Valið úr tíu hugmyndum í Gullegginu 2016

Gul­leggið 2016 verður veitt laug­ar­dag­inn 12. mars. Almenn­ingur getur valið sína upp­á­halds hug­mynd hér á vef Kjarnans.

Frumkvöðlakeppnin Gulleggið er haldin í níunda sinn í ár. Lokahóf keppninnar fer fram í Háskólanum í Reykjavík 12. mars næstkomandi.
Frum­kvöðla­keppnin Gul­leggið er haldin í níunda sinn í ár. Lokahóf keppn­innar fer fram í Háskól­anum í Reykja­vík 12. mars næst­kom­andi. Mynd: Birgir Þór

Val almenn­ings á sinni upp­á­halds hug­mynd í Gul­legg­inu 2016 er hafið. Tíu við­skipta­hug­myndir og fyr­ir­tæki keppa til úrslita í þess­ari stærstu frum­kvöðla­keppni lands­ins í ár. 100 manna rýni­hópur skip­aður konum til jafns við karla valdi úr um 200 umsóknum um þátt­töku í kepnn­inni.

Hægt er að kynna sér verk­efnin tíu og velja það sem þykir áhuga­verð­ast hér á vef Kjarnans. Úrslitin í Gul­legg­inu 2016 verða kynnt í Háskól­anum í Reykja­vík laug­ar­dag­inn 12. mars. Kjarninn hýsir Val fólks­ins í annað sinn í ár en keppnin er haldin árlega á vegum Icelandic Startups í sam­starfi við Háskól­ann í Reykja­vík, Háskóla Íslands og Lista­há­skóla Íslands.

Teymin tíu sem valin voru til úrslita munu kynna hug­myndir sínar og mark­mið fyrir áhuga­sömum í Stúd­enta­kjall­ar­anum í kvöld. Öll teymin munu flytja lyft­u­ræður en það eru örstuttar kynn­ingar á verk­efnum þeirra sem mætti flytja í stuttri lyftu­ferð, til dæmis. Keppt verður um tit­il­inn „Lyft­uræð­ari Gul­leggs­ins 2016“ auk þess sem verð­laun verða veitt fyrir mesta eld­móð­inn og bestu sög­una.

Mark­miðið með keppn­inni er að hjálpa ein­stak­lingum að láta hug­myndir sínar verða að veru­leika. Gul­leggið hefur virkað sem stökk­pallur fyrir mörg fyr­ir­tæki sem hafa náð langt og stækkað eftir þátt­töku. Má þar til dæmis nefna Meniga, Clara, Radiant Games og Pink Iceland.

Aldrei hefur hlut­fall kvenna verið jafn hátt meðal umsókna í keppn­ina og í ár. 40 pró­sent hug­mynd­anna sem bár­ust Gul­legg­inu í ár voru skip­aðar kven­kyns leið­toga. Í hópi tíu stiga­hæstu hug­mynd­anna eru 35 pró­sent konur. Aðeins eitt teymi er ein­göngu skipað konum en fjögur eru ein­göngu skipuð körlum. Helm­ingur tey­manna eru hins vegar skipuð blöndu af konum og körlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

gulleggið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár