Spjaldtölvur og sædýr, veðrið og Wintris

Úrvalið í Hlað­varpi Kjarnans var fjöl­breytt að vanda þessa helg­ina. Hug­leið­ingar um hvort sædýr gætu tengst skatta­skjólum, spjald­tölvur yfir­tekið skól­ana og veðrið fellt rík­is­stjórn­ina var meðal þess sem var velt upp.

Í Hlaðvarpi Kjarnans um helgina er tenging sædýra og skattaskjóla meðal annars afhjúpuð.
Í Hlað­varpi Kjarnans um helg­ina er teng­ing sædýra og skatta­skjóla meðal ann­ars afhjúpuð. Mynd: EPA

Rit­stjór­arnir Þórður Snær Júl­í­us­son og Þórunn Elísabet Boga­dóttir spurðu sig hvort veðrið gæti lagt rík­is­stjórn­ina að velli í Kvikunni á föstu­dag. Wintris-málið var krufið, farið yfir vanga­veltur um hvað komi til með að ger­ast á mánu­dag þegar þing hefst að nýju og hvort mót­mælin hafi áhrif. Í Kvikunni er einnig rætt um aflétt­ingu á leynd á gögnum, inn­an­lands­flug í Keflavík, Obama, hvort fíkni­efna­neysla sé glæpur eða heil­brigð­is­mál og söl­una á Borgun.

Í Tækni­varpi helg­ar­innar fá þeir Gunn­laugur Reynir og Atli Stefán þau Magnús Haf­liða­son, fram­kvæmda­stjóra Domino's í Noregi, og Elísa­betu K. Ben­ón­ýs­dóttur, kennslu­ráð­gjafa í tölvu- og upp­lýs­inga­tækni í Hofs­staða­skóla, í heim­sókn. Þau ræddu notkun snjall­tækja við kennslu og veltu fyrir sér hvort tækin muni leysa bækur af hólmi í náinni fram­tíð.

Freyr Eyj­ólfs­son hitti Þorkel Heið­ars­son nátt­úru­fræð­ing og fór með hann Undir smá­sjánna. Þorkell hefur skoð­anir á flestu og ræðir skatta­skjól og sædýra­söfn – og sér meira að segja eitt­hvert sam­hengi þarna á milli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár