Hagstofan: Ungt fólk er ekki að flytja burt í meira mæli en áður

Engar mark­verðar breyt­ingar hafa átt sér stað á hlut­falli íslenskra rík­is­borg­ara sem fluttu til og frá land­inu á mis­mun­andi ald­urs­bili árið 2015 borið saman við sam­bæri­legt hlut­fall áranna 1986 til 2014. Aukin fjöldi brott­fluttra er ekki umfram það sem telja má eðli­lega sveiflu miðað við fyrri ár. „Þessi nið­ur­staða á við hvort sem horft er til búferla­flutn­inga hjá ein­stak­lingum eða kjarna­fjöl­skyldum." Þetta kemur fram í nýrri útgáfu Hagstofu Íslands sem mælir breyt­ingar í flutn­ings­jöfn­uði fyrstu þrjá árs­fjórð­unga 2015.

Morg­un­blaðið greindi frá því 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að alls hafi 3.210 íslenskir rík­is­borg­arar frá Íslandi á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2015, eða um 1.130 fleiri en fluttu til þess. Brott­fluttir íslenskir rík­is­borg­ara umfram heim­komna hefðu ein­ungis fimm sinnum verið fleiri sam­kvæmt gagna­grunni Hagstofu Íslands, sem nær til 1961. Það voru árin 1970, 1995, 2009, 2010 og 2011. Öll þau ár komu hins vegar í kjöl­far kreppu­ára, þ.e. ára þar sem sam­dráttur ríkti í íslensku hag­kerfi. Það er ekki raunin nú, þar sem hag­vöxtur hefur verið hér­lendis frá árinu 2011. Því er ekki um kreppu­flutn­inga að ræða.

Þar var einnig rætt við Ásgeir Jónsson, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands. Hann segir að það virð­ist eitt­hvað djúp­stæð­ara á ferð­inni og að vís­bend­ingar séu um að margt háskóla­fólk flytji úr landi. Batinn á vinnu­mark­aði, sem átt hefur sér stað á und­an­förnum árum, hefði ekki skilað sér til mennt­aðs fólks nema að tak­mörk­uðu leyti.

Ásgeir sagði rann­sóknir sýna að það sé einkum ungt fólk sem hleypi heim­drag­anum og leiti betri kjara erlendis. Því sé mögu­legt að of mik­ill launa­jöfn­uður sé orð­inn vanda­mál þegar komi að því að halda ungu fólki í land­inu.

Hagstofan getur ekki greint ástæður þess að fólk flytur

Þessu hafnar Hag­stofan í nýrri útgáfu sinni. Þar segir hún að ekki sjá­ist neinn munur sé horft til þeirra sem eru yngri en 40 ann­ars vegar og eldri en 45 hins vegar. Þess þá heldur sjást engar vís­bend­ingar um breytta búferla­flutn­inga þeirra sem eru 20-24 ára eða 25-29 ára. Einu mark­tæku nið­ur­stöð­urnar taka til ald­urs­hóps­ins 40-44 ára sem eru hreyf­an­legri síð­ustu ár (2009-2015) en áður hefur sést. Árið 2015 fluttu mark­tækt fleiri í þessum ald­urs­hópi til Íslands en áður og lít­il­lega fleiri fluttu brott. Eftir hrunið 2008, einkum frá árinu 2010, má almennt greina meiri hreyf­an­leika fólks á aldr­inum 40-60 ára bæði í brott­flutn­ingi og aðflutn­ingi.“

Breyti­leiki flutn­ings­jöfn­uðar hjá ein­stak­lingum og fjöl­skyldum, milli tveggja sam­liggj­andi ára, sýni því ekki mark­tækar breyt­ingar sé horft til tólf mán­aða, frá 1. októ­ber til 30. sept­em­ber, árin 1971–2015. „Í því sam­hengi eru árin 1989 og 2009 frá­brugðin sé horft til ein­stak­linga en aðeins 2009 sé horft til fjöl­skyldna. Þar eru greini­leg áhrif efna­hags­hruns­ins 2008.“

Í úttekt Hag­stof­unnar segir að gögn um brott­flutta og aðflutta íslenska rík­is­borg­ara sýni sterka fylgni við líkan sem inni­haldi fjölda útskrif­aðra stúd­enta, þróun vergrar lands­fram­leiðslu og atvinnu­leys­is­stig. Líkan Hag­stof­unnar sýni þó ein­ungis fylgni en getur ekki gefið upp­lýs­ingar um orsöku né er það tæm­andi. „Aðrir þættir gætu hugs­an­lega varpað frekara ljósi á flutn­ings­jöfnuð, t.d. menntun og starf, en þau gögn eru ekki til­tæk í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár