Pay analytics sigurvegari Gulleggsins 2016

Gul­leggið var veitt í níunda sinn í Háskól­anum í Reykja­vík í dag.

Verðlaunin voru veitt í Háskólanum í Reykjavík í dag.
Verð­launin voru veitt í Háskól­anum í Reykja­vík í dag. Mynd: Birgir Þór

Pay Analytics vann Gul­leggið í ár og hlýtur í verð­laun eina milljón íslenskra króna. Gul­leggið er stærsta frum­kvöðla­keppni á Íslandi og er nú haldin í níunda sinn. Í öðru sæti varð Platome líf­tækni og í því þriðja Zeto. Tíu hug­myndir kepptu til úrslita í keppn­inni í ár en hátt í 200 umsóknir bár­ust. Hægt er að kynna sér öll teymin á Gul­leggs­síðu Kjarnans.

Kjarninn veitti Tipster verð­laun en hug­mynd þeirra Óskars Adams­sonar, Gunnars Torfa Stein­ars­sonar og Einars Tryggva Leifs­sonar var valin vin­sælasta hug­myndin af almenn­ingi eftir kosn­ingu hér á Kjarninn.is. Almenn­ingi gafst kostur á að kjósa milli hug­mynd­anna tíu sem kepptu til úrslita í ár.

Tipster er app sem veitir hverjum sem er ráð­gjöf í veð­málum um úrslit íþrótta­leikja. Þjón­ustan hefur verið í þróun í meira en ár með það að mark­miði að ein­falda aðgengi að gróða­væn­legri veð­mála­ráð­gjöf.

Icelandic Startups stendur árlega fyrir keppn­inni í sam­starfi við Háskóla Íslands, Háskólan í Reykja­vík og Lista­há­skóla Íslands. Auk aðal­verð­laun­anna voru veit pen­inga­verð­laun fyrir annað og þriðja sætið að upp­hæð 500.000 og 300.000 krónum. Þá voru veitt auka­verð­laun í ýmsum flokkum.

Mark­miðið með keppn­inni er að hjálpa ein­stakklingum að láta hug­myndir sínar verða að veru­leika. Gul­leggið hefur verið stökk­pallur fyrir mörg fyr­ir­tæki sem hafa náð langt og stækkað eftir þátt­töku. Má þar til dæmis nefna Meniga, Clara, Radiant Games og Pink Iceland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gulleggið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár