Meiri makríll má fara í mjöl og minna til manneldis

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, Sigurður Ingi Jóhanns­son, breytti í lok júlí síð­ast­liðnum reglu­gerð um stjórn mak­ríl­veiða þannig að hærra hlut­fall mak­rílafl­ans má vinna í fiski­mjöl en áður. Fyrir breyt­ing­una var útgerðum skylt að ráð­stafa mán­að­ar­lega að minnsta kosti 70 pró­sent af mak­rílafla ein­stakra skipa í vinnslu til mann­eldis. Það hlut­fall hefur nú verið lækkað niður í fimm­tíu pró­sent. Breyt­ing­arnar á reglu­gerð­inni var útgefin þann 31. júlí síð­ast­lið­inn.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu teng­ist ákvörð­unin ekki inn­flutn­ings­banni Rúss­lands sem sett var í dag, en fyrstu fréttir af fyr­ir­hug­aðri útvíkkun inn­flutn­ings­banns­ins voru sagðar í lok júlí og byrjun ágúst. Ekki er lengur talin þörf á að reglur kveði á um að svo hátt hlut­fall fari til mann­eldis, en á síð­ustu árum hefur nærri 90 pró­sent afl­ans verið unn­inn til mann­eldis.


Nokkur umræða skap­að­ist um mjöl­bræðslu útgerða á mak­ríl þegar veiðar hófust á fiski­teg­und­inni árið 2007. Sú stað­reynd að nær allur afl­inn fór í mjöl- og lýs­is­bræðslu var gagn­rýnd. Í kjöl­farið voru settar reglur um lág­marks­afla sem verður að ráð­stafa í vinnslu til mann­eldis. Þetta hlut­fall hefur nú verið lækkað í reglu­gerð­inni, úr 70 pró­sentum í 50 pró­sent, og má því meiri mak­ríll en áður fara í mjöl­bræðslu.

Segja breytinguna afturför

Fjallað er um breyt­ing­una á vef Smá­báta­eig­enda í dag. Þar er hún sögð aft­ur­för. „Eftir að hafa tek­ist á örskömmum tíma að færa okkur úr bræðsl­unni yfir í að full­vinna mak­ríl­inn er hér um aft­ur­för að ræða,“ segir í umfjöllun á vef Smá­báta­eig­enda.


Bent er á að hlut­fall mak­ríls af Íslands­miðum til mann­eldis hafi verið 87 til 90 pró­sent af heild­ar­afla allt frá árinu 2011. Árið 2010 var hlut­fallið 60 pró­sent (40 pró­esnt fór þá í fiski­mjöl- og lýs­is­fram­leiðslu) og árið 2009 var hlut­fallið 17 pró­sent. Árið 2007 fór ekk­ert af afl­anum í vinnslu til mann­eldis.

Aldrei meira af makríl og markaðir lokast

Haf­rann­sókn­ar­stofnun til­kynnti á þriðju­dag­inn síð­asta að nýj­ustu mæl­ingar sýni að aldrei hafi eins mikið af mak­ríl verið á Íslands­miðum. En í sömu viku og greint er frá þessum tíð­indum þá lok­ast Rúss­lands­mark­aður, stærsti mark­aður íslenskra útgerða með upp­sjáv­ar­fisk og hafa þeir á síð­ustu árum verið stærsti kaup­andi mak­ríls.


Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi áætla að við eðli­legar aðstæður hefði virði útflutn­ings á sjáv­ar­af­urðum til Rúss­lands numið um 37 millj­örðum króna á þessu ári. Mestu munar um útflutn­ing til Rúss­lands á loðnu og mak­ríl. Áætlað virði útflutn­ings á þessum tveimur fisk­teg­undum er um 23,3 millj­arðar króna árið 2015, miðað við eðli­legar aðstæður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár