög tóku gildi 2010. Þetta kom fram í sér­stökum Kast­ljós­þætti sem sýndur er nú á RÚV um umfangs­mesta gagna­leka í sög­unni. Elstu gögnin eru frá 1977 og nýj­ustu frá des­em­ber í fyrra. Meira en 11 millj­ónir skjala er að finna í gögn­unum, sem koma frá einni valda­mestu lög­fræði­stofu í Panama, Mossack Fonseca.

Sig­mundur Davíð er þar á lista ásamt 11 öðrum þjóð­ar­leið­togum, til dæmis sheikh Mohammad Bin Khalifa Al-Thani, sem Íslend­ingar þekkja í tengslum við Al-Thani málið, og Pútín Rúss­lands­for­seti.

Eins og greint hefur verið frá er Wintris skráð á Tortólu. Svo virð­ist sem öll skrán­ing í kring um félagið sé á reiki, og bendir margt til að eigna­skrán­ingin sé dag­sett aftur í tím­ann. Mikið er lagt á sig að fela eigna­hlut­inn í Wintris og þarf maður að grafa tölu­vert til að finna hina raun­veru­legu eig­endur, Önnu Sig­ur­laugu og Sigmund Davíð. Wintris átti kröfur í bú Glitnis. Sig­mundur Davíð skráði aldrei tengsl sín við Wintris í hags­muna­skrán­ingu á Alþingi og ekk­ert bendir til þess að eign­ar­haldið hafi verið rangt skráð.

Neitaði að hafa selt hlutinn á dollar

Sig­mundur Davíð var spurður út í tengsl sín við Wintris í sjón­varps­við­tali við sænskan rann­sókn­ar­blaða­mann, þann 11. mars síð­ast­lið­inn. Upp­haf­lega byrj­uðu þeir að ræða um kaup íslenska rík­is­ins á gögnum úr skatta­skjólum og Sig­mundur undri­strik­aði hversu mik­il­vægt það væri að byggja upp traust í sam­fé­lag­inu og velta við öllum steinum. Þegar spurn­ing­arnar fóru að snú­ast um Wintris kom hik á Sigmund og hann neit­aði að tjá sig um málið. Hann neit­aði því í við­tal­inu að hafa selt hlut sinn á einn doll­ara. Þetta end­aði með því að Sig­mundur gekk út úr við­tal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár