Gylfi: leiðrétting „stórfurðuleg“ - Meiri brottflutningur nú en í krísunni

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, segir leið­rétt­ingu sem Hagstofa Íslands sendi frá sér á föstu­dag um fólks­flutn­inga frá Ísland sé „stórfurðu­leg“ og skilur ekk­ert í því af hverju Hag­stofan láti slíka frétt frá sér. Í frétt Hag­stof­unnar var sagt að engar mark­verðar breyt­ingar hafi átt sér stað á hlut­falli íslenskra rík­is­borg­ara sem fluttu til og frá land­inu á mis­mun­andi ald­urs­bili árið 2015 borið saman við sam­bæri­legt hlut­fall áranna 1986 til 2014. Aukin fjöldi brott­fluttra er ekki umfram það sem telja má eðli­lega sveiflu miðað við fyrri ár.

Gylfi segir tölur Hag­stof­unnar tala skýru máli. „Frá 1961 hafa brott­fluttir með íslenskt rík­is­fang verið að með­al­tali 0,18% af fólks­fjölda á hverju ári. Árið 2013 var hlut­fallið komið niður í 0,01% en hefur síðan farið ört hækk­andi. Í fyrra var það 0,23%, þ.e. meira en í með­al­ári og miðað við fyrstu þrjá árs­fjórð­unga þessa árs verður hlut­fallið 0,46% í ár - sem er tala sem áður hefur yfir­leitt bara sést í efna­hag­skreppum. Brott­flutn­ingur íslenskra rík­is­borg­ara í ár stefnir í að verða meiri en í krís­unni 2008 til 2012.“

Ástæða fréttar Hag­stof­unnar var frétt Morg­un­blaðs­ins frá 11. nóv­em­ber þar sem sagði að alls hafi 3.210 íslenskir rík­is­borg­arar flutt frá Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015, eða um 1.130 fleiri en fluttu til þess. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­ara umfram heim­komna hefðu ein­ungis fimm sinnum verið fleiri sam­kvæmt gagna­grunni Hagstofu Íslands, sem nær til 1961. Það voru árin 1970, 1995, 2009, 2010 og 2011. Öll þau ár komu hins vegar í kjöl­far kreppu­ára, þ.e. ára þar sem sam­dráttur ríkti í íslensku hag­kerfi. Það er ekki raunin nú, þar sem hag­vöxtur hefur verið hér­lendis frá árinu 2011. Því er ekki um kreppu­flutn­inga að ræða.

Þar var einnig rætt við Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands. Hann segir að það virð­ist eitt­hvað djúp­stæð­ara á ferð­inni og að vís­bend­ingar séu um að margt háskóla­fólk flytji úr landi. Batinn á vinnu­mark­aði, sem átt hefur sér stað á und­an­förnum árum, hefði ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti.

Jóhannes Þór Skúlason, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra, og Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, vís­uðu báðir til fréttar Hag­stof­unnar í stöðu­upp­færslum á Facebook á föstu­dag. Jóhannes Þór sagði að þá geti fólk „hætt að fabúlera um að ungt fólk sé að flýja rík­is­stjórn og "Kaf­ka­íska" spill­ingu á Íslandi miklu meira en áður. Hag­stofan segir nefni­lega að það sé barasta ekk­ert þannig.“

Sigurður Már sagði: „„Þá liggur það fyrir. Hag­stofan bendir á að sé hlut­fall íslenskra rík­is­borg­ara sem flytja til og frá land­inu á mis­mun­andi ald­urs­bili (af heild­ar­fjölda aðfluttra og brott­fluttra) árið 2015 borið saman við sam­bæri­legt hlut­fall áranna 1986 til 2014 fæst nið­ur­staðan að engar mark­verðar breyt­ingar hafi átt sér stað árið 2015. Aukinn fjöldi brott­fluttra er ekki umfram það sem telja má eðli­lega sveiflu miðað við fyrri ár. Þessi nið­ur­staða á við hvort sem horft er til búferla­flutn­inga hjá ein­stak­lingum eða kjarna­fjöl­skyldum. Ekki sést neinn munur sé horft til þeirra sem eru yngri en 40 ann­ars vegar og eldri en 45 hins vegar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár