Hagvöxtur var 5,2 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins

Lands­fram­leiðslan á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 jókst um 5,2 pró­sent að raun­gildi borið saman við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2014. Á sama tíma juk­ust þjóð­ar­út­gjöld, sem eru sam­tala neyslu og fjár­fest­ingar, um 7,3 pró­sent. Einka­neysla jókst um 4,4 pró­sent, sam­neysla um 1,0 pró­sent og fjár­fest­ing um 21,2 pró­sent. Útflutn­ingur jókst um 9 pró­sent og inn­flutn­ingur nokkru meira, eða um 13,6 pró­sent.

Hag­stofan greinir frá í dag. Á sama tíma greinir Hag­stofan frá því að hag­vöxtur árið 2014 var 1,8 pró­sent, sam­kvæmt end­ur­mati á nið­ur­stöðum þjóð­hags­reikn­inga. Neysla og fjár­fest­ing drógu hag­vöxt­inn áfram á síð­asta ári, en þjóð­ar­út­gjöld juk­ust um 5,2 pró­sent á föstu verð­lagi.

Í Hag­tíð­indum, riti Hag­stof­unnar, segir að mik­inn vöxt fjár­fest­ingar megi alfarið rekja til atvinnu­vega­fjár­fest­ingar sem jókst um 38 pró­sent. Á sama tíma dróst íbúða­fjár­fest­ing saman um 13,3 pró­sent og fjár­fest­ing hins opin­bera um 0,8 pró­sent.

Lands­fram­leiðsla á 2. árs­fjórð­ungi 2015, án árs­tíð­ar­leið­rétt­ingar, jókst um 5,6 pró­sent frá sama árs­fjórð­ungi í fyrra. Árs­tíð­ar­leið­rétt jókst hún um 3,3 pró­sent frá 1. árs­fjórð­ungi 2015.

Í helstu við­skipta­löndum Íslands var árs­breyt­ing lands­fram­leiðsl­unnar á 2. árs­fjórð­ungi mest í Svíþjóð, 2,9%. Í Banda­ríkj­unum var hag­vöxtur 2,7%, Bret­landi 2,6%, Hollandi 2%, Danmörku 1,8%, Þýska­landi 1,6%, Noregi 1,2%, Frakk­landi 1% og Japan 0,7%. Aftur á móti var eng­inn hag­vöxtur í Finn­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár