Ungir og menntaðir Íslendingar flytja burt í unnvörpum þrátt fyrir að kreppu sé lokið

Árið 2015 er eitt mesta brott­flutn­ingár Íslands­sög­unnar. Brott­fluttir Íslend­ingar umfram heim­komna hafa ein­ungis fimm sinnum verið fleiri, en þá alltaf í kjöl­far kreppu­ára.

Alls fluttu 3.210 íslenskir rík­is­borg­arar frá Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015, eða um 1.130 fleiri en fluttu til þess. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­ara umfram heim­komna hafa ein­ungis fimm sinnum verið fleiri sam­kvæmt gagna­grunni Hagstofu Íslands, sem nær til 1961. Það voru árin 1970, 1995, 2009, 2010 og 2011. Öll þau ár komu hins vegar í kjöl­far kreppu­ára, þ.e. ára þar sem sam­dráttur ríkti í íslensku hag­kerfi. Það er ekki raunin nú, þar sem hag­vöxtur hefur verið hér­lendis frá árinu 2011. Því er ekki um kreppu­flutn­inga að ræða. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu.

Þar er rætt við Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands. Hann segir að það virð­ist eitt­hvað djúp­stæð­ara á ferð­inni og að vís­bend­ingar séu um að margt háskóla­fólk flytji úr landi. Batinn á vinnu­mark­aði, sem átt hefur sér stað á und­an­förnum árum, hafi ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti. „Þá má minna á að sam­kvæmt Hag­stof­unni er munur á ráð­stöf­un­ar­tekjum mennt­aðs og ómennt­aðs fólks hér einn sá minnsti í Evrópu,“ segir Ásgeir við Morg­un­blaðið.

Hann segir rann­sóknir sýna að það sé einkum ungt fólk sem hleypi heim­drag­anum og leiti betri kjara erlendis. Því sé mögu­legt að of mik­ill launa­jöfn­uður sé orð­inn vanda­mál þegar komi að því að halda ungu fólki í land­inu.

Karl Sig­urðs­son, sér­fræð­ingur hjá Vinnu­mála­stofnun, segir svip­aða sögu við Morg­un­blaðið. Vís­bend­ingar séu að margir finni ekki atvinnu sem henti námi þeirra og bak­grunni. Til dæmis sé nokkur fjöldi háskóla­mennt­aðra nú á atvinnu­leys­is­skrá. Í sept­em­ber voru 1.207 atvinnu­lausir með háskóla­próf af alls 4.487 atvinnu­lausum, eða rúmur fjórð­ungur.

Þessi þróun á sér stað á sama tíma og það er sögu­lega mik­ill hag­vöxtur á Íslandi. Hann var 5,2 pró­sent á fyrri helm­ingi þessa árs og hefur ekki mælst meiri á fyrri helm­ingi árs síðan 2007. Greining Íslands­banka sagði í sept­em­ber síð­ast­liðnum að „ljóst er að bætt fjár­hags­staða heim­il­anna, m.a. vegna vaxtar í kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna, er að skila þessum mikla vexti".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár