Tölvur kunna að læra í gervigreindarbyltingu Google

Bylting hefur orðið í þróun gervi­greindar, segir Úlfar Erlings­son, starfs­maður Google í tölvu­ör­ygg­is­rann­sókn­ar­deild. Google er að hans sögn í far­ar­broddi í þróun gervi­greindar enda hefur fyr­ir­tækið þegar komið tækn­inni í notkunn meðal almenn­ings. Í nýj­ustu upp­færslum for­rita frá Google getur not­and­inn fært sér lær­dóm tölva í nyt, hvort sem það er til þess að þýða texta eða leita að myndum af pít­sum í mynda­safni sínu.

Úlfar kennir masterskúrs í greina­lestri við Háskólan í Reykja­vík. Þar sem hann und­ir­býr nem­endur undir að stunda vís­inda­starf í tölvu­ör­yggi. Sjálfur lærði hann tölv­un­ar­fræði og stærð­fræði í Háskóla Íslands og tók dokt­ors­próf í kerfum og tölvu­ör­yggi við Cornell-háskóla í Banda­ríkj­unum. Á haust­ráð­stefnu Advania í Hörpu á föstu­dag flutti Úlfar fyr­ir­lestur um þessa bylt­ingu í lær­dómi tölva.

„Við erum í raun og veru í miðj­unni á bylt­ingu á því hvernig tölvur geta gert það sem hingað til hefur aðeins verið á færi mann­eskja,“ segir Úlfar í sam­tali við Kjarnann. Hlusta má á sam­talið í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan. Hann útskýrir þessa bylt­ingu þannig að fyrir fjórum árum hafi vís­inda­menn farið að vinna með svokölluð tauga­net til þess að vinna úr gríð­ar­legu magni upp­lýs­inga sem tauga­netin geta svo lært af. „Þá geta þau leyst verk­efni sem eru aðeins á færi mann­eskja. Til dæmis horft á mynd og skilið strax hvað stendur á mynd­inni, hlustað á ein­hvern tala og ekki aðeins gripið það að þarna sé verið að tala eitt­hvað tungu­mál heldur þýtt merk­ingu þess á annað tungu­mál.“

„Það sem er meki­leg­ast í þessu er að það er sami hug­bún­að­ur­inn sem er bak við allar þessar þjón­ustur,“ útskýrir Úlfar og vísar þar í nýj­ungar í Google Photos, Google Translate og þar fram eftir göt­unum. „Það er sama vélin sem er notuð til að túlka myndir yfir í orð eins og köttur, sól­ar­lag eða barn. Sama tækni er notuð til að þýða úr þýsku yfir á kín­versku.“

Úlfar spjallar um nýj­ungar Google, nútíma gagna­nám úr gagna­gnótt og tölvu­ör­yggi í spjalli við Kjarnan. Hægt er að hlusta á við­talið í heild sinni í spil­ar­anum hér að ofan.

[caption id="" align="alignnone" width="1024"] Úlfar beitir stærð­fræði í starfi sínu hjá Google.[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Internet

Fréttir

Google skrár skilja nú talað, íslenskt mál

Und­an­farin miss­eri hefur Google þróað tal­mögu­leik­ann Google Voice enn frekar. Mögu­leik­inn gerir not­endum kleift að tala við for­ritið sem breytir þá töl­uðu máli í texta. Nú er þýð­inga­stofan Skopos að leggja loka­hönd á íslenska útgáfu for­rits­ins. Íslenskir not­endur geta nú stillt Google skrár (e. Google Docs), á íslensku og valið Raddinn­slátt (e. Voice Command) í tóla-flip­anum (e. Tools) - og...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár