Mesti hagvöxtur á Íslandi síðan 2007

Hag­vöxtur á Íslandi hefur ekki mælst meiri á fyrri helm­ingi árs síðan 2007. Samkvæmt mæl­ingum Hag­stof­unnar nam vöxtur lands­fram­leiðslu 5,2 pró­sentum á fyrri helm­ingi árs 2015. Er það tals­vert umfram spá Seðla­bank­ans fyrir árið í heild, en í nýj­ustu spá bank­ans frá síð­asta mán­uði er búist við að hag­vöxtur í ár yrði 4,2 pró­sent.

Greining Íslands­banka bendir á þetta í dag en Hag­stofan greindi í morgun frá hag­vexti á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Greining Íslands­banka segir að kröft­ugur vöxtur í útflutn­ingi á fyrri helm­ingi árs skýri mestan mun­inn á spá Seðla­bank­ans og nið­ur­stöðu fyrsta árs­helm­ings. Ljóst er að Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans mun taka til­lit til kröft­ugs hag­vaxtar þegar hún kemur saman undir lok þessa mán­aðar við ákvörðun stýri­vaxta, segir grein­ing­ar­deild Íslands­banka.

Umfram allar spár


„Hag­vöxtur á fyrri árs­helm­ingi er einnig umfram okkar nýj­ustu spá sem birt var í maí sl. en hún hljóðar upp á 4,0% hag­vöxt í ár. Einnig er þessi hag­vöxtur tals­vert umfram það sem Hag­stofan spáir, en sú er lögð til grund­vallar í nýfram­komnu fjár­laga­frum­varpi. Þar reiknar stofn­unin með 3,8% hag­vexti í ár,“ segir í Morg­un­pósti grein­ing­ar­deildar bank­ans í dag.

Þar segir að hag­vöxtur á fyrri helm­ingi árs sé á nokkuð breiðum grunni. Mikill vöxtur sé í einka­neyslu, fjár­fest­ingu og útflutn­ingi en vöxtur einka­neyslu mæld­ist 4,4 pró­sent á fyrri hluta árs. Það er mesti vöxtur einka­neyslu á fyrri árs­helm­ingi síðan 2006. „Ljóst er að bætt fjár­hags­staða heim­il­anna, m.a. vegna vaxtar í kaup­mætti ráð­stöf­un­ar­tekna, er að skila þessum mikla vexti. Er vöxtur einka­neyslu nokkuð nálægt því sem bæði við og Seðla­bank­inn spáum fyrir árið í heild en okkar spá hljóðar upp á 4,6% en spá Seðla­bank­ans 4,2%.“

Umfjöllun grein­ing­ar­deildar Íslands­banka í heild má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár